" Commodore 64" hjálp.


Höfundur
muslingur
Ofur-Nörd
Póstar: 252
Skráði sig: Þri 05. Nóv 2013 10:05
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

" Commodore 64" hjálp.

Pósturaf muslingur » Mið 07. Des 2016 09:22

Fann hana á loftinu, kassettutæki og slatti af leikjum, já það var gaman þá :D, kviknar ljós en ekki á kassettutækinu sem virðist ekki fá straum, grunar endemis tengi. Tengdi hana við tv en fann ekki signal, mynnir að ein skrúfan aftaná sé til að tuna inn. Grunsamlegt tengi, sem kemur úr psu virðist vanta allavega ein pinna sjá mynd (ir) sennilega orsök alls vanda.
Vill einhver reyna að koma þessari í gagnið aftur fyrir mig? :þ
Viðhengi
1.png
1.png (2.04 MiB) Skoðað 1538 sinnum
DSC02830.JPG
DSC02830.JPG (1.11 MiB) Skoðað 1538 sinnum
DSC02832.JPG
DSC02832.JPG (1.45 MiB) Skoðað 1538 sinnum
DSC02833.JPG
DSC02833.JPG (746.7 KiB) Skoðað 1532 sinnum



Skjámynd

upg8
vélbúnaðarpervert
Póstar: 998
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 21:32
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: " Commodore 64" hjálp.

Pósturaf upg8 » Mið 07. Des 2016 20:12

Áttu ekki multimeter? Sýnist að það eigi bara að þurfa 4 pinna í PSU


Kóði: Velja allt

"There's an adapter for that"


gorkur
Fiktari
Póstar: 51
Skráði sig: Mið 27. Feb 2013 21:35
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: " Commodore 64" hjálp.

Pósturaf gorkur » Mið 07. Des 2016 20:27

Haha! Loksins eitthvað sem ég kann á ;)

Það kviknar ekki ljós á kassettutækinu nema þú sérst að taka up á það (rec). Prófaðu að kveikja á tölvunni og ýta á play á því.

PSU á að vera 4ra pinna.

Hvernig ertu að tengja í sjónvarpið?



Skjámynd

Saber
FanBoy
Póstar: 742
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:29
Reputation: 7
Staðsetning: 104
Staða: Ótengdur

Re: " Commodore 64" hjálp.

Pósturaf Saber » Mið 07. Des 2016 20:39

PSU tengið er í lagi. C64 notar 7 pinna DIN tengi þar sem búið er að fjarlægja 3 pinna. Það er 5 volt DC á milli pinnanna sem eru nálægt hvorum öðrum og 9 volt AC á milli hinna tveggja.


Intel Core i5 4690K @ ? GHz Custom water cooling Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=53292


codec
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 338
Skráði sig: Fös 07. Ágú 2009 12:53
Reputation: 17
Staða: Ótengdur

Re: " Commodore 64" hjálp.

Pósturaf codec » Fim 08. Des 2016 00:11

vá hvað maður man eftir þessari. Góðar stundir, leikir og forrit á kubbum og kassetum en það var hægt að afrita þá á milli tveggja kasetu tækja, þá var bylting að fá tvöfalt kassetu tæki til að afrita. Átti eina sem var svo mikið notuð á sínum tíma að plastið ofan á straumbreytinum þar sem logoið er var byrjað að bráðna. Fékk mér svo Amiga, það var gaman.



Skjámynd

upg8
vélbúnaðarpervert
Póstar: 998
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 21:32
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: " Commodore 64" hjálp.

Pósturaf upg8 » Fim 08. Des 2016 10:32

Hægt að downloada hljóðupptökum og nota bara síma eða iPod í staðin fyrir kasettur, sumar upptökurnar eru þó ekki alveg nógu góðar en þetta er allavega möguleiki


Kóði: Velja allt

"There's an adapter for that"