Klaufi meðhöndlar CPU viftu - hjálp


Höfundur
cybørg
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Fös 22. Júl 2016 23:29
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Klaufi meðhöndlar CPU viftu - hjálp

Pósturaf cybørg » Lau 23. Júl 2016 00:16

Sælir vaktarar,

ég asnaðist til að rannsaka innviði tölvunnar minnar sl. helgi og tók eftir því að hún væri ógeðslega skítug svo ég ákvað að þrífa hana. Allt gekk vel þar til kom að því að tengja CPU viftuna kikkaði klaufaskapurinn minn inn og ég beyglaði þrjár af fjórum festingum á henni - svona
v.jpg
v.jpg (226.61 KiB) Skoðað 1470 sinnum


Ég er argasti nýliði, tölvan er gömul og outdated (keypt 2008, Tölvutek, viftan er intel E18764) -því er ég að spyrja hvort það sé hægt að skipta um þessa pinna og hvort það sé hægt að fá þá eitthvers staðar?

Fyrirfram takk



Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2766
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 123
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Klaufi meðhöndlar CPU viftu - hjálp

Pósturaf zedro » Lau 23. Júl 2016 00:20

Þetta er basic stock vifta, kíktu bara við í Kísildal (eða þinni uppáhaldsverslun) og fáðu nýja á 1000kr.
Gætir sennilega fengið notaða hérna á vaktinni á slikk :)


Kísildalur.is þar sem nördin versla


Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: Klaufi meðhöndlar CPU viftu - hjálp

Pósturaf Klemmi » Lau 23. Júl 2016 01:23

cybørg skrifaði:Allt gekk vel þar til kom að því að tengja CPU viftuna kikkaði klaufaskapurinn minn inn og ég beyglaði þrjár af fjórum festingum á henni


Ekki beyglaðir, braust :)

En enginn stór skaði, líkt og zedro segir, þá þarftu bara að fjárfesta í nýrri kælingu, flestar verslanir ættu að eiga þessar stock kælingar á um 1000kr.-




cartman
has spoken...
Póstar: 172
Skráði sig: Sun 11. Des 2011 14:01
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Klaufi meðhöndlar CPU viftu - hjálp

Pósturaf cartman » Lau 23. Júl 2016 08:35

Mundu líka að setja nýtt kælikrem milli cpu og viftunnar



Skjámynd

Klaufi
Stjórnandi
Póstar: 2348
Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
Reputation: 52
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Klaufi meðhöndlar CPU viftu - hjálp

Pósturaf Klaufi » Lau 23. Júl 2016 16:38

Ásakanir eru þetta..


Mynd

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Klaufi meðhöndlar CPU viftu - hjálp

Pósturaf urban » Lau 23. Júl 2016 17:11

Klaufi skrifaði:Ásakanir eru þetta..

Það var akkurat hugsunin hjá mér, En hvar er tengingin við Klaufa ??


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !


Höfundur
cybørg
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Fös 22. Júl 2016 23:29
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Klaufi meðhöndlar CPU viftu - hjálp

Pósturaf cybørg » Mán 25. Júl 2016 01:13

zedro skrifaði:Þetta er basic stock vifta, kíktu bara við í Kísildal (eða þinni uppáhaldsverslun) og fáðu nýja á 1000kr.
Gætir sennilega fengið notaða hérna á vaktinni á slikk :)


Takk fyrir ráðlegginguna :)

Klemmi skrifaði:
cybørg skrifaði:Allt gekk vel þar til kom að því að tengja CPU viftuna kikkaði klaufaskapurinn minn inn og ég beyglaði þrjár af fjórum festingum á henni


Ekki beyglaðir, braust :)

En enginn stór skaði, líkt og zedro segir, þá þarftu bara að fjárfesta í nýrri kælingu, flestar verslanir ættu að eiga þessar stock kælingar á um 1000kr.-


Beyglaði og beyglaði þar til ég braut :)

cartman skrifaði:Mundu líka að setja nýtt kælikrem milli cpu og viftunnar


Takk, skal gera það :)
urban skrifaði:
Klaufi skrifaði:Ásakanir eru þetta..

Það var akkurat hugsunin hjá mér, En hvar er tengingin við Klaufa ??


Ég er klaufi þó ég sé ekki Klaufi :)