Síða 2 af 4

Re: TS RTX 3080

Sent: Mán 19. Okt 2020 18:14
af Tbot
Arctic skrifaði:ekkert að því að vera tækifærissinni innan laganar ramma alveg eins og búðirnar sem hafa kortin selja það dýrast vegna þess þaug hafa kort og eru tækifærissinnar mitt tilfelli er ekkert öðruvísi


Það er eitt grundvallar atriði rangt í þessum málflutningi.
Þú veitir enga 2. ára áyrgð á skjákortinu, en það gera verslanir. Jafnvel getur verið erfiðara fyrir væntanlegan kaupanda að sækja ábyrgðina.

Re: TS RTX 3080

Sent: Mán 19. Okt 2020 18:45
af Arctic
að segja að ég myndi setja SJÚKLINGA á hausinn til að halda lífi er ekki sambærilegt þú þarft að hugsa hvað þú lætur útur þér þú ert að líkja mér við mann sem myndi láta fólk drepast til að fá pening og hengur einganvegin saman við að selja grafik kort í tölvu núna ertu komin úti sótsvartar svívirðingar sem er ekki i lægi samkvæmt reglum hér á vagtinni

Re: TS RTX 3080

Sent: Mán 19. Okt 2020 18:46
af Arctic
kvittun fylgir og kortið er i ábyrgð

Re: TS RTX 3080

Sent: Mán 19. Okt 2020 19:40
af Klemmi
Ég er ekki ánægður með þetta, og ég er ekki að fara að kaupa þetta kort af honum, en það breytir því ekki að ég sé ekki ástæðu til að banna einhvern fyrir það eitt að vilja nýta sér lítið framboð á algjörri munaðarvöru.

Mæli ekki með því að fólk eyði púðri í það að verða reitt og leitt yfir því að fá ekki RTX 3080 kort á upprunalegu verði, núna nokkrum vikum eftir launch, og að einhverjir sem hafi verið svo heppnir að fá kort snemma séu að nýta sér "ástandið" fyrir skjótan gróða. Það er tækifærismennska, en langt frá því að vera siðblinda.

Ef þetta væri nauðsynjavara og einhver þyrfti að líða raunverulegan skort, þá væri málið öðruvísi. Að finnast illa farið með mann að fá ekki að spila tölvuleikina sína á einhverju öflugasta skjákorti í heimi, það er ekki raunverulegur skortur, ákveðin forréttindablinda fólgin í því að líða þannig.

Re: TS RTX 3080

Sent: Mán 19. Okt 2020 19:46
af jojoharalds
Geri sterklega ráð fyrir að þetta er Palit GeForce RTX 3080 frá kisildalnum verð 169.500
þar sem kisildalur virðist vera eina búðinn á klakanum fær eitthvað magn með reglulegum millibili til sin.

svo miðað við það að fullt af fólki er á biðlista hjá þeim um að fá kort,
er það svo vitlaust að reyna fá smá auka aur af einhverrjum sem er óþolinmoður og getur ómögulega beðið ? :baby

Re: TS RTX 3080

Sent: Mán 19. Okt 2020 19:51
af jojoharalds
jonsig skrifaði:
DaRKSTaR skrifaði:gaurinn er að biðja um 250 þúsund plús á bland.. HAHAHA


:lol:

tækifæris rotta!


er bara allt í lagi að kalla fólk "rottur" her inn á vaktinni?
þú veist að við búum á klakanum þar sem svindl virðist vera daglegt brauð og fólk losnar úr fangelsi og fær vinnu eftir 5 ár eftir að hafa framið morð. :baby

"EFTIR 12 ár er ekki gott að við fáaum svona orðalag her inn á " :-#

Re: TS RTX 3080

Sent: Mán 19. Okt 2020 19:57
af Kreg
jonsig skrifaði:
Semboy skrifaði:ég sé ekkert að þessu marr :( Ég mundi gera það sama. Ég er sáttur með mina vonbrigðu 2080ti


"I.."
Þetta eru týpan sem myndi selja þér insulín á 5x verði ef það væri skortur á því og svæfi vært eftir það.
Þetta er bara prinsipp mál hjá mönnum að halda vaktinni sem griðarstað frá svona liði.


Ég er ekki alveg viss hvað með finnst um þessa sölu. En að líkja sölu á skjákorti og insúlíni saman er full langt gengið.. Síðast þegar ég vissi voru skjákort ekki lífsnauðsynleg

Re: TS RTX 3080

Sent: Mán 19. Okt 2020 21:19
af jonsig
Kreg skrifaði:
jonsig skrifaði:
Semboy skrifaði:ég sé ekkert að þessu marr :( Ég mundi gera það sama. Ég er sáttur með mina vonbrigðu 2080ti


"I.."
Þetta eru týpan sem myndi selja þér insulín á 5x verði ef það væri skortur á því og svæfi vært eftir það.
Þetta er bara prinsipp mál hjá mönnum að halda vaktinni sem griðarstað frá svona liði.


