Síða 1 af 1

Hvaða mobile (Android/iOS) leikjum mæliði með?

Sent: Mán 02. Des 2019 01:56
af HalistaX
Bleller feller,

Hvaða mobile leikjum mæliði með á annað hvort Android eða iOS?

Eitthvað svona smá til þess að drepa tímann, you know?

Er sjálfur með AFK Arena, Harvest Land, Pewdiepie's Pixelings og PDP's Tuber Simulator.

Sko... Byrjaði fyrst bara með Tuber Simulator en í honum þarf maður, eins og í öllum mobile leikjum, að eiga svona premium currency og var tilboð einu sinni að ef maður myndi vinna level 47 í AFK Arena þá fengi maður nokkra BUX, eins og það kallast í Pewdiepie leikjunum. Það var allt gott og blessað þannig að ég sótti AFK Arena, en komst fljótt að því að það er ekkert level 47 í AFK Arena en það var um seinann, ég var orðinn hooked á þeim leik og ákvað að henda honum ekki í ruslið útaf því.

Svo stóð í PDP's Pixelings að ef ég næði level 15 í Harvest Land þá fengi ég ca. 300 BUX í Pixelings. Ég veit, ég veit, ég hef brennt mig á þessu áður, en ég hef svo sem ekkert betra með tímann minn að gera þannig að ég ætla að sjá hvort það sé eitthvað að marka þetta í þetta skiptið....

Mæli með AFK Arena samt, getur skipt um server og gert nýjann aðgang þar ef þú fokkar öllu upp á þeim síðasta... ...er sjálfur núna kominn með tvo aðganga og er að spá í þeim þriðja...

OG JÁ, þessir mobile leikir verða stórkostleg fíkn með tímanum og dagurinn ónýtur ef þú nærð ekki að logga þig inn amk einu sinni á dag og ná í Daily Login reward'ið...

Ef þú, kæri lesandi, ætlar þér útí mobile leikina, þá mæli ég með því að tékka á AFK Arena en ef þú ert svona að spá í því að fara útí mobile leikina þá mæli ég með því að þú hættir þeirri hugsun STRAX, setjir símann þinn í Airplane-Mode og vonir innilega að enginn þurfi að ná í þig símleiðis það sem eftir er því þessi fíkn mín í þessa mobile leiki er orðinn að svo miklu skrímsli að ég get ekki með nokkru móti mælt með því að menn hætti sér útí þennan pakka!

Ég hef eytt peningum í þessa leiki en hef þá reglu að eyða aldrei meira en 1000kr í hvern leik á mánaðar fresti.

Endilega komið með tillögur og segið okkur hinum hvað þið eruð að spila á símunum ykkar! :D :happy

Re: Hvaða mobile (Android/iOS) leikjum mæliði með?

Sent: Mán 02. Des 2019 08:14
af ColdIce
Clash of clans, virus war, idle heroes, yahtzee, simcity og gardenscapes og haugur af öðrum.

Re: Hvaða mobile (Android/iOS) leikjum mæliði með?

Sent: Mán 02. Des 2019 09:22
af J1nX
ég spilaði Raider: Origin alveg slatta, var rank 2 á mínum server, svo var ég farinn að eyða aðeins of miklum pening í þetta þannig ég henti honum, en það er no prob samt að vera f2p og ranka hátt, getur farmað gear á fleiri en einum account og svo eru góð rewards í honum

Re: Hvaða mobile (Android/iOS) leikjum mæliði með?

Sent: Mán 02. Des 2019 18:20
af HalistaX
J1nX skrifaði:ég spilaði Raider: Origin alveg slatta, var rank 2 á mínum server, svo var ég farinn að eyða aðeins of miklum pening í þetta þannig ég henti honum, en það er no prob samt að vera f2p og ranka hátt, getur farmað gear á fleiri en einum account og svo eru góð rewards í honum

Váv, sá leikur laggar á símanum hjá mér.......

En var að uninstall'a Harvest Land! Storage area'ð mitt var alltaf að fyllast þannig að ég gat ekki gert neitt svo ég gafst bara upp á þessum sorp FarmVille rip off piece of shit of a game!

Þá er ég laus við eina fíkn, þá er það bara Pewdiepie leikirnir, AFK Arena og eiturlyfjafíknin eftir! Wish me luck!

Re: Hvaða mobile (Android/iOS) leikjum mæliði með?

Sent: Mán 20. Jan 2020 05:31
af HalistaX
Jæja.....

Ég gafst einfaldlega upp á því að reyna að spila leiki í þessum síma mínum og sótti mér BlueStacks Anrdoid Emulator á tölvuna mína í staðinn og spila alfarið Mobile leiki á henni í dag.

Var orðinn helvíti langt leiddur í Mobile leikja fíkninni áður en ég sótti BlueStacks en ef eitthvað þá hefur sú fíkn bara versnað um 500%...

Er ég núna með 8 leiki sem ég nenni ekki að telja upp installaða á BlueStacks núna og er að spila einn þeirra á auka skjánum mínum as we speak....

Magnað hvað þessir Mobile leikir geta verið ávanabindandi, dagurinn er ónýtur ef ég kemst ekki í amk helminginn af þeim á einum degi...

...Shit..

Re: Hvaða mobile (Android/iOS) leikjum mæliði með?

Sent: Þri 21. Jan 2020 16:22
af Halli25
Ingress
Pokemon GO
Wizards Unite
gps leikir svo maður þarf að fara út og ganga til að spila :)