AntiTrust skrifaði:Splunkunýr HDD, aldrei verið notaður. Var akkúrat mjög hissa að sjá ekkert pre-OS check, en það rann í gegn, activate-aðist og virkar fínt.
Þetta er voða funky, það er einfaldlega happa glappa eftir því hvaða product key þú færð hvort hann gangi beint. Þ.e.a.s. ég hef actually verið með 2x pakka úr sömu sendingu þar sem annar leyfislykillinn virkaði beint, hinn ekki.
Annars má alltaf redda þessu, ef hún segir að leyfislykillinn sé ekki réttur þegar þú ferð í clean install að setja upp stýrikerfið án leyfislykil, fá þannig 30 daga trial, keyra svo diskinn aftur beint á því stýrikerfi og velja þar upgrade.
Það getur verið að einhverjar smá leyfar leynist eftir en þá er það voðalega lítið.
Annars varðandi það að upgrade-a Win 7 í Win 7 þá er það hægt, en þú getur ekki fært þig "niður" um pakka nema með registry-fixi. Þ.e.a.s. átt að geta farið úr Home Basic=>HomePremium=>Professional=>Ultimate án vandræða.
Á sínum tíma setti ég mína vél upp með Professional Triali því mér lá svo á að fá hana í gang, áskotnaðist svo Home Premium löglegur leyfislykill og breytti þá í registryinu þannig að þegar ég setti upgrade diskinn í fyrir Home Premium þá skynjaðist stýrikerfið sem Home Basic í stað Professional og upgradeið rann í gegn.