Er með þráðlaust net hérna heima og tvær vélar (eina ferða og eina borðtölvu).
Borðtölvan er alltaf í gangi og alltaf tengd en í hvert skipti sem kveikt er á fartölvuni þá slitnar sambandið á milli borðtölvunar og router-sins.
Svo virðist einnig vera að ef fartölvan er í gangi en borðtölvan ekki, þá heldur fartölvan sambandinu en borðtölvan nær ekki að tengjast þegar hún er ræst upp.
Vona að þessi póstur skiljist og að þetta sé eitthvað einfalt stillingaratriði sem ég hreinlega finn ekki..
