Langar aðeins að fara yfir þennan texta þinn.
GunnarJons skrifaði:Aðalatriðið og stærsta hindrun málsins frá okkar hálfu byggir á því að íslensk neytendalög virka þannig að þegar við höfum milligöngu að útskiptum yfir í nýjan söluhlut þá endurnýjast 2 ára ábyrgðin á honum. Það þýðir í raun að með milligöngunni tækjum við á okkur endurnýjaða 2 ára ábyrgð og kostnað vegna hennar.
Þið setið þetta sem eitthvað stórmál fyrir ykkur, þið hljótið engan kostnað af þessu, þar sem ábyrgð frá framleiðanda endurnýjast líka, enda er framleiðslu dagsettning á vörunni, (munið ég ætlaði að standa við kostnað að koma bilaða hlutnum út, en verð að gera það í gegnum ykkur fyrir ísland)
GunnarJons skrifaði:1) Í sumum tilfellum eins og þessu þá er Western Digital með umboðsaðila fyrir ákveðið markaðssvæði sem sér um claim fyrir þá. Viðgerð og endursending er því ekki í boði heldur einungis útskipti, sem fela það í sér framlengda ábyrgðin er það eina sem kemur til greina á viðkomandi hlut.
Aftur, já framleiðandi veitir nýja ábyrgð á nýja hlutnum, Það myndi hvort sem er aldrei standa undir kostnaði að gera við harðan disk. Þetta er því að sjálfsögðu leiðin sem farin er, útskipti ekki viðgerð.
GunnarJons skrifaði:2) Ábyrgðartími sem framleiðendur veita gildir almennt frá þeim tíma sem við keyptum af þeim hlutinn en ekki hvenær viðskiptavinur keypti eins og samkv. íslenskum lögum. Áður fyrr lentum við mjög oft í því að skipta út vörum gagnvart viðskiptavinum sem kom svo í ljós síðar að uppfylltu ekki kröfur um útskipti eða ábyrgðin var runnin út og við sátum uppi með tjónið vegna þess.
Enn einu sinni, það er dagsettning á vörunni sem er mjög skýr. WD fer í algjörlega worst case eftir henni. En þeir segjast fara eftir sölu dagsettningu líka og ég fekk það staðfest frá þeim, svo þið aftur þurfið ekki að hafa áhyggjur af því.
GunnarJons skrifaði:3) Töluverður sendingarkostnaður, tollskjalagerð og vinna sem fylgir svona útskiptum.
Svo ég endurtaki mig aftur þá ætlaði ég að standa kostnað af þessu, en aftur þá skipti það ykkur engu máli, þegar ég bauðst til þess.
GunnarJons skrifaði:Í kjölfar þessarar umræðu hér höfum við tekið ákvörðun innanhúss sem tengist málum eins og þínu : Í þeim tilfellum sem framleiðandi samþykkir að við höfum milligöngu fyrir hönd okkar viðskiptavina við að fá ábyrgðartíma framlegndan gegn því að viðskiptavinur greiði sendingarkostnað og lágmarksgjald fyrir vinnu og umsjón. Okkar hlutverk verði þá í raun að tryggja að viðskiptavinir geti nýtt sér þennan rétt ef það er skilyrði að hann fari í gegnum okkur. Hvert tilfelli verður samt að skoða. Flæskjustigið er hátt í þessum málum gagnvart framleiðanda. En við gerum okkar besta til að leysa farsællega úr svona málum.
Það er frábært að þið ætlið að skoða þetta innanhús að gera þetta nákvæmlega eins og ég og WD báðu um að þetta væri gert... og ætti að vera gert fyrir ísland, það hefði hinsvegar alveg mátt gerast í 1, 2 eða jafnvel 3 skiptið sem ég kom til ykkar.
GunnarJons skrifaði:Vandinn okkar í þínu máli eins og ég kem inn á í 2) er að Western Digital vísar á okkur sem þýðir að þeir vilja að við höfum samband við söluaðila þeirra sem undir venjulegum kringumstæðum þýðir ekki viðgerð á diskunum og fá þá senda til baka, heldur útskipti. Það sem við ætlum að reyna að er hafa samband við Western Digital og sjá hvort hægt sé að meðhöndla þetta fyrir þig með okkar samþykki þannig að þú sért að fá diskunum útskipt en ekki við. Ekki víst að það gangi við skulum reyna. Þegar nánari upplýsingar um sendingarkostnaðinn liggur fyrir þá metur þú bara hvort þú hefur áhuga á að fara þessa leið. Mjög oft svarar það ekki kostnaði, en auðvitað bara þitt að meta.
Ég skil þetta svar eiginlega ekki, hvað er vandamálið? WD framlengir ábyrgð á vörunni. Það verður að fara í gegnum ykkur, hvað gerist ef varan bilar daginn eftir að ég fæ nýja, þá get ég ekki sem einstaklingur sent vöruna út og þið eruð búnir að fría ykkur algjörlega í að fylgja þeirri framlengdu ábyrgð sem kemur frá WD. Það einfaldlega make-ar engan sense að það væri gert á þann hátt, þið eruð sölu aðili á WD vörum og eigið að þjónusta viðskiptivini sem kaupa þær vörur ekki satt?
GunnarJons skrifaði:Að lokum langar mig að þakka þér fyrir að vekja máls á þessu. Auðvitað þykir okkur ekkert skemmtilegt að vera kallaðir ósveigjanlegir og ósanngjarnir, en innleggið þitt varð til þess að við mótuðum okkur stefnu sem tengist sambærilegum málum. Við erum alltaf að vinna að því að bæta okkur og við tökum svona athugasemdir og umræðu alvarlega.
Endilega kíktu við hjá mér eða bjallaðu á mig, þannig að við getum sett málið af stað.
Þið fáið hrós fyrir að setja loksins eitthvað af stað í þessu máli, en engu að síður smá skammir fyrir að vera svona lengi að því. Þetta var alveg klárt mál innanhúss að þið ætluðuð ekki að veita þessa þjónustu eins og WD fer klárlega fram á fyrir ísland. Ég ætla að heyra í þér á eftir.