Síða 1 af 1

Steam vs. Epic store

Sent: Sun 31. Mar 2019 12:43
af oskar9
Í leikjaheiminum uppá síðkastið er Epic store búið að vera mikið á milli tannanna á fólki og við félagarnir mikið búnir að spjalla um þetta. Hverjar eru skoðanir Vaktara á þessari framvindu? Sem dæmi bæði Metro exodus og Anno 1800, báðir búnir að vera inná Steam lengi, fá miklar auglýsingar þar inná, enda Steam lang stærstir, svo á síðstu stundu kippir útgefandinn leiknum af steam og hoppar yfir á epic og nýtir sér þar lægri sölugjöld og meiri hagnað af hverju eintaki.

Einnig er "launcherinn" sjálfur búinn að sæta mikilli gagnrýni, lélegt öruggi reikninga, engir fídusar sem allir aðrir hafa, regional pricing sem lætur okkur á Íslandi borga í evrum en ekki dollurum eins og á Steam ( hækkar venjulegan AAA leik um sirka 1000kr 60$ vs 60€)

Hvað finnst ykkur um þetta og sömuleiðis haldið þið að þetta knýi Steam til að lækka sölugjöldin sín til að reyna hindra að útgefendur fari til Epic?

Þó mér líki vel við steam er búðin sem slík að versna til muna, maður finnur varla neitt að viti þar vegna flóðs af lélegum nýjum leikjum og ég virðist ómögulega geta blokkað það gríðarlega magn af einhverju hentai anime romance drasli, alveg sama hvað ég fikta í stillingum og blacklista

Re: Steam vs. Epic store

Sent: Sun 31. Mar 2019 15:05
af GuðjónR
Þó Steam sé þrælböggað þá finnst mér það betra en Epic. Þeir mættu þó gera meiri kröfur til þeirra sem setja leiki þarna inn. Mér finnst líka vont að tveir eða fleiri geti ekki notað library á sama tíma. Tvö börn í sitthvorri tölvunni og þá fer allt í lás, þarft að vera með tvo aðganga.

Re: Steam vs. Epic store

Sent: Sun 31. Mar 2019 15:37
af vesi
Í the Wan show voru þeir einmitt að ræða þetta fyrir viku eða tveim. En meira á þeim nótunum hvort maður væri meira hliðhollur steam eða öðrum búðum, Þar kom fram meðal annars að þeir notuðu steam meira því það væri minni auglýsingar og óþarfi fyrir notandan. sem ég er soldið sammála.
Ég hef bara notað steam og Uplay, mér fynnst steam betra því þar get ég bara opnað leik í launcher og bara hann opnast ekki eins og í uplay þar sem opnar auglýsingu í bakgrunni ofl.

Re: Steam vs. Epic store

Sent: Sun 31. Mar 2019 16:04
af braudrist
Mér finnst það frekar pirrandi þegar þú downloadar uppfærslu fyrir einhvern leik á Epic, þá hefuru ekki hugmynd um hvað var að bætast við eða breytast. Finnst þægilegt að hafa fréttir, uppfærslur, forums og allt það innbyggt á Steam.

Re: Steam vs. Epic store

Sent: Sun 31. Mar 2019 19:13
af kiddi
Steam kerfið sjálft er allan daginn betra þó Epic kerfið lúkki ferlega stílhreint. Annars fagna ég samkeppninni, ekki gott að hafa bara einn risa á markaðnum. Verandi með börn á heimilinu finnst mér þetta family sharing dæmi algjörlega óþolandi og óviðunandi, maður er í raun miklu verr settur með Steam kerfinu heldur en ef maður hefði keypt leikina beint frá sínum útgefendum, því þá væri maður ekki læstur úti þegar börnin vilja spila einhvern af þessum 200+ titlum sem maður á.

Re: Steam vs. Epic store

Sent: Sun 31. Mar 2019 20:57
af Hannesinn
Steam clientinn sjálfur er mikið betri og þroskaðari, og það er ekki hægt að deila um það. Enda kom hann á markaðinn hvenær... 2005?

Helsta umkvörtunarefnið er að Epic séu að semja við útgefendur um að leikirnir verði eingöngu seldir á Epic store í 1 ár, áður en aðrir geti selt hann.
Annað umkvörtunarefnið er svo fragmentation af leikjasafninu, en það byrjaði ekkert með Epic. Sjá Origin, Uplay, GOG, og sambærilega launchera.

Núna erum við væntanlega að ganga í gegnum aðlögunartímabil þar sem að Steam er ekki einn risi, og geti gert það sem hann vill. Eins og að taka 30% hluta af seldum vörum hjá sér. Sony, Nintendo, Android, og Microsoft gera það öll, en munurinn á þeim og Steam er sá að Steam er ekki að þróa platforminn (stýrikerfið/vélbúnaðinn/o.s.fr.) sem leikirnir eða forritin eru hönnuð fyrir og er þess vegna alveg brjálæðislega há prósenta.

Persónulega er ég mun jákvæðari en flestir sem ég ræði þetta við, en fyrstu skrefin verða væntanlega erfið. Ég er allavega byrjaður að setja upp Launchbox / Big Box hjá mér, og að því loknu mun ekki meika spliff á hvaða launcher leikirnir mínir verða.

Re: Steam vs. Epic store

Sent: Sun 31. Mar 2019 22:09
af Minuz1
GuðjónR skrifaði:Þeir mættu þó gera meiri kröfur til þeirra sem setja leiki þarna inn.

Það var svoleiðis, fólk var óánægt með það líka....damned if you do, damned if you don't.
Ekki það að þetta sé ekki réttmæt gagnrýni, en það voru greinilega aðrar raddir sem voru háværari.