Síða 1 af 1

" Commodore 64" hjálp.

Sent: Mið 07. Des 2016 09:22
af muslingur
Fann hana á loftinu, kassettutæki og slatti af leikjum, já það var gaman þá :D, kviknar ljós en ekki á kassettutækinu sem virðist ekki fá straum, grunar endemis tengi. Tengdi hana við tv en fann ekki signal, mynnir að ein skrúfan aftaná sé til að tuna inn. Grunsamlegt tengi, sem kemur úr psu virðist vanta allavega ein pinna sjá mynd (ir) sennilega orsök alls vanda.
Vill einhver reyna að koma þessari í gagnið aftur fyrir mig? :þ

Re: " Commodore 64" hjálp.

Sent: Mið 07. Des 2016 20:12
af upg8
Áttu ekki multimeter? Sýnist að það eigi bara að þurfa 4 pinna í PSU

Re: " Commodore 64" hjálp.

Sent: Mið 07. Des 2016 20:27
af gorkur
Haha! Loksins eitthvað sem ég kann á ;)

Það kviknar ekki ljós á kassettutækinu nema þú sérst að taka up á það (rec). Prófaðu að kveikja á tölvunni og ýta á play á því.

PSU á að vera 4ra pinna.

Hvernig ertu að tengja í sjónvarpið?

Re: " Commodore 64" hjálp.

Sent: Mið 07. Des 2016 20:39
af Saber
PSU tengið er í lagi. C64 notar 7 pinna DIN tengi þar sem búið er að fjarlægja 3 pinna. Það er 5 volt DC á milli pinnanna sem eru nálægt hvorum öðrum og 9 volt AC á milli hinna tveggja.

Re: " Commodore 64" hjálp.

Sent: Fim 08. Des 2016 00:11
af codec
vá hvað maður man eftir þessari. Góðar stundir, leikir og forrit á kubbum og kassetum en það var hægt að afrita þá á milli tveggja kasetu tækja, þá var bylting að fá tvöfalt kassetu tæki til að afrita. Átti eina sem var svo mikið notuð á sínum tíma að plastið ofan á straumbreytinum þar sem logoið er var byrjað að bráðna. Fékk mér svo Amiga, það var gaman.

Re: " Commodore 64" hjálp.

Sent: Fim 08. Des 2016 10:32
af upg8
Hægt að downloada hljóðupptökum og nota bara síma eða iPod í staðin fyrir kasettur, sumar upptökurnar eru þó ekki alveg nógu góðar en þetta er allavega möguleiki