Síða 2 af 2

Re: Fallout 4 vandræði!

Sent: Fim 12. Nóv 2015 02:16
af braudrist
Yep, þetta er fáránlegt. Game physics engine-ið og eitthvað fleira er tengdt FPS-inu, ef þú limitar FPS-ið í 60 þá ætti þetta að lagast.

Re: Fallout 4 vandræði!

Sent: Fim 12. Nóv 2015 02:25
af Hnykill
Sko.. það sem leikjaframleiðendur verða að fara að gera sér grein fyrir er að 60 FPS er ákjósanlegur kostur að ná í flottum leik með góðum vélbúnaði á bakvið.. en að takmarka það við það, og eingöngu það er bara eitthvað sem verður að fara, og það helst strax !

Hvernig væri að bjóða Counter strike spilurum 60 FPS læsingu og segja svo bara.. " já en það er betra svona" ... yrðu menn sáttir ?

Ég er t.d með 144Hz skjá. góða tölvu, og svo kaupi ég leik sem "lofar að halda mér stöðugum í 60 FPS" á meðan ég spila ? ..ég keypti ekki vélina mína uppá það.. og þegar maður opnar fyrir hærra FPS í þessum leikjum.. þá bara fljúga hlutir upp í kringum mann af þurru.. lásar pikkast á ofurhraða.. fólk talar og er búið áður en ég veit hvað er verið að segja..

er svona flókið fyrir þessa leikjaframleiðendur sem velta b.t.w billjónum á ári að hugsa smá ?? hvaðan kemur þessi 60 FPS hugsun spyr ég ??... að "ná" 60 FPS átti að vera takmarkið fyrir vélbúnaðinn... en að "takmarka" hann við það er að verða vandamálið í dag ! :face

Re: Fallout 4 vandræði!

Sent: Fim 12. Nóv 2015 16:19
af Galaxy
Ég spila leikinn með VSYNC off í ini og cappa leikinn með RivaTuner. Hann helst 60fps og helst nákvæmlega þar þangað til ég horfi í einhverja ákveðna átt á mjög undarlegum stöðum þá droppar framerate í 40-50

EDIT: Lagaðist allt eftir að ég fiktaði í FalloutPrefs í smá tíma.

Re: Fallout 4 vandræði!

Sent: Fim 12. Nóv 2015 23:18
af kiddi
Mig grunar að þetta FPS-lock sé tengt því að leikurinn notar framerateið sem klukku til að keyra physics vélina í leiknum. Þetta er auðvitað risa hönnunargalli en liggur samt í augum uppi miðað við vandamálin sem fólk er að lenda í. Til þess að svona stór og mikill, flókinn leikur með helling af physics / gravity í gangi þá þarf leikurinn að framkvæma ákveðið gangverk / cycle til að hreyfa tíma leiksins áfram og halda öllu í synci. Þetta sannaðist þegar einhverjum tókst að koma leiknum í 144fps og þá tvöfaldaðist ganghraði leiksins.