Í SQL Server er eitthvað sem heitir job og þar er hægt að schedule-a ýmis verk sem maður vill gera reglulega í grunninum.
Eru til eittthvað sem er sams konar í Access og Job í SQL Server - hvað getur maður gert ef maður vill að einhver skrift keyri reglulega í Access forriti?
Palm
Access og job
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1704
- Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
- Reputation: 40
- Staða: Ótengdur
Hmm.. hvað í ósköpunum ertu að reyna að gera með Access?!?
Annars er lykilorðið hérna vel og vandlega falið í MS SQL Server. Server þýðir að það er einhver þjónusta sem er alltaf í gangi (eða á alltaf að vera í gangi) á meðan Access er 'bara' forrit sem þú keyrir upp þegar þú þarft. Í þessu tilfelli er þjónustan 'scheduler' sem keyrir eitthvað á ákveðnum tímum og bregst hugsanlega við því. Efast stórlega um að Access sé með scheduler
Ef þig bráðvantar þetta og hefur ekki efni á MS SQL Server þá geturðu prófað að kíkja á svokallað Microsoft SQL Server 2000 Desktop Engine. Fyrir utan að vera ókeypis (70Mb download minnir mig) þá er þetta svona strípuð útgáfa af SQL Server og gæti hugsanlega innihaldið þessa virkni.