Síða 1 af 1

Biluð Tölva - Ónýtur HDD?

Sent: Lau 06. Júl 2013 21:20
af karvel
Ég er með gamla Medion tölvu sem er nánast hætt að virka þ.e. allar aðgerðir taka heila eilífð :^o Sama hvað gert er allt tekur alveg fádæma langan tíma t.d. að endurræsa vélina eða bara að kveikja á Chrome vafra. Getur verið að harði diskurinn sé búinn á því eða eru einhverjar aðrar ástæður líklegri? Er eitthvað forrit til að finna hvað gæti valdið þessum hægagangi öllum? Vill einhver vera svo elskulegur að ráðleggja mér hvað mögulega er hægt að gera sem kosta ekki fúlgu?

Re: Biluð Tölva - Ónýtur HDD?

Sent: Lau 06. Júl 2013 22:26
af playman
Formötun og rykhreynsun getur gert kraftaverk á gamlar vélar.

Re: Biluð Tölva - Ónýtur HDD?

Sent: Lau 06. Júl 2013 22:49
af beggi90
Getur byrjað á því að ná í ultimate boot cd.(link)
Brennir þetta á disk og bootar af honum.

Keyrir svo próf á harða diskinum og sérð hvort hann sé í lagi, fínt að keyra memtest líka ef þú ferð í vélbúnaðarprófanir.
Getur svo kíkt inní turninn og séð hvort allt sé mökkað af ryki, það getur hægt talsvert á vélunum.

Ef vélbúnaður er ok geturðu keyrt vírusvarnarforrit/defrag/osfrv eða bara einfaldlega sett vélina upp aftur.

Re: Biluð Tölva - Ónýtur HDD?

Sent: Sun 07. Júl 2013 00:46
af kizi86
svo ef þetta er windows, að athuga að nóg pláss sé eftir á disknum, ef plassið fer undir x tölu þá hægir kerfið sjálfkrafa á sér niður fyrir snigilshraða, til að passa upp á að gögn tapist ekki þegar verið er að "swappa" gögnunum þe færa gögnin úr vinnsluminni yfir í page file á harða disknum

Re: Biluð Tölva - Ónýtur HDD?

Sent: Fös 12. Júl 2013 20:10
af karvel
Keyrði Ultimate Boot CD og náði að laga diskinn en það var einhverskonar les vandamál um að ræða. Núna vinnur tölvan á eðlilegum hraða en á móti kemur að neitar mér um flestar aðgerðir td. að kveikja á vafra og kemur alltaf upp með "Security Settings" meldingar. Ég næ ekki að kveikja á vírusvörn, repaira windows eða keyra recovery. Ég reyndi meira að segja að laga með W7 disk en hún neitaði mér einnig um það. Er nokkuð annað fyrir mig að gera en að strauja kvikindið og reyna að setja inn clean install af W7? Einhverjar ráðleggingar?

Re: Biluð Tölva - Ónýtur HDD?

Sent: Sun 14. Júl 2013 20:04
af playman
Fer eftir því hvaða villumeldingar þú varst að fá, en ég myndi sterklega mæla með því að fjárfesta í nýum disk og gera clean install.

Re: Biluð Tölva - Ónýtur HDD?

Sent: Sun 14. Júl 2013 20:22
af beggi90
karvel skrifaði:Keyrði Ultimate Boot CD og náði að laga diskinn en það var einhverskonar les vandamál um að ræða. Núna vinnur tölvan á eðlilegum hraða en á móti kemur að neitar mér um flestar aðgerðir td. að kveikja á vafra og kemur alltaf upp með "Security Settings" meldingar. Ég næ ekki að kveikja á vírusvörn, repaira windows eða keyra recovery. Ég reyndi meira að segja að laga með W7 disk en hún neitaði mér einnig um það. Er nokkuð annað fyrir mig að gera en að strauja kvikindið og reyna að setja inn clean install af W7? Einhverjar ráðleggingar?


Ef að UBCD náði að laga diskinn þá hafa verið bad sectors á honum og ekki ólíklegt að stýrikerfisskrárnar séu eitthvað laskaðar eftir það.
Ef að win repair virkar ekki er langsniðugast að setja tölvuna upp aftur, gætir prófað að ræsa cmd sem administrator og keyra "sfc /scannow" sjá hvort það breyti eitthverju.

Clean install er samt það besta í stöðunni.