Síða 4 af 6

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Mið 13. Jan 2021 11:57
af addon
linenoise skrifaði:Kenning:
Tölvan mín hegðar sér á ákveðin hátt eftir að hún missir samband við rafmagn. Ef ég kveiki á henni eftir að hafa tekið hana úr sambandi eða notað rafmagnsrofann aftan á henni þá gerir hún þetta:
Kveikir á viftunum á fullu blasti en kveikir ekki á sér, slökknar svo eftir 3 sekúndur. Ég þarf að ýta á power takkann aftur innan nokkura sekúnda (man ekki hvort það er þegar vifturnar eru í gangi eða ekki, en alla vega skömmu eftir fyrsta startið) og þá bootar hún.

Ætli það sé sama hegðun eða svipuð sem OP var að lenda í?

þetta eru líklegast þéttarnir í aflgjafanum (sérstaklega ef hann er öflugur) að taka "of mikið" til sín, en þeir halda hleðslunni í sér í einhvern tíma þannig að næst þegar þú kveikir þurfa þeir ekki að draga jafn mikið, skeður stundum hjá mér að það slær út þegar ég set mína í samband, en seinna startið er ekkert ves. Ætti ekki að vera galli þar sem ég hef lent í þessu með fleiri en einn aflgjafa frá viðurkenndum framleiðndum

hef reyndar aldrei séð að það hafi áhrif tölvu megin í kerfinu (eftir aflgjafann).

Re: [Darwin-Vaktar Award] @.is

Sent: Mið 13. Jan 2021 12:56
af Viktor
gRIMwORLD skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Djöfull er orðið þreytt þegar fólk fer beint á internetið til að tuða, í stað þess að ræða við þjónustuaðilann og gefa honum tækifæri til að laga vandamálið eða koma til móts við viðkomandi.

Má nú flokka þennan póst sem tuð líka þar sem OP er oftar en einu sinni búinn að backtracka með upphaflegt innlegg, búinn að breyta nafni á þráði og alles :happy

Mér finnst bara mjög mikil þörf á þessu tuði mínu.

Ótrúlega sorglegt hvernig margir koma fram við fólk í þjónustustörfum sem er að reyna að gera sitt besta.

Re: [Darwin-Vaktar Award] @.is

Sent: Mið 13. Jan 2021 14:09
af grimurkolbeins
GuðjónR skrifaði:
grimurkolbeins skrifaði:En núna sit ég heima (tölvulaus aftur) og brjálađur.
Vildi bara segja þetta hérna afþví þetta kalla ég ekki góđ vinnubrögđ.

grimurkolbeins skrifaði: ég er farin ađ halda ađ tölvan mín sé andsetinn..
..þađ er augljóst ađ þetta er ekki @.is ađ kenna heldur draugagangi hoho.... :-k

Tröll ársins 2021

Guđjón ég reyndi ađ breyta titlinum en þá var búiđ ađ breyta honum fyrir mig, vona ađ ég hafi ekki sært þig og fleiri og enn og aftur @.is er GÆĐA FYRIRTÆKI

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Mið 13. Jan 2021 15:03
af grimurkolbeins
addon skrifaði:
linenoise skrifaði:Kenning:
Tölvan mín hegðar sér á ákveðin hátt eftir að hún missir samband við rafmagn. Ef ég kveiki á henni eftir að hafa tekið hana úr sambandi eða notað rafmagnsrofann aftan á henni þá gerir hún þetta:
Kveikir á viftunum á fullu blasti en kveikir ekki á sér, slökknar svo eftir 3 sekúndur. Ég þarf að ýta á power takkann aftur innan nokkura sekúnda (man ekki hvort það er þegar vifturnar eru í gangi eða ekki, en alla vega skömmu eftir fyrsta startið) og þá bootar hún.

Ætli það sé sama hegðun eða svipuð sem OP var að lenda í?

þetta eru líklegast þéttarnir í aflgjafanum (sérstaklega ef hann er öflugur) að taka "of mikið" til sín, en þeir halda hleðslunni í sér í einhvern tíma þannig að næst þegar þú kveikir þurfa þeir ekki að draga jafn mikið, skeður stundum hjá mér að það slær út þegar ég set mína í samband, en seinna startið er ekkert ves. Ætti ekki að vera galli þar sem ég hef lent í þessu með fleiri en einn aflgjafa frá viðurkenndum framleiðndum

hef reyndar aldrei séð að það hafi áhrif tölvu megin í kerfinu (eftir aflgjafann).

