Síða 1 af 1

Spila gamla tölvuleiki í dag?

Sent: Mán 24. Maí 2021 03:45
af jonfr1900
Hvernig fer ég að spila gamla tölvuleiki í dag?

Ég er ekki mikið í þessum nýju leikjum og hef bara áhuga á að spila eldgamla leiki sem ég á nú þegar (þetta er sambland af leti og tímaleysi). Ég ætla að koma mér upp sér leikjatölvu (kannski tveim, eina fyrir það sem ekki keyrir á Windows 10 og aðra með Windows 10) fyrir þetta margir af þessum leikjum hreinlega virka ekki með Windows 10. Jafnvel þó að ég væri að keyra Windows 10 í 32 bita útgáfu, þó væri það væntanlega aðeins betra miðað við vesenið sem ég hef lent í með Windows 10 í 64bita útgáfu, þar sem allir þessir leikir eru 32 bita hvort sem er.

Takk fyrir aðstoðina.

Re: Spila gamla tölvuleiki í dag?

Sent: Mán 24. Maí 2021 07:02
af netkaffi
https://www.dosbox.com

Svo eru margir gamlir endurútgefnir og uppfærðir fyrir Win10 í dag hjá www.gog.com o.fl.

Re: Spila gamla tölvuleiki í dag?

Sent: Mán 24. Maí 2021 12:17
af upg8
Sumar afritunarvarnir á eldri leikjum virka ekki því þær haga sér eins og nasty rootkit og er blokkað þessvegna á öruggari stýrikerfum. Þú getur stundum sótt patch fyrir Windows 10 hjá fyrirtækinu sem gerir afritunarvarnirnar sem voru notaðar í viðkomandi leikjum

Re: Spila gamla tölvuleiki í dag?

Sent: Mán 24. Maí 2021 14:03
af geiri42
Vefsíðan https://www.retrogames.cz inniheldur um 1.500 gamla Áttu- og Níu-leiki (A.K.A. 1980's / 1990's) sem hægt er að spila beint í gegnum vafra. :8)

Re: Spila gamla tölvuleiki í dag?

Sent: Mán 24. Maí 2021 14:12
af jonfr1900
netkaffi skrifaði:https://www.dosbox.com

Svo eru margir gamlir endurútgefnir og uppfærðir fyrir Win10 í dag hjá http://www.gog.com o.fl.


Ég held að flestir leikir sem ég á séu gamlir Windows leikir. Það er keyra á Windows 95 til Windows XP (sem ég á en ekki er lengur hægt að virkja hjá Microsoft).

Re: Spila gamla tölvuleiki í dag?

Sent: Mán 24. Maí 2021 21:26
af audiophile
geiri42 skrifaði:Vefsíðan https://www.retrogames.cz inniheldur um 1.500 gamla Áttu- og Níu-leiki (A.K.A. 1980's / 1990's) sem hægt er að spila beint í gegnum vafra. :8)


Wow! Geggjuð síða. Fullt af leikjum þarna sem ég spilaði sem krakki. :D

Re: Spila gamla tölvuleiki í dag?

Sent: Mán 24. Maí 2021 22:34
af L0ftur
Voodoo emulator

Re: Spila gamla tölvuleiki í dag?

Sent: Þri 25. Maí 2021 21:31
af jonfr1900
Veit einhver hvort að ég gæti notað Debian Linux og síðan Wine til þess að keyra gamla leiki.