Re: EA Releases Source Code For Old Command and Conquer Games
Sent: Fös 28. Feb 2025 16:03
af netkaffi
EA (Jim Vessella, EA Producer) póstaði beint á Reddit
Dear C&C Community,
I hope the past year has treated you well and it’s great to re-connect once again. As you may remember, about a year ago we launched the C&C Ultimate Collection on Steam. This was a positive step towards maintaining the legacy of Command & Conquer, but we always had the ambition to deliver even more C&C franchise improvements to all of you in the community. [Heldur áfram.] https://www.reddit.com/r/commandandconq ... urce_code/
Re: EA Releases Source Code For Old Command and Conquer Games
Sent: Fös 28. Feb 2025 20:06
af appel
Flott hjá þeim. Reyndar finnst mér þessir leikir vera orðnir alltof gamlir þannig að maður njóti þeirra, en nostalgíu-faktorinn er alveg í botni þegar maður hugsar til þessara leikja. Reyndar finnst mér Red Alert 2 (+Yuri's Revenge) vera einn sá besti RTS leikur sem framleiddur hefur verið, hefði viljað sjá hann gefinn út aftur, í sama anda, mjög svipaða grafík og svona og sama gameplay bara ný missions. Var allt downhill eftir RA2.
Re: EA Releases Source Code For Old Command and Conquer Games
Sent: Fös 28. Feb 2025 20:38
af netkaffi
C&C Collection er á 70% afslætti á Steam. Hvet alla til að kaupa til að styðja.
Þeir eru víst búnir að týna source-kóðanum fyrir Red Alert 2 En það væri víst hægt að öfugverkfræðigreina hann. Annars hefur það gerst að kóði hafi verið talinn týndur og hann svo fundist, það var með Diablo 2 minnir mig. Vonandi verður meira að frétta úr C&C heiminum. https://www.reddit.com/r/commandandconq ... ert_2_are/
Fólk er farið að finna eitthvað skemmtilegt í kóðanum.
Re: EA Releases Source Code For Old Command and Conquer Games
Sent: Fös 28. Feb 2025 22:24
af T.Gumm
nú á ég allt collectionið og allt það keypt fyrir löngu, en nú sem vitleysingur spyr ég, hvað þýðir/er þetta open source thingy sem þeir voru að releasa ?
Re: EA Releases Source Code For Old Command and Conquer Games
Sent: Fös 28. Feb 2025 22:30
af netkaffi
Forritunarkóðinn til að búa til leikinn er gefinn út undir ákveðnum formerkjum sem kallast Open Source --- sem þýðir að þú mátt eiga við kóðann og gefa út breyttar útgáfur undir ákveðnum formerkjum eða reglum.