Þetta er mjög góð pæling, spurning um að skipta um aflgjafa, en allavega still going \:D/

Re: [Darwin-Vaktar Award] @.is

Sent: Mið 13. Jan 2021 16:52
af gRIMwORLD
Sallarólegur skrifaði:
gRIMwORLD skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Djöfull er orðið þreytt þegar fólk fer beint á internetið til að tuða, í stað þess að ræða við þjónustuaðilann og gefa honum tækifæri til að laga vandamálið eða koma til móts við viðkomandi.

Má nú flokka þennan póst sem tuð líka þar sem OP er oftar en einu sinni búinn að backtracka með upphaflegt innlegg, búinn að breyta nafni á þráði og alles :happy

Mér finnst bara mjög mikil þörf á þessu tuði mínu.

Ótrúlega sorglegt hvernig margir koma fram við fólk í þjónustustörfum sem er að reyna að gera sitt besta.

Allt gott og blessað, meira að benda á að vaktarar voru búnir að segja sitt og OP var búinn að gera úrbætur, þitt innlegg var svona meira "dem missti af tuðglugganum, verð samt að koma þessu að og halda þessu lifandi!" sem að mínu mati er ekkert skárra.

Hef unnið í nákvæmlega þessum þjónustustörfum og dílað við nær öll þjónustufyrirtæki sem finnast á landinu í þessum geira líka sem viðskiptavinur. En ég get þó ekki sagt að OP hafi á nokkrum tímapunkti komið illa fram, hlaupið á sig kannski, en hann var ekki lengi að taka gagnrýni og leiðrétta. Það er frekar sjalfgæfara en hitt. Þannig að mitt innlegg sem þú quotar hér að ofan stendur.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Mið 13. Jan 2021 17:34
af CendenZ
Er ég að skilja þetta rétt, vandamálið var eldgamall bios sem fúnkeraði ekki við nýja íhluti ?
:-k

Notandinn er búinn að eyða upphafsinnlegginu, þannig það vantar nokkur púsl í þetta.
ps, vinsamlegast eyðið ekki út innleggjum.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Mið 13. Jan 2021 17:44
af GuðjónR
CendenZ skrifaði:Er ég að skilja þetta rétt, vandamálið var eldgamall bios sem fúnkeraði ekki við nýja íhluti ?
:-k

Notandinn er búinn að eyða upphafsinnlegginu, þannig það vantar nokkur púsl í þetta.
ps, vinsamlegast eyðið ekki út innleggjum.

Búinn að restora það og loka fyrir frekari breytingar.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Mið 13. Jan 2021 17:46
af gRIMwORLD
Í stuttu máli,

1. OP var í vandræðum með vélina heima hjá sér
2. fékk einhvern til að kíkja á hana, var í lagi í einn dag
3. fór með til seljanda, þurfti að bíða yfir helgi,var í lagi í testi hjá seljanda
4. var í ólagi strax aftur heima hjá honum
5. póstaði á vaktinni
6. fór með hana aftur til seljanda, nú með skjá og allt saman, aftur í lagi
7. aftur í ólagi þegar hann kom heima
8. mikið gagnrýndur af öðrum vökturum, tók það til sín og lagaði pósta
9. var svo mysteriously í lagi þegar ég kíkti á hana. uppfærði samt bios og útilokaði aðra hluti.

case closed

Happy days :fly

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Mið 13. Jan 2021 18:28
af grimurkolbeins
gRIMwORLD skrifaði:Í stuttu máli,

1. OP var í vandræðum með vélina heima hjá sér
2. fékk einhvern til að kíkja á hana, var í lagi í einn dag
3. fór með til seljanda, þurfti að bíða yfir helgi,var í lagi í testi hjá seljanda
4. var í ólagi strax aftur heima hjá honum
5. póstaði á vaktinni
6. fór með hana aftur til seljanda, nú með skjá og allt saman, aftur í lagi
7. aftur í ólagi þegar hann kom heima
8. mikið gagnrýndur af öðrum vökturum, tók það til sín og lagaði pósta
9. var svo mysteriously í lagi þegar ég kíkti á hana. uppfærði samt bios og útilokaði aðra hluti.

case closed

Happy days :fly

Happy days \:D/

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Mið 13. Jan 2021 19:30
af rapport
Hvar er skjaldborgin?

