Linux byrjandi

Skjámynd

Höfundur
kazzi
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 372
Skráði sig: Mið 04. Maí 2011 16:20
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Linux byrjandi

Pósturaf kazzi » Lau 18. Jún 2011 12:05

sælir.þar sem ég er alveg glænýr í linux var ég að hugsa hvar er best að byrja.Svona til að skilja og læra betur ,eru einhverjar síður sem þið mælið með,maður kemst kannski lengra svoleiðis .Tek fram að ég er algjör auli í þessum fræðum,en líst ansi vel á þetta allt saman.



Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Reputation: 12
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Linux byrjandi

Pósturaf gardar » Lau 18. Jún 2011 12:15

Sé að þú ert að nota ubuntu.

Fyrir algeran grunn þá er fínt að skoða eftirfarandi síður:
http://ubuntuguide.org/
https://help.ubuntu.com/
http://ubuntuforums.org/




coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Linux byrjandi

Pósturaf coldcut » Lau 18. Jún 2011 13:01

Sko...lærðu bash (terminal/shell)! Það er besta ráðið sem ég get gefið þér ;)

Svo eru fullt af síðum svipuðum og gardar bendir á sem að eru með 'tips and tricks' og þegar ég var að læra á þetta þá fannst mér það bestu síðurnar því þá sá maður e-ð sniðugt sem hægt er að gera og svo fer maður að fikta.

Sniðugt væri líka að downloada t.d. bókinni 'Ubuntu Kung-Fu' eða einhverri svipaðri bók.

Svo koma hérna nokkrar Ubuntu/Linux síður sem ég er með bookmarked af einhverjum ástæðum.

http://ubuntuguide.net/
http://www.ubuntugeek.com/
http://www.omgubuntu.co.uk/
http://www.howtogeek.com/tag/linux/#ubuntu
http://ubuntuexplore.blogspot.com/ (skemmtilegar svona síður sem maður getur farið inná einn blog-post og fyrir neðan hann er linkur á 3 aðra o.s.frv.)


Ef þig langar að kafa ofan í GNU/Linux þá go for it en þú þarft þess ekkert ef þú ert að nota Ubuntu. Tengdamamma mín "lærði" á það á einum klukkutíma og ekki er hún "tæknilega þenkjandi".



Skjámynd

Höfundur
kazzi
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 372
Skráði sig: Mið 04. Maí 2011 16:20
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Linux byrjandi

Pósturaf kazzi » Lau 18. Jún 2011 13:52

(terminal) það er einmitt það sem ég er að fíla að þurfa að hafa fyrir þessu aðeins, En ubuntu er eflaust meira nýliða vænna en annað linux en finnst þetta skemmtilegra heldur en að velja next og next eins og windows er :D
Og takk fyrir innleggin.



Skjámynd

bjarkih
Nörd
Póstar: 108
Skráði sig: Þri 16. Feb 2010 17:55
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Linux byrjandi

Pósturaf bjarkih » Lau 18. Jún 2011 19:21

Svo er mjög sniðugt að finna bloggsíður sem fjalla um Linux tengd mál til að fá góðar hugmyndir og fylgjast með því sem er að gerast, ég hef lært mikið af því. T.d. http://www.techdrivein.com/

Og svo fær maður fullt af skemmtilegum hugmyndum af því að lesa þennann þráð http://ubuntuforums.org/showthread.php?t=86237 :D


Bug #1 https://bugs.launchpad.net/ubuntu/+bug/1

Skjámynd

bjarkih
Nörd
Póstar: 108
Skráði sig: Þri 16. Feb 2010 17:55
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Linux byrjandi

Pósturaf bjarkih » Sun 26. Jún 2011 00:26

Rakst á þessa síðu núna áðan, gæti verið hjálpleg http://www.psychocats.net/ubuntu/index


Bug #1 https://bugs.launchpad.net/ubuntu/+bug/1

Skjámynd

Höfundur
kazzi
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 372
Skráði sig: Mið 04. Maí 2011 16:20
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Linux byrjandi

Pósturaf kazzi » Sun 26. Jún 2011 00:37

takk fyrir þetta :)




akarnid
Ofur-Nörd
Póstar: 241
Skráði sig: Lau 04. Nóv 2006 22:35
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: Linux byrjandi

Pósturaf akarnid » Sun 26. Jún 2011 01:28

#1 : Lærðu á skelina eins og coldcut segir. Þar er krafturinn í Unix/Linux. Lærðu á skipanirnar í helstu skelinni (bash).

http://tldp.org/LDP/Bash-Beginners-Guide/html/ er góð byrjun.
http://www.commandlinefu.com/commands/browse - fín síða upp á tips og tricks sem hægt er að gera í skelinni.

