Síða 1 af 1

Game controller fyrir Samsung Gear VR (Galaxy S7)

Sent: Fös 20. Maí 2016 10:52
af gunnaro
Vonandi er þetta réttur staður að pósta spurningunni. Þið látið mig vita ef þetta á heima annarsstaðar.

Daginn,

Veit einhver um leikja stýripinna sem styður/hægt er að nota með Samsung Gear VR gleraugunum?
Þá eitthvað sem hægt er að kaupa hér á klakanum?

Re: Game controller fyrir Samsung Gear VR (Galaxy S7)

Sent: Fös 20. Maí 2016 13:05
af HalistaX
Er ekki Bluetooth í PS3/PS4 pinnunum? Ekki bara hægt að sækja sér emulator fyrir þessa stýripinna á Google Play? Myndi veðja á að það sé hægt :D

Re: Game controller fyrir Samsung Gear VR (Galaxy S7)

Sent: Fös 20. Maí 2016 15:48
af wicket
Virðist vera upp og ofan hvort að PS3 stýripinnar virki, eitthvað Bluetooth vesen með pörun þar. PS4 virka en möppun takka er vitlaus og því þarftu app til að mappa takanna uppá nýtt sem er smá maus en lúxusvandamál.

Ég keypti Ouya stýripinna á slikk af ebay, hann svínvirkar. Annars eru það bara eiginlega flestir Bluetooh controllerar sem virka. Margir ánægðir með MOGA stýripinnana.

Re: Game controller fyrir Samsung Gear VR (Galaxy S7)

Sent: Fös 20. Maí 2016 16:06
af kjartanbj
Ég er með SteelSeries Stratus XL , virkar flott

Re: Game controller fyrir Samsung Gear VR (Galaxy S7)

Sent: Fös 20. Maí 2016 21:09
af Viggi
Gat tengt ps4 pinnann við símann en hann virkaði ekki í leiknum sem ég ættlaði að spila. Hvaða mapping app er best að nota?

Re: Game controller fyrir Samsung Gear VR (Galaxy S7)

Sent: Fös 20. Maí 2016 23:01
af daremo
Það er ekki hægt að nota PS stýripinna með Gear VR nema að roota símann.
Ég keypti einn svona: http://www.ebay.co.uk/itm/321944724412 sem virkar mjög vel.

Re: Game controller fyrir Samsung Gear VR (Galaxy S7)

Sent: Lau 21. Maí 2016 00:13
af Viggi
Náði mér í sixaxis controller appið og rootaði símann en vildi ekki virka. Vill nota þessa controlera sem maður á þar sem þetta er frekar limited vr dæmi

Re: Game controller fyrir Samsung Gear VR (Galaxy S7)

Sent: Þri 24. Maí 2016 06:56
af Framed
Ég keypti MOGA pro power af Amazon rétt rúmlega 110$ komið til mín. Virkar vel. Það eru til ódýrari tæki frá þeim sem eiga líka að virka.

Mér gekk ekki vel að finna gamepad hérna heima sem er staðfest að virki með gear vr. Granted þá eyddi ég ekki mjög miklum tíma í að leita. Hringdi á nokkra staði og leitaði á vefsíðum.

Re: Game controller fyrir Samsung Gear VR (Galaxy S7)

Sent: Þri 24. Maí 2016 12:45
af Viggi
daremo skrifaði:Það er ekki hægt að nota PS stýripinna með Gear VR nema að roota símann.
Ég keypti einn svona: http://www.ebay.co.uk/itm/321944724412 sem virkar mjög vel.


Henti mér á þennann hér.
http://www.ebay.com/itm/Bluetooth-VR-Bo ... 2200822354

Hvaða leiki eru menn annars að spila á þessu sem notar controller?

Re: Game controller fyrir Samsung Gear VR (Galaxy S7)

Sent: Þri 24. Maí 2016 14:38
af Xovius
Það er bara almennt mun þægilegra að hafa controller á þessu til að stýra öllu í stað skynjarans á hliðinni.
En er einhver leið til að re-orienta allt kerfið beint upp? Nota þetta oft til að horfa á þætti á kvöldin uppí rúmi og ég get re-orientað playback skjáinn en svo þarf ég alltaf að setjast upp og horfa lárétt til að skipta um þætti. #Lúxusvandamál