Síða 1 af 1

Góður aðili í magnaraviðgerðir

Sent: Mán 27. Nóv 2017 10:43
af raggos
Vitið þið um einhverja góða í magnaraviðgerðum sem taka jafnvel slíkt að sér í frítíma?
Er með gamlan Marantz PM-68 sem ég þarf að láta fixa ef einhver hefur áhuga eða þekkir góðan aðila

Re: Góður aðili í magnaraviðgerðir

Sent: Mán 27. Nóv 2017 11:21
af Jón Ragnar
Flemming uppi á Akranesi er algjör meistari í öllu svona

Ferð held eg með dótið í Tónastöðina og þeir senda á hann :)

Re: Góður aðili í magnaraviðgerðir

Sent: Þri 28. Nóv 2017 15:22
af einarhr
Sónn Faxafeni

Re: Góður aðili í magnaraviðgerðir

Sent: Þri 28. Nóv 2017 16:44
af raggos
Sónn hafa ekki reynst mér vel í gegnum tíðina en Flemming ætlar að kíkja á þetta fyrir mig

Re: Góður aðili í magnaraviðgerðir

Sent: Þri 28. Nóv 2017 17:37
af ÓmarSmith
Arnar á raftækjaverkstæðinu í Síðumúla 4.

Hann er meistari í þessum efnum .

Ef þú vilt láta skoða þetta hérna í bænum amk :)

Re: Góður aðili í magnaraviðgerðir

Sent: Mið 29. Nóv 2017 11:09
af Hreggi89
Ég spurði út í Sónn á Hljóðnördar án Landamæra hópnum á Facebook þegar ég þurfti að láta gera við hátalara, fékk að mig minnir 10 slæmar (sumar mjög slæmar) reynslusögur af þeim en var bent á Litsýn. Þeir gerðu við hátalarann á örfáum dögum fyrir 15k, þetta er hátalari sem kostar nýr í dag 125k stk en þetta var bara tímavinna nánast (300kr fyrir tin), minnir að það hafi verið rukkað einn og hálfur tími. En ég hef líka heyrt góða hluti af Flemming, datt hann bara ekki í hug.

Re: Góður aðili í magnaraviðgerðir

Sent: Mið 29. Nóv 2017 13:46
af raggos
Ég er í ruglinu með Són, það var Litsýn sem reyndist mér illa. Dreg orð mín tilbaka um Són.
Fór með hlut til Litsýn sem var bilaður og eftir 4 ferðir tilbaka með hlutinn sem átti alltaf að vera viðgerður þá endaði ég með reikning upp á næstum 50þ samtals fyrir hlut sem var ennþá bilaður og þeir vísuðu verkefninu frá sér.

Re: Góður aðili í magnaraviðgerðir

Sent: Mið 29. Nóv 2017 16:30
af tdiggity
Get vel mælt með Flemming. Hel skemmtilegur kennari í þokkabót ;)

Re: Góður aðili í magnaraviðgerðir

Sent: Fim 30. Nóv 2017 12:03
af jonsig
Ég lagaði flaggskip útgáfuna af þessum magnara þegar ég var að læra rafeindavirkjun í den, sá var með massív hitavandamál. Og maður þufti að vera mjög góður í chenglish til að geta bias adjustað hann aftur. Þetta er philips útgáfan af marantz kringum 90´s , annars ágætis græja þannig.

Re: Góður aðili í magnaraviðgerðir

Sent: Fim 30. Nóv 2017 15:06
af lukkuláki
Hef fengið svo frábæra þjónustu hjá Sónn að það hálfa væri nóg.
http://sonn.is/

Re: Góður aðili í magnaraviðgerðir

Sent: Fim 30. Nóv 2017 15:43
af einarhr
lukkuláki skrifaði:Hef fengið svo frábæra þjónustu hjá Sónn að það hálfa væri nóg.
http://sonn.is/


Sammála, hef farið með Toyota Útvarp sem var dæmt ónýtt í umboði og mér boðið nýtt samt 10 ára gamalt á 70 þús. Sónn gerði við tækið fyrir 12 þúsund. Fór líka með móðurborð úr Solvent Prentara og plotter sem hann lagaði fyrir okkur fyrir 15 þúsund með vinnu og efni og sparaði mér 100 þúsund + með þessari viðgerð.

Re: Góður aðili í magnaraviðgerðir

Sent: Þri 19. Des 2017 09:09
af raggos
Smá followup. Eftir ráðleggingar hér hafði ég samband við Flemming og hann tók magnarann að sér.
Við honum blasti svo ófögur sjón þar sem seinasti viðgerðaraðili (Litsýn í Ármúla) hafði skilið eftir sig slóð af eyðileggingu í formi skemmda á PCB plötu, illa festa þétta og viðnám í röngum stærðum. Eftir að hann lagaði allar villurnar eftir Litsýn og greindi rétt úr biluninni fékk ég magnarann minn loks aftur í lag. Þessi maður er þvílíkur meistari svo ef þið þurfið að redda rafeindabúnaði þá er þetta maðurinn.

Re: Góður aðili í magnaraviðgerðir

Sent: Þri 19. Des 2017 11:39
af Televisionary
Flemming er á "speed dial" hérna á heimilinu og hefur verið í 15 ár plús, hvílíkur öðlingur.

raggos skrifaði:Smá followup. Eftir ráðleggingar hér hafði ég samband við Flemming og hann tók magnarann að sér.
Við honum blasti svo ófögur sjón þar sem seinasti viðgerðaraðili (Litsýn í Ármúla) hafði skilið eftir sig slóð af eyðileggingu í formi skemmda á PCB plötu, illa festa þétta og viðnám í röngum stærðum. Eftir að hann lagaði allar villurnar eftir Litsýn og greindi rétt úr biluninni fékk ég magnarann minn loks aftur í lag. Þessi maður er þvílíkur meistari svo ef þið þurfið að redda rafeindabúnaði þá er þetta maðurinn.