Mundu eftir tvennu mega powerful í skelinnni: tab completion, og aliases. Tab completion leyfir þér að auto-complete-a skráar- og filepath vísanir í skelinni. Look it up. Lærðu líka á skráarkerfið í Linux/Ubuntu, Hvað er t.d. /var og hvað er geymt þar? Líka /opt . Hvar geymir kerfið binaries sem náð er í?

Aliases eru flýtivísanir á skipanir. Þannig geturu keyrt flóknar skipanir með bara nokkrum tökkum í skelinni. Þú munt venjast fljótt ef þú sökkvir þér ofan í þetta og venur þig á að nota skelina sem mest.




dorg
has spoken...
Póstar: 171
Skráði sig: Lau 24. Jún 2006 10:19
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Linux byrjandi

Pósturaf dorg » Sun 26. Jún 2011 13:28

Það sem er mikilvægt er hvernig þú nálgast verkfærið sem er linux.

Þetta er svona álíka og þegar þú ferð út í garð ætlar að saga niður tré.
Þá notar þú ekki skóflu og það þýðir ekkert að bölva skóflunni ef þér gengur illa að saga niður tréð með henni.

Sem sagt þolinmæði. Ekki vera svekktur þó skóflan sé ekki sög.
Ekki ætlast til þess að einhver ákveðin windows eða mac forrit keyri á linux.
Leitaðu frekar að því hvað menn nota í staðinn.

Þú þarft að ganga svolítið til verksins eins og þú sért að fara að byggja úr lego kubbum,
Það er hægt að gera allt mögulegt en það bara tekur tíma, en á móti þá lærir þú vonandi allt um það hvernig viðkomandi hlutur virkar og fullt af hugtökum tengdum því sem þú ert að gera.

Það sem þú færð er frábært tæki til að læra á og skilja hvernig hlutirnir í raun virka.

En þetta er töluverð brekka og menn þurfa svolítið mikið af þrjósku til að komast upp.
En gangi þér vel.




coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Linux byrjandi

Pósturaf coldcut » Sun 26. Jún 2011 15:44

Gott svar hjá dorg þó ég sé ekki alveg sammála þessu sem hann segir síðast.

Í dag þá þarftu ekki að hella þér útí kerfin (t.d. Ubuntu, Fedora, Mint) til þess að þau virki því þau virka out of the box og það eina sem ég hef þurft að gera er að segja já við því að hjá mér sé settur upp nVidia-driver.

Hins vegar ef þú ætlar að gera þetta af alvöru eins og virðist vera þá skal ég segja þér hvernig mín reynsla hefur verið upp til þessa.


