Icarus skrifaði:Kannski svolítið overkill að hafa Cisco 887VA-M en ég held að þú þurfir að finna þetta út með ljósleiðara/ljósnet. Það er töluvert framboð af flottum ljósleiðararouterum sem er auðvelt að setja upp, aðeins takmarkaðra með ljósnetið.
Væri synd að kaupa rándýran Ljósnets router ef þú færð ljósleiðara eftir nokkra mánuði.
Þetta. Ef það er minna en ár í ljósleiðara þá myndi ég halda routernum sem þú ert með frá ISP þangað til þú færð ljósleiðara. Getur reyndar alveg keypt þér routerinn sem þú ætlar að hafa þegar ljósleiðarinn kemur strax og látið vdsl routerinn bara vera "uplinkinn" eins og ljósleiðaraboxið verður þegar þar að kemur.
Ég skoðaði þetta einhverntíma þegar ég bjó á stað sem var bara með ljósnet í boði og routerarnir (sem voru eitthvað step up frá því sem er boðið uppá frá ISP) voru bara drulludýrir.