Síða 2 af 2

Re: Microsoft Flight Simulator 2020

Sent: Fim 27. Ágú 2020 12:35
af Sydney
bjornvil skrifaði:
Sydney skrifaði:Já fólk hefur verið að tala um að keflavík sé eitthvað böggaður og crashi leikinn hjá fólki, hef bara verið að fljúga frá Reykjavík í staðinn, virkar fínt fyrir allt að A320 (þarf flaps til þess að komast á loft, en rétt sleppur), mæli ekki með að reyna að taka 747 í loft í Reykjavík haha.

BTW allar þotur þurfa flaps fyrir flugtak, sama hvaða flugvelli þú ert að fara frá. Standard á A320 er CONF 2, en má nota CONF 1, 2 eða 3, fer eftir ýmsu.

F-16 þurfti ekki flaps í flugtaki þegar ég var að spila Falcon BMS :fly

Re: Microsoft Flight Simulator 2020

Sent: Fim 27. Ágú 2020 13:31
af bjornvil
Sydney skrifaði:
bjornvil skrifaði:
Sydney skrifaði:Já fólk hefur verið að tala um að keflavík sé eitthvað böggaður og crashi leikinn hjá fólki, hef bara verið að fljúga frá Reykjavík í staðinn, virkar fínt fyrir allt að A320 (þarf flaps til þess að komast á loft, en rétt sleppur), mæli ekki með að reyna að taka 747 í loft í Reykjavík haha.

BTW allar þotur þurfa flaps fyrir flugtak, sama hvaða flugvelli þú ert að fara frá. Standard á A320 er CONF 2, en má nota CONF 1, 2 eða 3, fer eftir ýmsu.

F-16 þurfti ekki flaps í flugtaki þegar ég var að spila Falcon BMS :fly

Haha ok ég þekki ekki procedures á F-16, nennti ekki að læra á hana í Falcon 4.0 í gamla daga :) og ef þú ert með nógu langa flugbraut þarftu tæknilega ekki flapa á farþegaþotum en allavega skammar Airbus mann duglega ef maður reynir að fara í loftið með enga Flapa :megasmile

Re: Microsoft Flight Simulator 2020

Sent: Sun 25. Júl 2021 14:26
af Black
Núna er að verða komið ár síðan leikurinn kom út. Ég prófaði hann í gegnum Gamepass þegar hann kom út og mér fannst allt vera frekar buggað og lélegt í byrjun, eins og eðlilegt er fyrir nýjan leik.

Þið sem eruð búnir að spila hann einhvað finnst ykkur hann vera þess virði ?
Er búið að laga öll þessar height map villur ?
Er Hallgrímskirkja kominn í 3D?
Eru ennþá ljósastaurar á öllum þjóðvegum landsins ?

Eða eru allir að treysta á thirdparty addons og borga helling fyrir.

Re: Microsoft Flight Simulator 2020

Sent: Mán 26. Júl 2021 00:00
af upg8
Það kom norðurlandauppfærsla í síðasta mánuði og það er búið að uppfæra leikinn helling síðan hann kom út og verður áfram gert. Leikurinn er líka að verða mun léttari í keyrslu en hann var þegar hann kom út. Ókeypis Top Gun Maverick DLC væntanlegt á þessu ári og á næsta ári stendur til að bæta við þyrlum í leikinn.
https://www.eurogamer.net/articles/2021-06-17-flight-simulator-gives-denmark-finland-iceland-norway-and-sweden-makeovers-in-latest-world-update

Re: Microsoft Flight Simulator 2020

Sent: Mán 26. Júl 2021 08:59
af Dropi
Black skrifaði:Núna er að verða komið ár síðan leikurinn kom út. Ég prófaði hann í gegnum Gamepass þegar hann kom út og mér fannst allt vera frekar buggað og lélegt í byrjun, eins og eðlilegt er fyrir nýjan leik.

Þið sem eruð búnir að spila hann einhvað finnst ykkur hann vera þess virði ?
Er búið að laga öll þessar height map villur ?
Er Hallgrímskirkja kominn í 3D?
Eru ennþá ljósastaurar á öllum þjóðvegum landsins ?

Eða eru allir að treysta á thirdparty addons og borga helling fyrir.

Öll stóru vandamálin á Íslandi voru löguð frítt af modder mjög snemma og þeir gerðu hellings detail fyrir Reykjavík https://flightsim.to/file/848/iceland-overhaul - ég notaði þetta mod því það pirraði mig allt of mikið hvað height map var vitlaust við strendurnar og tré út um ALLT!

Re: Microsoft Flight Simulator 2020

Sent: Mán 26. Júl 2021 19:48
af mikkimás
Dropi skrifaði:Öll stóru vandamálin á Íslandi voru löguð frítt af modder mjög snemma og þeir gerðu hellings detail fyrir Reykjavík https://flightsim.to/file/848/iceland-overhaul - ég notaði þetta mod því það pirraði mig allt of mikið hvað height map var vitlaust við strendurnar og tré út um ALLT!

