Síða 1 af 1

[Selt] Amd Rx 6800xt Asrock

Sent: Mán 18. Okt 2021 22:48
af Haflidi85
Daginn

Er með til sölu eftirfarandi skjákort https://kisildalur.is/category/12/products/1187

Minnir að það sé orðið 5 mánaða gamallt, er í topp standi en hef ekkert við það að gera því ég spila bara 10 ára gamla leiki og kem mér ekkert í þá nýju :)

óska eftir tilboði, en ég borgaði að mig minnir um 200k fyrir það en ég skoða öll raunhæf tilboð, en tek mér það bessaleyfi að svara ekki rugl boðum.

Re: [TS] Amd Rx 6800xt Asrock

Sent: Lau 23. Okt 2021 07:03
af Haflidi85
Upp

Re: [TS] Amd Rx 6800xt Asrock

Sent: Lau 23. Okt 2021 16:37
af Aimar
hvað þýðir rugl tilboð?
3070 ti kort er að seljast herna á 140 til 170k.
Það kort er svipað og þitt.
sumir leikir svipaðir og 6800xt 10-15% betri.

þannig hvað meinar þú með rugl tilboð?

Re: [TS] Amd Rx 6800xt Asrock

Sent: Lau 23. Okt 2021 17:14
af Haflidi85
Aimar skrifaði:hvað þýðir rugl tilboð?
3070 ti kort er að seljast herna á 140 til 170k.
Það kort er svipað og þitt.
sumir leikir svipaðir og 6800xt 10-15% betri.

þannig hvað meinar þú með rugl tilboð?


Ég skil ekki einu sinni spurninguna, ertu bara að reyna að vera með leiðindi eða ?

Það kemur hvergi fram að ég sé að leita eftir einhverju 200k tilboði, það er bara upprunalegt verð sem ég set í auglýsinguna og snýst spurningin þín þá um það hvað ég tel vera rugl tilboð ?

En já ég svara ekki tilboðum undir 150k, veit ekki hvort þér líður eitthvað betur en ég tel að allt undir því sé "rugl tilboð".

Annars er orðið slegist um 3070 no lhr kort ofl. kort í þeim dúr og 3070 ti ekki vinsælt þar sem það minar illa, en amd kortin eru svo ekki með neinar læsingar svo það kæmi mér ekki á óvart að þau myndu halda verði, þó ég svo sem viti ekki alveg gangverðið í dag.

Re: [TS] Amd Rx 6800xt Asrock

Sent: Lau 23. Okt 2021 18:39
af Aimar
Enginn með leiðindi. Flott að fá lágmarksverð svo ekki sé boðið rugltilboð og þú verður pirraður, ekki máttu við því :)

Re: [TS] Amd Rx 6800xt Asrock

Sent: Lau 23. Okt 2021 21:28
af drengurola
Ok ég skal byrja. 151.990 kr.

Re: [TS] Amd Rx 6800xt Asrock

Sent: Lau 23. Okt 2021 23:23
af fhrafnsson
Hættur við, afsakið.

Re: [TS] Amd Rx 6800xt Asrock

Sent: Sun 24. Okt 2021 19:24
af eagle
Sæll

Ég býð 160 þúsund í kortið,
fylgir svo ekki með nóta til að sækja 2ára ábyrgðina?