Síða 1 af 1

Seldur - Netgear 16 porta 1GIG switch til sölu - fæst á 8 þús krónur

Sent: Fim 05. Jún 2025 18:37
af Lord02
Netgear 16 porta 1GIG switch til sölu - fæst á 8 þús krónur:
https://www.servethehome.com/netgear-pr ... nd-sturdy/

Sækist inn í Kópavog

Re: Netgear 16 porta 1GIG switch til sölu - fæst á 8 þús krónur

Sent: Lau 07. Jún 2025 00:58
af Sinnumtveir
Ég er ekki 100% viss en ég nenni ekki að afnema óvissuna.

Ég held sem sagt að ég eigi svona sviss og hann er brikkaður. Það er hægt að unbrikka hann með því taka svissinn sundur og jumpera seríal tengingu og tftp skrá á lókalnetinu en ég held ég nenni því ekki heldur.

Sjálfsagt er dauði svissinn minn bara hin fínasta græja. Ég keypti hann einhversstaðar á slikk og tók eftir að stýrikerfið í honum var afgamalt. Sennilega voru 30-50 uppfærslur í boði. Eins og ég geri, með græjur sem mér áskotnast, þá uppfærði ég svissinn og við það dó hann (í bili amk).

Netgear hafði ekki fyrir því að nefna að inn í miðri uppfærsluröðinni þurfti að fara frá nkl einni ákveðinni uppfærslu í nkl næstu ákveðnu uppfærslu ... annars ... bara dauður sviss. Hneykslanlega lélegt hjá Netgear að láta þennan fróðleiksmola ekki fylgja skýringum/texta allra síðari uppfærslna.

Semsagt ef þið takið þennan sviss að ykkur og ætlið að uppfæra hann, þá mæli ég með netleit um þetta sem ég sagði frá hér að ofan.

Góða skemmtun og ekki láta Netgear skjóta af ykkur fótinn á þann veg sem ég varð fyrir.

Re: Netgear 16 porta 1GIG switch til sölu - fæst á 8 þús krónur

Sent: Lau 07. Jún 2025 04:37
af Lord02
Takk fyrir þetta innlegg. En þessi sviss er amk ekki brikkaður og er til sölu :-)

kv.
Eiki
GSM 856-6411