Síða 1 af 1

Vesen með hljóð Windows 10

Sent: Sun 17. Mar 2019 13:27
af Theraiden
Sælir

Ætlaði að athuga hvort einhver annar hafi lent í þessu og sé með lausnina því þetta er að gera mig ******** :catgotmyballs

Setup:
-Windows 10 Home - Update'að í topp
-Laptop með Nvidia 1060 GTX - nýjustu reklar uppsettir
-Asus skjár með innbyggðum hátölurum
-Tengt með Displayport

Vandamál:
Í fyrradag byrjaði tölvan að búa til nýtt profile fyrir skjáinn í sound settings í hvert skipti sem ég kveiki á tölvunni
Þetta olli því að ég fæ ekkert hljóð í hátalarana á skjánum gegnum displayport því að einungis fyrsti prófíllinn virðist virka, fæ ekkert sound úr hátölurunum á "nýjasta prófílnum" þrátt fyrir að "sooundbarinn" hoppi og skoppi þegar ég prófa að spila hljóð og það er engin leið að enable'a hina prófílana, eingöngu þann nýjasta sem skilar engu hljóði í hátalarana á skjánum.
Ef ég stilli default playback device á hátalarana úr fartölvunni kemur hljóð no problem.


Það sem ég er búinn að reyna:
Eyða skjánum úr device manager
Eyða og re-installa bæði Nvidia reklunum og Realtek reklunum
En hún heldur áfram að búa til nýjann "prófíl" fyrir skjáinn við hvert restart og ef ég aftengi skjáinn og tengi hann aftur þegar ég er búinn að ræsa tölvuna þá kemur bara enn einn nýr prófíll sem ekkert hljóð kemur úr í skjánum.

Hugmyndir ??? :)

https://imgur.com/a/RGVuzBN

Re: Vesen með hljóð Windows 10

Sent: Sun 17. Mar 2019 14:48
af nidur
Geturðu hægrismellt á þetta nýja og gert disable þannig að það sé ekki að koma inn aftur og haft hitt á default eða er ég að misskilja.

Re: Vesen með hljóð Windows 10

Sent: Sun 17. Mar 2019 16:03
af Minuz1
skiptir engu máli hversu oft þú eyðir device-inu út, þú ert í raun bara að henda reklunum út sem windows setur upp nýja við næsta tækifæri.
Þarft að afvirkja tækið, annaðhvort í device manager eða í sound devices, eða kannski að setja það sem þú vilt nota sem primary device.

Hægri smella á tækin ætti að sýna þér svona lista, velja það sem þú vilt sem Default
settings.jpg
settings.jpg (88.51 KiB) Skoðað 3339 sinnum

Re: Vesen með hljóð Windows 10

Sent: Sun 17. Mar 2019 20:29
af Theraiden
nidur skrifaði:Geturðu hægrismellt á þetta nýja og gert disable þannig að það sé ekki að koma inn aftur og haft hitt á default eða er ég að misskilja.


Neibb ef ég disable'a það nýjasta sem kemur inn og geri default á eitthvað af þessum gömlu kemur ekkert hljóð heldur
Virðist bara vilja senda hljóðið á nýjasta samt kemur ekkert hljóð þannig

Minuz1 skrifaði:skiptir engu máli hversu oft þú eyðir device-inu út, þú ert í raun bara að henda reklunum út sem windows setur upp nýja við næsta tækifæri.
Þarft að afvirkja tækið, annaðhvort í device manager eða í sound devices, eða kannski að setja það sem þú vilt nota sem primary device.

Hægri smella á tækin ætti að sýna þér svona lista, velja það sem þú vilt sem Default settings.jpg


Búnað prófa það, og það sem verra er að þá kemur ekkert upp í sambandi við skjáinn í Device manager undir Sound Video and game controllers (búinn að gera show hidden devices) þannig að ég get ekki eytt "gömlu" instance'unum af skjánum þar út heldur :-k

Re: Vesen með hljóð Windows 10

Sent: Mán 18. Mar 2019 11:58
af kagglinn
hvað kemur hann oft upp í Control Panel\All Control Panel Items\Devices and Printers ?

Re: Vesen með hljóð Windows 10

Sent: Mán 18. Mar 2019 16:37
af Theraiden
kagglinn skrifaði:hvað kemur hann oft upp í Control Panel\All Control Panel Items\Devices and Printers ?


Bara einu sinni.

En ég gafst upp á þessu. Tengdi Hátalara bara beint við tölvuna sjálfa.
Takmarkið var að losna við fleiri snúrur með því að nota hljóð passtrough í skjánum (er neatfreak) en þetta var að gera mig meira gráhærðann heldur en ein auka snúra :-"