Tré? Á Íslandi?

Hvernig fékk MSFS það út að hér væru tré?

Re: Microsoft Flight Simulator 2020

Sent: Mán 26. Júl 2021 20:04
af upg8
það stóð alltaf til að laga Ísland seinna sem þeir gerðu svo í síðasta mánuði, það þarf mannskap í að fara yfir öll gögnin til að gera þetta vel, jörðin er ekki lítil

Re: Microsoft Flight Simulator 2020

Sent: Þri 27. Júl 2021 08:48
af Dropi
mikkimás skrifaði:
Dropi skrifaði:Öll stóru vandamálin á Íslandi voru löguð frítt af modder mjög snemma og þeir gerðu hellings detail fyrir Reykjavík https://flightsim.to/file/848/iceland-overhaul - ég notaði þetta mod því það pirraði mig allt of mikið hvað height map var vitlaust við strendurnar og tré út um ALLT!

Tré? Á Íslandi?

Hvernig fékk MSFS það út að hér væru tré?

AI -ið sem þeir notuðu við að búa til heiminn gefur sér að grænir fletir á gervitunglamyndum séu skóglendi eða tré oftar en ekki. Hér er mikill mosi og annars mjög grænt yfir sumrin, tölvan sá þessi gögn og setti tré út um allt.

Re: Microsoft Flight Simulator 2020

Sent: Lau 07. Ágú 2021 21:11
af SolidFeather
Hvernig eru krakkarnir í dag að græja game pass hér á landi? Mig langar til þess að prófa þennan leik en helst bara fyrir eina evru/dollar. Efast um að ég endist það lengi í honum að 4-5000 kall borgi sig.

:fly :fly

Re: Microsoft Flight Simulator 2020

Sent: Sun 08. Ágú 2021 14:44
af upg8
Flestir eru að setja region á UK, þá getur þú notað flest kredit kort án vandræða

Re: Microsoft Flight Simulator 2020

Sent: Sun 08. Ágú 2021 15:55
af SolidFeather
upg8 skrifaði:Flestir eru að setja region á UK, þá getur þú notað flest kredit kort án vandræða

Hvar stilla menn region-ið?

Re: Microsoft Flight Simulator 2020

Sent: Fös 25. Feb 2022 14:54
af benony13
Smá þráðastuld.

Hvað þarf maður að hafa í huga til að setja saman tölvu sem verður notuð í Flight simulator og síðan þetta hefðbundna unglingadót?

Re: Microsoft Flight Simulator 2020

Sent: Fös 25. Feb 2022 20:10
af vatr9
benony13 skrifaði:Smá þráðastuld.

Hvað þarf maður að hafa í huga til að setja saman tölvu sem verður notuð í Flight simulator og síðan þetta hefðbundna unglingadót?

Ertu að setja saman frá grunni?
Fer að mínu viti svolítið eftir því hvernig upplausn á skjánum verður. Ef það er 1080p þá sleppur þú með meðalleikjatölvu og a.m.k. 16GB minni.
Eftir því sem upplausn og gæði eru meiri þarf auðvitað öflugri vél.
Skjákortin eru aðal flöskuhálsinn og þau eru auðvitað ekki ódýr. Ég slepp með Radeon 5600XT en þarf að tóna niður gæðin á 1440p upplausn.
Það er reyndar svo að þú sleppur með 25 FPS og þar fyrir ofan. Það er enginn að ná svaka tölum í FPS á simmum.
Svo þarf að huga að sæmilega hröðum SSD disk með nógu lausu plássi. Leikjafolderinn hjá mér tekur 200GB.

Re: Microsoft Flight Simulator 2020

Sent: Lau 26. Feb 2022 13:11
af benony13
vatr9 skrifaði:

Já alveg frá grunni.
Það er ca 300þús budget
Hafði samband við að tölvutek og þeir sögðu að 3060 væri eina sem myndi duga. Mér finnst það nokkuð stór fullyrðing.

En gaurinn væri með 1080 skjá, helst boginn en skiptir intel vs amd máli?

Ég hafði hugsað:
ryzen 5 (eða þarf 7?) / intel 5
32gb ram
1tb m2 SSD
2-3tb hdd
Það er bara spurning um skjákort :-k

Re: Microsoft Flight Simulator 2020

Sent: Lau 26. Feb 2022 21:01
af vatr9
Er ekki frá því að 3060 sé lágmarkið í dag.
Svo er ekki höfuðmál hvort það er AMD eða Intel. Ég keypti AMD fyrir ári síðan en þá var það hagstæðast.
Hvet þig til að bera saman örgjörva frá þeim sem eru á svipuðum pening. Fullt til á Youtube af samanburði.
Ekki frá því að ég myndi fara í Intel 12600K í dag.
Heyrðu endilega líka í Kisildal ef þú ert ekki búinn að því.

Re: Microsoft Flight Simulator 2020

Sent: Sun 27. Feb 2022 11:13
af bjoggi
1080 Ti ræður varla við leikinn, þannig að 3060 lágmark