Ég stóð og horfði á litla þorpið mitt, sem enn og aftur hafði hrunið, og velti því fyrir mér hvort ég gæti bjargað einhverjum ástvinum mínum eða einhverju af dótinu mínu úr rústunum. Sökum nályktar lagði ég ekki í það og ákvað að leggja land undir fót og byggja mér hús í öruggara þorpi. Ég hafði nokkrum sinnum heyrt um þetta þorp en þá var það sveipað dulúð og fullt af goðsögnum. Leiðin í þorpið var strembin þar sem klífa þurfti hátt fjall og svo niður fjallið hinum megin.
Að klífa fjallið var strembið en um leið var hvert skref spennandi. Þegar komið var á toppinn þá opnaðist ný veröld og fjallstoppurinn var í raun engi fullt af sykurpúðum, hamingju og visku. Eftir að hafa eytt nokkrum vikum á fjallstoppnum í það að gera sykurpúðana nákvæmlega eins og ég vildi hafa þá mundi ég eftir því af hverju ég fór í þetta ferðalag og hugsaði með mér að ég þyrfti nú að fara að sjá þetta þorp. Svo ég hélt áfram leið minni í þorpið léttur í spori og með bros á vör. Allt í einu kom ég að fjallsbrúninni og við blasti lóðréttur klettaveggur sem virtist ómögulegt að komast niður. Ég rölti aðeins meðfram brúninni til þess að fullvissa mig um að ekki væri betri leið niður brekkuna og um leið rifjaði ég upp þær skemmtilegu minningar sem ég tæki frá sykurpúða-engjunum. Ég man eftir því þegar ég breytti þeim í fyrsta sinn og gerði þá alla græna í stað hvítra, ég man þegar ég tók tuttugu sykurpúða og breytti þeim í lambalæri og ég man þegar ég gerði teikningu að draumahúsinu mínu sem væri alveg eins og ég vildi að það væri. Draumurinn virtist vera að renna mér úr greipum en ALLT Í EINU rek ég augun í röð hylkja sem skjótast upp og niður klettana til vinstri. Ég fer og gái hvað þetta sé og kemst að því að þetta eru hraðlyftur niður í þorpið. Ég stíg inn í eina og þar heilsar mér virðulegur maður og biður um teikningu að húsinu mínu, ég er hvumsa og velti því fyrir mér hvernig hann vissi af teikningunni, en samt rétti ég honum teikninguna og fyrr en varir erum við komnir niður í þorpið.
Þorpið er fallegt sjávarþorp með stórri baðströnd og húsin í þorpinu eru eins ólík og þau eru mörg. Sumir eru með glugga á klósettinu en aðrir ekki. Sumir vilja hafa svalir en aðrir ekki. Sumir vilja búa í húsi á einni hæð en aðrir vilja búa í húsi á mörgum hæðum. Virðulegi maðurinn, sem ekki enn hefur sagt mér nafn sitt, segjir mér að fylgja sér svo ég finni húsið mitt.

Eftir nokkurra mínútna göngu í gegnum bæinn þá erum við komnir að draumahúsinu mínu! Þriggja hæða hús með stórum bílskúr, sundlaug, TVEIMUR gluggum á hverju klósetti og klósettin eru inanngeng úr herbergjunum.
Virðulegi maðurinn býr sig undir að fara og ég vil gefa honum e-ð fyrir hjálpina en þá segjir hann "Þetta er allt frítt væni minn og vertu nú blessaður!". Ég hugsa með mér "FRÍTT??? Í gamla þorpinu þurfti ég að borga fyrir bygginguna á húsinu mínu og svo þurfti ég að kaupa allt innbúið, ég þurfti að borga fasteignagjöld og samt var húsið mitt alltaf að hrynja! Þessi staður er paradís samanborið við gamla þorpið!"

Nú nokkrum árum seinna þá bý ég ennþá í húsinu mínu sem ég hef breytt smá með tímanum og gæti varla verið ánægðari. Ég fer oft á ströndina og syndi í tærum sjónum og við og við þá tek ég lyftuna upp fjallið og staldra við á sykurpúða-enginu í smá tíma. En ALDREI dettur mér í hug að fara í gamla þorpið mitt aftur þar sem öll hús eru eins, þar er engin tær sjór heldur bara gruggugir drullupollar, húsin hrynja við minnsta skjálfta vegna þess hversu illa þau eru byggð og þorpshöfðinginn ræður hvað þú mátt og mátt ekki gera.



Þessi dæmisaga varð aaaaaaaaðeins of löng but you catch my drift! Svo lýsir meðfylgjandi mynd því ágætlega hvernig þetta getur orðið og var hjá mér en þetta er alls ekki almennt.

Mynd

PS. Myndina skal túlka eins og ég hef alltaf túlkað hana. Þ.e.a.s. þú getur eytt ENDALAUSUM tíma í að breyta config skrám, stilla hitt og þetta, compilea þinn eigin kernel o.s.frv. en sem betur fer þarf þess ekki og ef maður dettur í "fikt-gryfjuna" þá kemst maður uppúr henni á endanum ;)