Pósturaf tms » Sun 08. Ágú 2004 12:05
hvernig væri að hafa competition í einhverju öðru en bara leikjum? ég hef aldrei mætt á skjálfta þetta ár sem ég hef átt heima hérna, en miðað við það sem aðrir segja mér er þetta stórsett allt um leiki. Ég fór einusinni á LAN í noregi þar sem uþb. 400 mættu og það var meðal annars haldið compo í photo manipulation, brjótast inn á windows 2000 server og hver væri með flottasta moddaða turninn. Hinumeginn í höllinni var allt sem svangur tölvunörd gat óskað sér, tölvubúðir voru með bása þar sem þeir montuðu sér yfir vörunum þeirra, og auðvitað var pulsu- og pizzushoppa á staðnum. Þegar tvö bestu liðin í einhverjum leik voru að keppa var leikurinn sýndur á stórum skjá þannig að allir sáu hvað væri að ske, og annað kvöld kom eitthvað techno/trance pakk uppá sviðið til að spila. Maður þarf ekki nausynlega að vera sveittur 14 ára cs spilar til að fara á LAN, ég fer aðalega til að kynnast fólki og félagslífinu. (og til að vinna alla í BF: desert combat)