Síða 1 af 1
[GEFINS] Retro din lyklaborð
Sent: Lau 15. Mar 2025 20:26
af bezzen
Einhver sem vill eiga gamalt lyklaborð með Din tengi.
Merkt "Magnús, Bolholt 6", sem er ekki verslun sem ég man eftir.

- 20250312_224822.jpg (2.77 MiB) Skoðað 9126 sinnum
Re: [GEFINS] Retro din lyklaborð
Sent: Lau 15. Mar 2025 23:16
af steiniofur
Mig langar lúmskt í þetta, hvar ertu staddur á landinu?
Re: [GEFINS] Retro din lyklaborð
Sent: Sun 16. Mar 2025 14:14
af bezzen
Er í rvk, Laugardalnum
Re: [GEFINS] Retro din lyklaborð
Sent: Mán 17. Mar 2025 12:53
af drengurola

- magnues.png (1.4 MiB) Skoðað 8449 sinnum
Re: [GEFINS] Retro din lyklaborð
Sent: Mán 17. Mar 2025 14:45
af litli_b
Jesús er ég eitthvað ungur. Var litur á skjám virkilega selling point? Ekkert usb, mýs sem lýta út eins og "80's alien computer technology" og SCSI??? Getur það runnað doom?
Re: [GEFINS] Retro din lyklaborð
Sent: Mán 17. Mar 2025 15:18
af drengurola
Heldur betur, þetta er nú nokkuð í ætt við NeXtSTEP sem Doom var búinn til á, þetta er nú sennilega samt með aðeins lakari Fujitsu örgjörva, en rönnar eflaust fínt - það eru til Sparc og Sun port fyrir doom. SCSI er ekkert svo hræðilega ólíkt USB ef maður hugsar djúpt um það.
Re: [GEFINS] Retro din lyklaborð
Sent: Þri 18. Mar 2025 07:32
af rapport
litli_b skrifaði:Jesús er ég eitthvað ungur. Var litur á skjám virkilega selling point? Ekkert usb, mýs sem lýta út eins og "80's alien computer technology" og SCSI??? Getur það runnað doom?
Macintosh Plus/SE/SEII/Classic voru allar með svarthvítum skjá (plus var fyrsta tölvan á æskuheimilinu)
Í 7.bekk safnaði ég um 45þ. og keypti mér Macintosh Colour Classic á tilboði og borgaði um 80þ. með skuldabréfi í 18 mánuði frá Glitni (lærði hvað verðtryggð lán eru mikið ógeð, lánið átti bara að vera 63þ.)
En ég held að þær mýs sem flestir skiptu út og þoldu illa voru mýsnar sem fylgdu með Ambra tölvunum sem Nýherju seldi í Skaftahlíð...

Re: [GEFINS] Retro din lyklaborð
Sent: Þri 18. Mar 2025 08:29
af drengurola
Fyrsta 486 hjá mér var Ambra. Ég man hvað ég var vitlaus að ég gladdist ógurlega yfir því að hafa ekki fengið mekanískt lyklaborð með henni eins og félagi minn.
Re: [GEFINS] Retro din lyklaborð
Sent: Þri 18. Mar 2025 19:23
af einarhr
drengurola skrifaði:magnues.png
Mútta keypti mína fyrstu tölvu frá honum Magnúsi ca 1992, 386 með 100 mb hdd ef ég man rétt.
Re: [GEFINS] Retro din lyklaborð
Sent: Mið 19. Mar 2025 11:17
af steiniofur
pm sent
þetta lyklaborð er náttúrulega alveg magnúsað!
Re: [GEFINS] Retro din lyklaborð
Sent: Mið 19. Mar 2025 19:17
af kizi86
bezzen skrifaði:Einhver sem vill eiga gamalt lyklaborð með Din tengi.
Merkt "Magnús, Bolholt 6", sem er ekki verslun sem ég man eftir.
20250312_224822.jpg
átti ég eitt slíkt lyklaborð einu sinni, braut á mér stóru tána þegar ég missti lyklaborðið í gólfið og setti löppina fyrir eins og einhver bavíani..
