Sölumaður í tölvuverslun (Tölvuvinir)


Höfundur
Tölvuvinir
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Fös 08. Ágú 2014 11:57
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Sölumaður í tölvuverslun (Tölvuvinir)

Pósturaf Tölvuvinir » Þri 04. Nóv 2014 22:22

Tölvuvinir tölvuverkstæði eru að stækka við sig og víkka út reksturinn. Eftir um það bil viku ætlum við að opna nýja tölvuverslun við hliðina á verkstæðinu okkar að Langholtsvegi 126 í Reykjavík.

Við komum til með að selja gott úrval af helstu tölvuvörum, svo sem fartölvur, skjái, prentara, íhluti, og annað sem að nauðsynlegt getur talist að fá í tölvuverslun.

Við erum að leita að öflugum starfskrafti, sem að er gúrú er lýtur að öllu varðandi vélbúnað, hugbúnað, stýrikerfi og einnig aðila sem að hefur þjónustulund, og getur líka afgreitt í verslun. Viðkomandi starfskraftur þarf að vera með mikla reynslu, menntun eða aðra hæfileika sem skilyrði fyrir ráðningu. Hreint sakavottorð er algjört skilyrði.

Tölvuvinir er lítið en stækkandi fyrirtæki með alls 7 starfsmenn. Viðskiptavinir okkar eru komnir í á 5 þúsund, og eru þeir blanda af einstaklingum, sem og fyrir tækjum stórum sem smáum. Verkefnastaða okkar er góð, og erum við bjartsýnir á framtíðina.

Við bjóðum uppá líflegt starfsumhverfi með sveigjanleika og áherslu á vellíðan starfsmanna. Góð laun eru í boði fyrir góðan starfskraft. Um framtíðarstarf er að ræða, en til athugunar kemur líka hlutastarf.

Allar upplýsingar eru gefnar í síma 445-0100 og 693-3851 hjá Ólafi Baldurssyni.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á olafur@tolvuvinir.is



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7064
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Sölumaður í tölvuverslun (Tölvuvinir)

Pósturaf rapport » Þri 04. Nóv 2014 22:31

Ég vil mæla með þeim, á í töluverðum viðskiptum við þá og gæðin hafa ekki staðið á sér.

Það verður spennandi að sjá hvernig þessi verslun mun þróast.

Það er náttúrulega aðalatriði 1, 2 og 3 að birta samkeppnishæf verð hérna á Vaktinni :megasmile




J1nX
vélbúnaðarpervert
Póstar: 919
Skráði sig: Fim 15. Mar 2007 12:18
Reputation: 28
Staða: Ótengdur

Re: Sölumaður í tölvuverslun (Tölvuvinir)

Pósturaf J1nX » Mið 05. Nóv 2014 00:20

Gúrú það er verið að spurja um þig



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Sölumaður í tölvuverslun (Tölvuvinir)

Pósturaf Gúrú » Mið 05. Nóv 2014 02:05

J1nX skrifaði:Gúrú það er verið að spurja um þig


Það er ekki líklegt að ég (og eistun mín) fari nálægt þessari verslun. :)

viewtopic.php?f=9&t=32387&start=160#p284101

#tölvuVinalegir


Modus ponens

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7064
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Sölumaður í tölvuverslun (Tölvuvinir)

Pósturaf rapport » Mið 05. Nóv 2014 13:34

Gúrú skrifaði:
J1nX skrifaði:Gúrú það er verið að spurja um þig


Það er ekki líklegt að ég (og eistun mín) fari nálægt þessari verslun. :)

viewtopic.php?f=9&t=32387&start=160#p284101

#tölvuVinalegir



Gamall þráður frá 2010 um eitthvað allt annað...

Það er frekar ómaklegt að snúa skoðunum einhvers eins starfsmanns upp á fyrirtækið.

Mínar skoðanir eru t.d. ekki skoðanir Landspítalans...



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Sölumaður í tölvuverslun (Tölvuvinir)

Pósturaf Gúrú » Mið 05. Nóv 2014 18:01

rapport skrifaði:Það er frekar ómaklegt að snúa skoðunum einhvers eins starfsmanns upp á fyrirtækið.


Í umræðu um það hvort ég vilji vinna hjá fyrirtæki kemur það málinu við, ekki satt?

Svo er þetta innlegg þarna bara extra komískt fyrir mér m.v. nafn verslunarinnar.

En það er bara ég. Það sem er mikilvægast er að Tölvuvinir finni vinalegan sölumann (kannski til tilbreytingar). :)


Modus ponens


slapi
Gúrú
Póstar: 558
Skráði sig: Fös 19. Jún 2009 21:47
Reputation: 50
Staða: Ótengdur

Re: Sölumaður í tölvuverslun (Tölvuvinir)

Pósturaf slapi » Mið 05. Nóv 2014 18:18

Gúrú skrifaði:
rapport skrifaði:Það er frekar ómaklegt að snúa skoðunum einhvers eins starfsmanns upp á fyrirtækið.


Í umræðu um það hvort ég vilji vinna hjá fyrirtæki kemur það málinu við, ekki satt?

Svo er þetta innlegg þarna bara extra komískt fyrir mér m.v. nafn verslunarinnar.

En það er bara ég. Það sem er mikilvægast er að Tölvuvinir finni vinalegan sölumann (kannski til tilbreytingar). :)


ég á bara ekki til orð yfir leikskólastælunum í þér , rengja fólk vegna einhvers sem gerðist fyrir 4 árum síðan við auglýsingu sem ætti kannski að vera laus við það.
Ertu kannski kona með geðklofa?



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Sölumaður í tölvuverslun (Tölvuvinir)

Pósturaf Gúrú » Mið 05. Nóv 2014 19:29

slapi skrifaði:Ertu kannski kona með geðklofa?


Ef það er til eitthvað sem er verra en að hrjást af geðsjúkdómum þá er það sko að vera kona. =D>

Mér er annars nákvæmlega sama um heilindi auglýsingar á spjallborði. Konan sem ég er.

Að lokum vil ég benda þér á innleggið sem ég sá áður en mér datt einu sinni í hug að kommenta á þessa auglýsingu:

J1nX skrifaði:Gúrú það er verið að spurja um þig


Modus ponens

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4965
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 870
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Sölumaður í tölvuverslun (Tölvuvinir)

Pósturaf jonsig » Mið 05. Nóv 2014 20:03

Hvaða svaka böggur er í gangi ? Þeir eru bara að óska eftir starfskrafti !

Hver er annars munurinn á konu með geðklofa og karli ? Annað eitthvað verra þá ?