Hvort ertu með Vista eða XP á þessari nýju vél? Ef þú ert með Vista núna en varst með XP á gömlu þá segir það ýmislegt þar sem margt sem virkar í XP virðist virka illa eða bara ekki baun í bala í Vista. En annars þá ráðlegg ég þér að prófa að keyra SpeedFan, kannski er eitthvað hitavandamál eða eitthvað slíkt, gætir líka prófað aðra leiki og athugað hvað gerist með þá. Hef lent í því að ég var alltaf að detta úr einum leik og fattaði aldrei hvað málið var, engin villuskilaboð eða neitt svoleiðis, en svo prófaði ég annan leik og fékk þar einhver villuskilaboð og það var nóg þar sem það benti mér á vandan

Síðan sakar ekki að keyra memtest á minninu. Og svo er líka mjög sniðugt að uppfæra alla drivera og jafnvel athuga með biosinn ef allt annað klikkar.
Þegar ég keypti núverandi tölvu mína (í undirskriftinni) þá var vesen með minnið, memtest sagði það vera gallað, fór þá og fékk aðra tegund en sama vesen með það líka

Þá prófaði ég að uppfæra biosinn og þá var minnið í lagi

Biosinn studdi bara ekki minniskubbana en það gerði sá nýjasti hins vegar

Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]