Bílaviðgerðir


Höfundur
Leviathan
spjallið.is
Póstar: 437
Skráði sig: Mán 20. Júl 2009 04:25
Reputation: 2
Staðsetning: Keflavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Bílaviðgerðir

Pósturaf Leviathan » Fös 10. Jan 2014 14:21

Ég er með Daewoo Kalos sem þarf að taka aðeins í gegn, en veit ekkert hvert ég á að snúa mér. Mér líður alltaf eins og það sé verið að taka mann í rassgatið þegar maður fer á þessi verkstæði (sé fyrir mér atriðið úr The Mask :lol: ), vegna þess að maður hefur ekki hundsvit á þessu.

Vélarljósið er á, einhver skynjari gæti ég trúað.
Bremsurnar þarf að laga, það er eins og hann sé alltaf aðeins í handbremsu.
Þarf að þétta hurðina frammí farþegamegin einhvern veginn, það blæs alltaf eitthvað inn meðfram henni.
og örugglega eitthvað meir

Hvaða verkstæði á ég að fara á? Er betra að finna eitt verkstæði til að gera þetta allt eða þarf ég að fara á mörg? :-k


AMD PHENOM II X4 955 @ 3.52GHz - Tacens Gelus III Pro - ASRock M3A770DE - 4GB DDR3 (Dual Channel) - ATI Radeon HD5770 - Tacens Radix III 520W - Windows 7 Ultimate (64bit) - 2TB


sigurdurie
Nýliði
Póstar: 5
Skráði sig: Fös 10. Jan 2014 15:22
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Bílaviðgerðir

Pósturaf sigurdurie » Fös 10. Jan 2014 15:28

Ég hef ágætis reynslu af Bílastöðinnni Dugguvogi. Ég fer með drusluna einu sinni á ári í yfirhalningu og þeir fara og láta skoða hann í leiðinni. Passaðu bara að fá ca. verð í það sem á að gera fyrirfram...það hefur staðið hjá þeim verðið hingað til.




NiveaForMen
Nörd
Póstar: 120
Skráði sig: Fim 03. Jún 2010 00:07
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: Bílaviðgerðir

Pósturaf NiveaForMen » Fös 10. Jan 2014 15:32

Í sambandi við vélarljósið þá verður þú að láta villulesa tölvuna. Fram að því er voðalega lítið hægt að áætla verð á viðgerð. Flest verkstæði geta gert það en þú getur búist við öruggari og fljótari greiningu hjá þeim verkstæðum sem sérhæfa sig í Daewoo. Kostnaður: 5K - ????

Bremsur að aftan liggja væntanlega út í. Stundum nægir að taka þær í sundur og liðka upp en það er ólíklegt, það er normið að það þurfi að endurnýja afturbremsur á 4-6 ára fresti eða 70-120þkm
Einnig gæti handbremsubarki/barkar verið fastir og þá þarf að skipta um þá. Kostnaður: 30-100þ, gróft áætlað, fer eftir atvikum.

Í sambandi við hurðina, það geta verið nokkur atriði. Að lagfæra eða skipta um þéttilista t.d... kostnaður 15k+ ?

Ég myndi segja að það væri hagkvæmast að láta gera allt í einu á sama verkstæðinu, ef það tekur verkið að sér. Ef þú ert tæpur á peninga, þá byrjar þú á að láta lesa af bílunum og tekur ráðleggingum í sambandi við það, annað hvort læturðu gera strax við það eða bíður aðeins. Fastar bremsur skemma út frá sér og bíllinn eyðir meira.

Þá hefðurðu smá innsýn í málið, hringdu núna í nokkur verkstæði og fáðu verðhugmyndir þeirra. Getur byrjað á verkstæði Bílabúðar Benna, heyrðu svo í fleirum.




littli-Jake
Skrúfari
Póstar: 2377
Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
Reputation: 148
Staðsetning: Árbærinn
Staða: Ótengdur

Re: Bílaviðgerðir

Pósturaf littli-Jake » Fös 10. Jan 2014 17:13

NiveaForMen skrifaði:Í sambandi við vélarljósið þá verður þú að láta villulesa tölvuna. Fram að því er voðalega lítið hægt að áætla verð á viðgerð. Flest verkstæði geta gert það en þú getur búist við öruggari og fljótari greiningu hjá þeim verkstæðum sem sérhæfa sig í Daewoo. Kostnaður: 5K - ????

