Er OgVodafone að fara að láta borga fyrir fastar IP-tölur? Ég spyr að þessu af því ég var að taka eftir því að það er komið "du" fyrir framan .xdsl.is í hostaneminu mínu og á flestum tengingum held ég að du standi fyrir dynamic ip tölur.
Þetta er mjög einfalt, ef þeir ætla að fara að hækka verðið á tengingunni núna (um það sem það kostar að vera með fasta IP tölu) þá er ég farinn eitthvert annað með símann og ADSL-ið, sama þótt ég þurfi að borga margfalt meira þar.
Er OgVodafone að fara að láta borga fyrir fastar IP-tölur?
-
Höfundur - Besserwisser
- Póstar: 3929
- Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
- Reputation: 0
- Staðsetning: Kópavogur
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Er OgVodafone að fara að láta borga fyrir fastar IP-tölur?
Síðast breytt af gumol á Sun 26. Des 2004 14:38, breytt samtals 1 sinni.
-
- Tölvutryllir
- Póstar: 677
- Skráði sig: Fös 10. Jan 2003 09:59
- Reputation: 93
- Staðsetning: 107
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
gumol: Ertu viss um að þú sért með fasta ip? En ekki að þú haldir það bara afþví að þú ert svo "heppinn" að vera alltaf með sömu ip töluna (Disconnectar aldrei ... etc.)
Mig minnir nefninlega endilega að einhver hafi sagt mér að OgV. rukkaði fyrir fastar ip tölur eins og allir aðrir þjónustuaðilar hérlendis, og hefur alltaf verið gert. Verðið hjá flestum er 500kr/mán.
Treknet rukkaði 500kr...
Islandia rukkaði 500kr...
Sumir þjónustuaðilar neituðu á tímabili að gefa fasta ip.
Simnet rukkar 500kr...
(Áðuren einhver kemur með flottan samanburð við útlönd, já það kostar líka að vera með ip tölu hjá langflestum þjónustuaðilum allstaðar í heiminum, sérstaklega í bandaríkjunum, oft upp í $10 us-dollars á mánuði. Og stór hluti þjónustuaðila einfaldlega neita að bjóða upp á fasta ip tölur fyrir end-users.)

Mkay.
-
Höfundur - Besserwisser
- Póstar: 3929
- Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
- Reputation: 0
- Staðsetning: Kópavogur
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Hún er amk það föst að hún breytist ekki sama hvað ég aftengist og tengist ADSL-inu oft. Það gerist reyndar mjög sjaldan en ég er stundum að fikta í routernum, restarta honum, færa hann til og slá rafmagninu út og svona svo það er alveg ótrúleg tilviljun ef ég er ekki með fasta IP tölu. Kannski helst hún í t.d. sólarhring eftir að ég aftengist og svo kemur ný, ég veit það ekki. Hún er amk nógu föst til að ég sé búin að halda henni í 1 - 2 ár 