Síða 1 af 1

[SELD] Playstation 5 Disk edition

Sent: Sun 27. Jún 2021 00:50
af orvarolafs
Óopin Playstation 5 disk edition

Keypt í elko 22 Júni

Nóta fylgir með

Verð : Tilboð

SELD!

Re: [TS] Playstation 5 Disk edition

Sent: Sun 27. Jún 2021 01:30
af ChopTheDoggie
Geturðu ekki skilað tölvunni fyrir fullt verð endurgreiðslu eða ertu að vonast til þess að fá meira fyrir hana? :-k

Re: [SELD] Playstation 5 Disk edition

Sent: Sun 27. Jún 2021 15:29
af Hannesinn
Magnaður andskoti að allir eru sammála um að ef Metallica kæmi hingað og 15 þús. miðar af 20 þús. færu til scalpera sem stæðu fyrir utan tónleika að selja miða á uppsprengdu verði myndi allt verða brjálað, en af því að þetta eru Playstation tölvur á netinu, þá er þetta í lagi... =D>

Re: [SELD] Playstation 5 Disk edition

Sent: Sun 27. Jún 2021 18:35
af Klemmi
Hannesinn skrifaði:Magnaður andskoti að allir eru sammála um að ef Metallica kæmi hingað og 15 þús. miðar af 20 þús. færu til scalpera sem stæðu fyrir utan tónleika að selja miða á uppsprengdu verði myndi allt verða brjálað, en af því að þetta eru Playstation tölvur á netinu, þá er þetta í lagi... =D>


Ekki alveg sambærilegt, annað er one-time event, sem ef þú missir af þá geturðu ekki bætt, en hitt er vara sem kemur aftur á eðlilegum verðum síðar.

Auðvitað er þetta fúlt og í fullkomnum heimi væri þetta ekki svona, en mér þykir ótrúlegt að fólk sé svona brjálað yfir þessu á svona vörum, en nennir lítið að kvarta yfir því þegar fasteignafélög fá möppur af fasteignum frá hinu opinbera, langt undir samanlögðu markaðsverði, bara til að selja eða leigja út á uppsprengdu verði í skjóli lítils framboðs.
Þar erum við að tala um eitt af grunnþörfum mannsins vs. nýjustu leikjatölvuna/öflugasta skjákortið.

Re: [SELD] Playstation 5 Disk edition

Sent: Sun 27. Jún 2021 21:52
af Hannesinn
Klemmi skrifaði:Ekki alveg sambærilegt, annað er one-time event, sem ef þú missir af þá geturðu ekki bætt, en hitt er vara sem kemur aftur á eðlilegum verðum síðar.

Auðvitað er þetta fúlt og í fullkomnum heimi væri þetta ekki svona, en mér þykir ótrúlegt að fólk sé svona brjálað yfir þessu á svona vörum, en nennir lítið að kvarta yfir því þegar fasteignafélög fá möppur af fasteignum frá hinu opinbera, langt undir samanlögðu markaðsverði, bara til að selja eða leigja út á uppsprengdu verði í skjóli lítils framboðs.
Þar erum við að tala um eitt af grunnþörfum mannsins vs. nýjustu leikjatölvuna/öflugasta skjákortið.

Á hvaða hátt er þetta ekki sambærilegt? Milliliðir, sem hafa engan áhuga á vörunni, kaupa hana á meðan eftirspurn er meira en framboð, og hafa bein áhrif á vöruverð?

Playstation er bara dæmi, þetta er allt sama tókbakið. Mátt alveg kalla vöruna tónleika, skjákort, playstation. xbox eða aðrar vörur þar að eftirspurn er meira en framboð. "One-time event" skiptir bara engu máli í þessu samhengi.

Re: [SELD] Playstation 5 Disk edition

Sent: Sun 27. Jún 2021 22:42
af Klemmi
Hannesinn skrifaði:"One-time event" skiptir bara engu máli í þessu samhengi.


Þar erum við ósammála, sem er bara allt í lagi :happy