Re: [Málið ekki leyst] @.is

Sent: Mið 20. Jan 2021 22:47
af grimurkolbeins
Jæja þá er málið officialy ekki leyst.... :(
Núna er vélin að slökkva á sér af og til, kanski á sólahringsfresti (nei er ekki með stillt að hún slökkvi á sér ákveðnum tímapunkti)
Og núna er nýjasta nýtt að hún er að frosna svona af og til, hvað getur verið í gangi, mínar pælingar er að aflgjafinn sé eithvað (funky eða bilaður)
eða móðurborðið en ég vill bara fá að vita hvað er að....

Re: [Málið ekki leyst] @.is

Sent: Mið 20. Jan 2021 23:34
af Brimklo
grimurkolbeins skrifaði:Jæja þá er málið officialy ekki leyst.... :(
Núna er vélin að slökkva á sér af og til, kanski á sólahringsfresti (nei er ekki með stillt að hún slökkvi á sér ákveðnum tímapunkti)
Og núna er nýjasta nýtt að hún er að frosna svona af og til, hvað getur verið í gangi, mínar pælingar er að aflgjafinn sé eithvað (funky eða bilaður)
eða móðurborðið en ég vill bara fá að vita hvað er að....

Gamli farðu þá og láttu eh fagaðila kíkja á þetta! Sýnist allir hérna vera búnir að koma með öll svör.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Mið 20. Jan 2021 23:41
af grimurkolbeins
Núna er hún að restarta sér inní miðjum leik, hvað kallaru fagaðila ? er búin að láta 2 gæja á vaktinni kíkja á þetta hjá mér, er búin að fara tvisvar sinnum uppí @.is að athuga hvað vandamálið er......

-_-

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 00:30
af Brimklo
grimurkolbeins skrifaði:Núna er hún að restarta sér inní miðjum leik, hvað kallaru fagaðila ? er búin að láta 2 gæja á vaktinni kíkja á þetta hjá mér, er búin að fara tvisvar sinnum uppí @.is að athuga hvað vandamálið er......

-_-

T.d. Kísildalur. Annars hefði ég nú aldrei borgað einhverjum af vaktinni til að kíkja til mín.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 00:34
af Klemmi
Brimklo skrifaði:
grimurkolbeins skrifaði:Núna er hún að restarta sér inní miðjum leik, hvað kallaru fagaðila ? er búin að láta 2 gæja á vaktinni kíkja á þetta hjá mér, er búin að fara tvisvar sinnum uppí @.is að athuga hvað vandamálið er......

-_-

T.d. Kísildalur. Annars hefði ég nú aldrei borgað einhverjum af vaktinni til að kíkja til mín.

Alveg rétt, það eru bara vitleysingar sem vita ekkert um tölvur hérna.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 00:37
af Frussi
Ein pæling, ertu með löglegt eða krakkað windows?

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 00:41
af Brimklo
Klemmi skrifaði:
Brimklo skrifaði:
grimurkolbeins skrifaði:Núna er hún að restarta sér inní miðjum leik, hvað kallaru fagaðila ? er búin að láta 2 gæja á vaktinni kíkja á þetta hjá mér, er búin að fara tvisvar sinnum uppí @.is að athuga hvað vandamálið er......

-_-

T.d. Kísildalur. Annars hefði ég nú aldrei borgað einhverjum af vaktinni til að kíkja til mín.

Alveg rétt, það eru bara vitleysingar sem vita ekkert um tölvur hérna.

Hahaha neinei. Þeir eru nú margir sem kunna sitt hérna, finnst bara gáfulegra að þjónustuaðili beri ábyrgð á verkinu en einhver Jón úti í bæ.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 01:01
af grimurkolbeins
Frussi skrifaði:Ein pæling, ertu með löglegt eða krakkað windows?

Er með löglegt.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 01:04
af grimurkolbeins
Brimklo skrifaði:
Klemmi skrifaði:
Brimklo skrifaði:
grimurkolbeins skrifaði:Núna er hún að restarta sér inní miðjum leik, hvað kallaru fagaðila ? er búin að láta 2 gæja á vaktinni kíkja á þetta hjá mér, er búin að fara tvisvar sinnum uppí @.is að athuga hvað vandamálið er......

-_-

T.d. Kísildalur. Annars hefði ég nú aldrei borgað einhverjum af vaktinni til að kíkja til mín.

Alveg rétt, það eru bara vitleysingar sem vita ekkert um tölvur hérna.

Hahaha neinei. Þeir eru nú margir sem kunna sitt hérna, finnst bara gáfulegra að þjónustuaðili beri ábyrgð á verkinu en einhver Jón úti í bæ.