Bremsur að aftan liggja væntanlega út í. Stundum nægir að taka þær í sundur og liðka upp en það er ólíklegt, það er normið að það þurfi að endurnýja afturbremsur á 4-6 ára fresti eða 70-120þkm
Einnig gæti handbremsubarki/barkar verið fastir og þá þarf að skipta um þá. Kostnaður: 30-100þ, gróft áætlað, fer eftir atvikum.

Í sambandi við hurðina, það geta verið nokkur atriði. Að lagfæra eða skipta um þéttilista t.d... kostnaður 15k+ ?

Ég myndi segja að það væri hagkvæmast að láta gera allt í einu á sama verkstæðinu, ef það tekur verkið að sér. Ef þú ert tæpur á peninga, þá byrjar þú á að láta lesa af bílunum og tekur ráðleggingum í sambandi við það, annað hvort læturðu gera strax við það eða bíður aðeins. Fastar bremsur skemma út frá sér og bíllinn eyðir meira.

Þá hefðurðu smá innsýn í málið, hringdu núna í nokkur verkstæði og fáðu verðhugmyndir þeirra. Getur byrjað á verkstæði Bílabúðar Benna, heyrðu svo í fleirum.


Það vantar "Good Post" broskall.

Ef að þú getur útvegað aðstöðu gæti ég jafnvel séð um 2-3 hluti af þessu.


i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180


Höfundur
Leviathan
spjallið.is
Póstar: 437
Skráði sig: Mán 20. Júl 2009 04:25
Reputation: 2
Staðsetning: Keflavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Bílaviðgerðir

Pósturaf Leviathan » Lau 11. Jan 2014 23:31

Takk fyrir mjög góð svör, ætla að byrja á að hringja út um allt á mánudaginn.


AMD PHENOM II X4 955 @ 3.52GHz - Tacens Gelus III Pro - ASRock M3A770DE - 4GB DDR3 (Dual Channel) - ATI Radeon HD5770 - Tacens Radix III 520W - Windows 7 Ultimate (64bit) - 2TB


Carragher23
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Mið 22. Mar 2006 20:09
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Bílaviðgerðir

Pósturaf Carragher23 » Sun 12. Jan 2014 03:01

Mæli eindregið með þessum:

https://www.facebook.com/bilaogdekkja

Þeir reyna ávallt að finna ódýrustu varahlutina (nema þú kjósir að versla orginal hjá umboði ) og eru með virkilega gott verð per klukkutíma.


Cooler Master HAF932 - Gigabyte GA-X58A-UD7 - Intel i7 930 @3,8GHz - Kingston 6GB HyperX DDR3 1730MHz - Crucial RealSSD C-300 128GB og 2x1TB samsung spinpoint F3 í Raid0 - Gigabyte HD5770 1GB - Noctua NH-D14 - Cooler Master Silent ProM 850W - "25" Full Hd I-Inc

Skjámynd

jojoharalds
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1619
Skráði sig: Þri 02. Nóv 2010 20:42
Reputation: 295
Staðsetning: Cicada - 3301
Staða: Ótengdur

Re: Bílaviðgerðir

Pósturaf jojoharalds » Sun 12. Jan 2014 08:51

EF þið eru að leita að verkstæði sem er ódyrara en hínir þau mæli ég með dalvegur 28 .bíla og dekkjaverkstædið,
6-7þús krónur klukkutími ,á meðan annarsaðar er það oftast 15-20 þús.
þetta eru flest allt lærðir menn ,sem gera sína vinnu mjög vél.
Og já þau finna alltaf ódyrustu varahlutina.
og í flestum tilfellum færði bílinn samdægurs.og þar er hringt í þíg ef nýja bílun fannst,og spurt,hvort þú viljir gera við hana,og sagt fyrirfram hvað þ.að kostar.og útskurt hversu mikilvægt þetta er.


Asrock X570 Taichi - Ryzen 7-5800X3d @ 4.5 Ghz -
G.Skill 16GB (2x8GB) Trident Z 3800MHz - be quiet! Dark Power Pro 11 1200W - GTX3080
Samsung 980pro 2Tb/Vatnskælt - Samsung 960Pro 512Gb -- Vökva Kæling C.A.S.E.L.A.B.S