Langar aaaððeins að segja smá
Það er í raun ekki eins og maður "setji saman" allt Linux stýrikerfið sjálfur, heldur ert þú með distró, t.d. Red Hat, Mandrake, Debian, sem er með ákveðna grunnsamsetningu af Linux...Þegar þú setur það upp getur þú svo valið hvaða pakka þú vilt, sem fer þá í raun algjörlega eftir því hvað þú ætlar að nota vélina í. Pakkar eru ekki endilega forrit, þeir geta t.d. líka verið library og nausynlegir fyrir sum forrit að keyra.
Þegar þú eyðir pakka þá hverfa allar leyfar af forritinu, þú getur meira að segja í mörgum tilfellum bara eytt binary skránni og verið laus við forritið, ekki þetta blessaða registry eins og í Windows sem smám saman fyllist af rusli því forrit sem þú uninstallar hreinsa ekki nægilega vel upp eftir sig.
Ég er ekki að segja að Windows sé betra en Linux eða öfugt, þau hafa bæði sína kosti og galla og ég gæti sennilega haldið endalaust áfram að tíunda ýmislegt. Í Linux er t.d. spyware og vírusar úr sögunni, eitthvað sem mér finnst mjög ábótavant hjá Windows sem virðist stundum vera jafn opið og gleðikona í Amsterdam. En Windows er notendavænna og meira easy í daglegu amstri fyrir flesta, en kemur líka "as it is".
Eitt enn (sennilega allir hættir að lesa núna), einhver sagði að þetta væri eins og að vera í lokaður inní boxi...þvert á móti er Windows eins og að vera í lokuðu boxi. Linux er transparent og þú getur séð ALLT sem er í gangi...í windows færðu ekkert að kíkja undir vélarhúddið og því með mjög takmarkaða sýn á því sem er að gerast....eða lokaður í boxi!!
gumol: Hefur þú prófað Linux og þá hvaða útgáfu?