Það er ekkert vitlaust en ég vinn á tölvunni minni og má varla við því að hún sé uppí @.is í einhverja daga/vikur, mér langar bara að finna út hvað er að valda þessu og inná vaktinni eru lang mestu líkurnar á að ég finni lausn.... Útaf því að hér eru jú mestu nördar landsins.
:megasmile

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 09:46
af gunni91
Þetta er voða erfitt þegar svona bilanir koma upp, hvað þá þegar söluaðili er í vandræðum með að gera við vélina.

Ég persónulega myndi alltaf prufa að strauja tölvuna og setja upp windows upp aftur, vera viss um að allir driverar séu í lagi o.s.f.

Varstu búinn að kanna hvort hitastigið á CPU og GPU sé ok?

Auðvitað á Att að klára málin fyrir þig en ef þetta er software related vesen er lítið hægt að klína ábyrgðinni yfir á Att.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 10:59
af mjolkurdreytill
gunni91 skrifaði:Þetta er voða erfitt þegar svona bilanir koma upp, hvað þá þegar söluaðili er í vandræðum með að gera við vélina.

Ég persónulega myndi alltaf prufa að strauja tölvuna og setja upp windows upp aftur, vera viss um að allir driverar séu í lagi o.s.f.

Varstu búinn að kanna hvort hitastigið á CPU og GPU sé ok?

Auðvitað á Att að klára málin fyrir þig en ef þetta er software related vesen er lítið hægt að klína ábyrgðinni yfir á Att.

Þú gerir þér vonandi grein fyrir því að þráðurinn ber fyrirsögnina "MÁLIÐ LEYST".

Lestu í gegnum þetta til að sjá hvert vandamálið var.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 11:00
af C2H5OH

Já myndi skoða þetta að strauja og setja upp windows aftur og skoða drivera og fleira. Gæti mögulega leyst eitthvað.

Reynslusaga (alls ekki að segja að þetta sé sama vandamál og þitt):
Eftir uppfærslu hjá mér á móðurborði og CPU var tölvan/plexserverinn hjá mér með "svipað" vandamál(hann er semsagt alltaf í gangi).
Crashaði í tíð og ótíma (stundum bluescreen, oftast ekki) og neitaði stundum að starta sér aftur(bara svartur skjár og engin skilaboð), mjög óútreiknanleg, gekk stundum í viku og svo aðra daga liðu bara klukkutími á milli crasha.
prófaði reyndar að strauja og setja allt upp aftur, passaði að nota alla drivera frá framleiðendum og var með þá alla up to date.
Ekkert virkaði, og þetta var að gera mig vitlausann.
Ég endaði á að missa þolinmæðina og ákvað að henda Ubuntu á vélina og tölvan er búin að ganga snurðulaust í næstum 2 ár undir þokkalegu loadi, þannig að það hefur klárlega verið eitthvað windows drivera issue hjá mér.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 11:45
af gunni91
mjolkurdreytill skrifaði:
gunni91 skrifaði:Þetta er voða erfitt þegar svona bilanir koma upp, hvað þá þegar söluaðili er í vandræðum með að gera við vélina.

Ég persónulega myndi alltaf prufa að strauja tölvuna og setja upp windows upp aftur, vera viss um að allir driverar séu í lagi o.s.f.

Varstu búinn að kanna hvort hitastigið á CPU og GPU sé ok?

Auðvitað á Att að klára málin fyrir þig en ef þetta er software related vesen er lítið hægt að klína ábyrgðinni yfir á Att.

Þú gerir þér vonandi grein fyrir því að þráðurinn ber fyrirsögnina "MÁLIÐ LEYST".

Lestu í gegnum þetta til að sjá hvert vandamálið var.

Heyrðu vinur, lestu þráðinn betur sjálfur.

Málið er ekki leyst.. [-X

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 12:09
af Mossi__
mjolkurdreytill skrifaði:Þú gerir þér vonandi grein fyrir því að þráðurinn ber fyrirsögnina "MÁLIÐ LEYST".

Lestu í gegnum þetta til að sjá hvert vandamálið var.

Wat?

Lestu í gegnum þráðinn sjálfur.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 16:22
af Hjaltiatla
Víst að vandamálið er ennþá til staðar, þá er ég sammála því að til að útiloka að vandamálið er hugbúnaðartengt að strauja vélina og setja upp rekla aftur. Þá geturu allavegana slengt því í andlitið á Att að núna sértu búinn að útiloka að vandamál sé bundið við hugbúnað þ.e.a.s ef það er rétt staðið að hugbúnaðaruppsetningu :megasmile

Edit: Hef ekki tekið eftir því að það sé búið að lista upp vélbúnað í þráðinn. Gæti mögulega hjálpað við villugreiningu