Málið er að mig langar að vita hvort það sé til auðveld leið að taka afrit af nýuppsettu windows með þeim helstu forritum sem maður vill hafa og geyma það á usb eða dvd disk svo næsta þegar maður straujar þá getur maður bara straujað diskin og sett þetta beint inn með þeim forritum sem maður vill..... kannski er þetta ekki hægt á þægilegan máta en mikið væri þetta þægilegt þar sem það er nú nauðsynlegt að gera heilsubótarstrauj 2var á ári allavegana

Þannig að ef einhver getur bent mér á góða síðu um þetta, eða bara gert góða lýsingu á hvernig þetta er gert, þá væri það vel þegið og örugglega fleirr en ég sem myndu nýta sér það
