Skrítið vandamál


Höfundur
davidkef
Nýliði
Póstar: 12
Skráði sig: Mið 20. Júl 2011 19:57
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Skrítið vandamál

Pósturaf davidkef » Mið 14. Maí 2014 10:23

Ég ætla að lýsa þessu fyrir ykkur eins vel og eg get. Málið er að allir gluggar sem eg er með opna í tölvuni, þeir verða svona eins og eg sé búinn að ýta annarsstaðar á skjáinn og þarf að ýta aftur á þá til að virkja þá. Þetta gerist á nokkurra sek fresti. Til dæmis þegar eg er í einhverjum tölvuleik þá fer hann niður en það slökknar ekki á honum alveg þarf bara að ýta á hann aftur niðri í barnum til að fá hann upp, sem gerir það ómögulegt að spilatölvuleiki. Vonandi lýsti eg þessu nógu vel fyrir ykkur og vonandi getiði eitthvað hjálpað.
Fyrirfram þakkir.
-Davíð




Höfundur
davidkef
Nýliði
Póstar: 12
Skráði sig: Mið 20. Júl 2011 19:57
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Skrítið vandamál

Pósturaf davidkef » Mið 14. Maí 2014 10:24

Vildi bara taka fram eg er búinn að prófa að restarta tölvuni og scann hana all með vírusvörn.




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6345
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: Skrítið vandamál

Pósturaf AntiTrust » Mið 14. Maí 2014 10:29

Opnaðu task manager og farðu yfir þau forrit sem eru í gangi. Slökktu á þeim, eitt í einu og þú munt líklega finna út hvaða forrit er að stela fókusnum.




Höfundur
davidkef
Nýliði
Póstar: 12
Skráði sig: Mið 20. Júl 2011 19:57
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Skrítið vandamál

Pósturaf davidkef » Mið 14. Maí 2014 10:56

Nú er ég búinn að prófa það sem þú sagðir en þetta er enþá svona.




Höfundur
davidkef
Nýliði
Póstar: 12
Skráði sig: Mið 20. Júl 2011 19:57
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Skrítið vandamál

Pósturaf davidkef » Mið 14. Maí 2014 23:23

AntiTrust skrifaði:Opnaðu task manager og farðu yfir þau forrit sem eru í gangi. Slökktu á þeim, eitt í einu og þú munt líklega finna út hvaða forrit er að stela fókusnum.

Heyrðu pofaði þetta aftur og er búinn að komast að því að þetta er Wermgr.exe program sem blikkar alltaf á sama tima og vandamálið




Höfundur
davidkef
Nýliði
Póstar: 12
Skráði sig: Mið 20. Júl 2011 19:57
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Skrítið vandamál

Pósturaf davidkef » Mið 14. Maí 2014 23:28

Snilld Takk fyrir svarið AntiTrust eg er búinn að laga vandamálið. ætla að láta vita hvernig eg gerði það ef einhver lendir í þessu sjálfur.
Ég fór í services.msc og disable-aði Windows Error Reporting Service. Og þetta lagaðist :)