Síða 1 af 2

Gta V online vesen

Sent: Þri 14. Apr 2015 22:09
af halli1987
Er ég einn um að geta ekki joinað nein job eða aðra meðlimi er að verða frekar pirraður á þessu er bara einn að spila í freeroom og get ekkert gert.

Re: Gta V online vesen

Sent: Þri 14. Apr 2015 22:22
af capteinninn
Sama hér, er að reyna að joina félaga minn en gengur ekki.

Sé ekkert um þetta á reddit eða neinstaðar, hélt þetta væri bara ég.

Serverarnir líklega í kleinu.
Félagi minn er samt að spila og sér fullt af öðru fólki. Skil ekkert í þessu

Re: Gta V online vesen

Sent: Þri 14. Apr 2015 22:33
af halli1987
sennilega er þetta server vesen sem vonandi reddast á næstu dögum. vona það allavega, langar svo mikið að fara að spila þetta online.

Re: Gta V online vesen

Sent: Þri 14. Apr 2015 22:46
af capteinninn
Já sama hér, er búinn að klára sp í honum 2x á xbox og er ekkert að farast úr spenning að klára það aftur.

Prófaði að opna port á router sem ég fann á rockstar síðunni en það virkaði ekki, félagi minn sem sér fullt af fólki er ekki búinn að gera neitt og er með þessi port lokuð.

Get ekki séð hvað vandamálið er, er ekki að sjá neina í vandræðum með þetta þannig að mér finnst skrítið ef þetta er server vandamál.

Re: Gta V online vesen

Sent: Þri 14. Apr 2015 23:04
af Danni V8
Hjá hvaða símafyrirtæki eruð þið? Ég er búinn að taka eftir því að af þeim sem ég þekki eru þeir sem eru ekki með speedtouch router ekki að lenda í neinum vandræðum, en við sem erum hjá Símanum með Speedtouch getum ekkert joinað

Re: Gta V online vesen

Sent: Þri 14. Apr 2015 23:06
af capteinninn
Er hjá Hringdu með TP-Link 300M router

Félagi minn er með sinn eigin router, Cisco held ég

Re: Gta V online vesen

Sent: Þri 14. Apr 2015 23:34
af Danni V8
Er að verða vitlaus. Og síðan virkar ekkert að opna port í þessu Technicolor drasli.

Re: Gta V online vesen

Sent: Þri 14. Apr 2015 23:42
af capteinninn
Danni V8 skrifaði:Er að verða vitlaus. Og síðan virkar ekkert að opna port í þessu Technicolor drasli.


Þetta virðist samt ekki vera port vandamál miðað við það að öll portin eru lokuð hjá félaga mínum sem er online og getur séð aðra spilara og alltsaman

Re: Re: Gta V online vesen

Sent: Þri 14. Apr 2015 23:42
af KermitTheFrog
Danni V8 skrifaði:Er að verða vitlaus. Og síðan virkar ekkert að opna port í þessu Technicolor drasli.


Ég hef aldrei lent í veseni með port forwarding á þessum speedtouch routerum.

Re: Re: Gta V online vesen

Sent: Mið 15. Apr 2015 00:37
af Danni V8
KermitTheFrog skrifaði:
Danni V8 skrifaði:Er að verða vitlaus. Og síðan virkar ekkert að opna port í þessu Technicolor drasli.


Ég hef aldrei lent í veseni með port forwarding á þessum speedtouch routerum.


Ég veit ekki hvað málið er, en ég set inn portin sem á að forwarda, assigna það á mína tölvu og set það í gang. Routerinn segir að portin eru forwörduð. Slekk á firewall í tölvunni og fer á port test síðu og kemst að því að portið er ekkert opið, þó að routerinn segir að það sé opið.

Re: Gta V online vesen

Sent: Mið 15. Apr 2015 01:19
af GullMoli
Ég er hjá Hringdu með ljós. Ég get alveg spilað online ekkert mál, lenti fyrir tilviljun með félaga mínum á server. Hef samt heyrt af vandræðum hjá öðrum með að joina fólk.

Re: Gta V online vesen

Sent: Mið 15. Apr 2015 02:17
af Desria
Get ekki joinað sessions með öðru fólki né joinað vinum. Þetta er að gera mig geðbilaðan. Er hjá Hringdu.

Re: Gta V online vesen

Sent: Mið 15. Apr 2015 12:03
af Sultukrukka
Hjá Símanum og er með Technicolor router, búinn að opna þau port sem Rockstar vill að ég opni fyrir, test sýna að þau port eru opin. Veit ekki hvort að það sé málið samt.

Næ ekki að joina friends og er settur í lobby þar sem ég einn er til staðar og enginn getur joinað.

Mjög skemmtó allt saman. Henti inn ticket og er að vona að þeir hjá rockstar leysa þetta.

Re: Gta V online vesen

Sent: Mið 15. Apr 2015 12:09
af Moldvarpan
Þetta er vandamál í serverum Rockstar, ekki hjá notendum.

Hef séð á spjallborðum að það eru notendur að lenda í þessu víðsvegar um heiminn.

"Unable to connect" vesen.

Re: Gta V online vesen

Sent: Mið 15. Apr 2015 17:02
af Flexinn
Vodafone hér, Zhone router, ljósnet. Félagi minn er með sömu tengingu og ég (sama router líka), hann getur joinað online með fólki en ég lendi í þessu "Empty room" galla. Get heldur ekki joinað hann né hann mig.

Re: Gta V online vesen

Sent: Mið 15. Apr 2015 17:03
af Flexinn
Einn sem benti mér á þennann þráð : http://steamcommunity.com/app/271590/di ... cation=ufi

Einhver sem talar um að hann uppfærði móðurborðsdriverinn og þá virkaði þetta

Re: Gta V online vesen

Sent: Mið 15. Apr 2015 20:03
af Danni V8
Flexinn skrifaði:Einn sem benti mér á þennann þráð : http://steamcommunity.com/app/271590/di ... cation=ufi

Einhver sem talar um að hann uppfærði móðurborðsdriverinn og þá virkaði þetta


Prófaði þetta en virkaði ekki fyrir mig :(

Re: Gta V online vesen

Sent: Mið 15. Apr 2015 20:04
af brain
Er með eitt skrítið dæmi

Sonur minn er að lenda í að geta ekkert spilað MP, nær ekki að joina vini eða neitt.

Nema, hann hefur VPN aðgang í mína vél, og þar getur hann allt ?? bara laggar aðeins.

Hann er hjá Tal, en ég er hjá Símanum.

Re: Gta V online vesen

Sent: Mið 15. Apr 2015 20:46
af Moldvarpan
Mér finnst það afar hæpið að þetta lagist með uppfærslu móðurborðs driver-a.

Hinsvegar er Rockstar að vinna í að laga þetta, t.d. um miðjan daginn í dag þá byrjaði ég að sjá aðra inní sama session og ég, en ennþá eh böggur í að joina missions og þess háttar.

Þetta hlýtur að detta inn á næstu sólahringum. Fyrir utan þetta, að þá er ég mjög ánægður með leikinn.

Re: Gta V online vesen

Sent: Mið 15. Apr 2015 20:54
af Danni V8
Já er svona að vona það. Langar að kaupa mér hús í Online en get það ekki fyrr en ég verð level 5. Er búinn að vera að taka race mission einn og fá wanted level og missa það til að fá smá RP en það virkar mjöög hægt þegar maður er svo gott sem einn að spila multiplayer :P

Re: Gta V online vesen

Sent: Mið 15. Apr 2015 21:09
af capteinninn
Ég prófaði að ná í nýja drivera en það virkaði ekki neitt eins og ég hélt

Ég er reyndar farinn að sjá einn annan player á server og gat keyrt hjá honum og svoleiðis en ekkert joinað félaga minn

Þurfum bara að bíða eftir fix

Re: Gta V online vesen

Sent: Mið 15. Apr 2015 21:16
af Sucre
ég prófaði að tengjast með Avast secureline vpn og þá virkaði allt er hja vodafone en það laggar allt frekar mikið með þessu vpn

Re: Gta V online vesen

Sent: Mið 15. Apr 2015 22:06
af Sultukrukka
Same, virkar með VPN

Re: Gta V online vesen

Sent: Mið 15. Apr 2015 23:20
af Moldvarpan
Er byrjaður að smá töluvert af Invite-um inn í mission, en náði að tengjast áðan í nokkrar sekúndur, svo slitnaði það.

Þetta er að koma hægt og rólega. Ég hef hvort eð er spilað tonn af Online í PS3, en aldrei spilað mikið Story mode.

Ég get því gefið þessu tíma áður en ég verð orðinn óþolinmóður ;)

Leikurinn er bara svoooo flottur í PC!!!!

Re: Gta V online vesen

Sent: Fim 16. Apr 2015 00:00
af Xovius
Ég er að fá þetta með Technicolor router frá Tal á ljósnetinu.