Ég er ekki alveg viss hvað með finnst um þessa sölu. En að líkja sölu á skjákorti og insúlíni saman er full langt gengið.. Síðast þegar ég vissi voru skjákort ekki lífsnauðsynleg



Þetta er sama hugmyndafræði bakvið bæði dæmin, bara það seinna ýkt upp til að auðvelda fólki til að sjá líkindin á milli.
Virkilega sorglegt að sjá hvað svona smáborgara háttur er orðinn viðurkenndur af mörgum sem "norm".

Re: TS RTX 3080

Sent: Mán 19. Okt 2020 21:38
af Klemmi
jonsig skrifaði:Þetta er sama hugmyndafræði bakvið bæði dæmin, bara það seinna ýkt upp til að auðvelda fólki til að sjá líkindin á milli.
Virkilega sorglegt að sjá hvað svona smáborgara háttur er orðinn viðurkenndur af mörgum sem "norm".


Nei.

Nei.

Bara alls ekki, nei.

Þetta er eins og að segja að sá sem setji ekki klósettsetuna niður eftir sig sé sama týpan og lemji konuna sína.

Annað er spurning um hrottaskap sem getur varðað líf og dauða, hitt er slight annoyance.

Re: TS RTX 3080

Sent: Mán 19. Okt 2020 21:42
af steinar993
er ekki bara hægt að líkja þessu við tölvubúðir í dag að selja 2080 ti á hærra verði en 3080, nema kannski að tölvubúðinar vona að fólk viti ekki um 3080 eins og þessi vonar að fólk heldur að ísland fái ekki 3080 fyrr en næsta sumar :))

Re: TS RTX 3080

Sent: Mán 19. Okt 2020 22:31
af jonsig
Klemmi skrifaði:
jonsig skrifaði:Þetta er sama hugmyndafræði bakvið bæði dæmin, bara það seinna ýkt upp til að auðvelda fólki til að sjá líkindin á milli.
Virkilega sorglegt að sjá hvað svona smáborgara háttur er orðinn viðurkenndur af mörgum sem "norm".


Nei.

Nei.

Bara alls ekki, nei.

Þetta er eins og að segja að sá sem setji ekki klósettsetuna niður eftir sig sé sama týpan og lemji konuna sína.

Annað er spurning um hrottaskap sem getur varðað líf og dauða, hitt er slight annoyance.


Ha?
Í hvorugu dæminu þínu er lýst einhverskonar plotti.( útbúa aðstæður til að græða pening á örvæntingu annarra eins og scalperinn okkar)
Að setja ekki niður setuna lýsir sinnuleysi , meðan seinna dæmið þitt lýsir geðrænum kvillum með lítilli pælingu að baki.

Re: TS RTX 3080

Sent: Mán 19. Okt 2020 23:21
af Black
Oft sem mér finnst einn og einn aðili tekinn af lífi hérna á vaktinni í söluþráðum.Ég hefði haldið að fólk geti verðlagt hlutina eftir sínu höfði og tekið þá kannski ábendingum um að verðið sem er sett á vöruna sé óraunhæft, eða að það vanti betri upplýsingar til að salan sé trúverðug.

Hversu oft sjáið þið raunhæf verð á bílaauglýsingum ? Fólk bíður í hlutina kannski áttar aðilinn sig á því þegar bíllinn er ekki að seljast á 200+ og selur hann til hæðstbjóðanda á lægra verði en hann óskaði eftir í upphafi.

Smá heygaffla múgæsingur sem myndast hérna öðru hvoru. 8-[

Re: TS RTX 3080

Sent: Mán 19. Okt 2020 23:32
af Saewen
Ég er ekki alveg að fatta hvað fólk er að æsa sig sv ona mikið yfir hérna. Bara eitt dæmi sem ég get hugsað um í fljótu bragði... Nintendo Switch.. Það var ekki svo langt síðan að Nintendo Switch var uppselt út um allt og fólk nýtti sér það og seldi Nintendo Switch leikjatölvurnar sínar á massívu verði. Ég sé bara ekkert rangt við þetta, enginn að þvinga neinn í að kaupa þetta kort af þessum einstakling :) Þetta kallast bara.. ." Supply and demand " og þessi gaur er að níta sér er bara perfectly fine imo.

Re: TS RTX 3080

Sent: Þri 20. Okt 2020 00:22
af Trihard
Hataðu eigi leikmanninn, hataðu leikinn. :guy

Re: TS RTX 3080

Sent: Þri 20. Okt 2020 00:59
af Danni1804
Tæpur gaur.

Re: TS RTX 3080

Sent: Þri 20. Okt 2020 12:06
af Nariur
Ég býð 100.000

Re: TS RTX 3080

Sent: Þri 20. Okt 2020 13:23
af osek27
Hallo eg er til i að skoða kaup a þessu korti en geturu vinsamlegast sett mynd a þvi??

Re: TS RTX 3080

Sent: Þri 20. Okt 2020 16:20
af Arctic

Re: TS RTX 3080

Sent: Þri 20. Okt 2020 16:28
af worghal
er ég sá eini sem getur ekki verið meira sama um hvað verðið er?
markaðurinn er einfaldur, framboð og eftirspurn, ef hann vill selja það á 200þ gott mál, í versta falli selst það ekki og hann á fínt kort.
ef einhver vill borga 200þ fyrir kortið, gott mál, hann vildi kort strax og var tilbúinn að borga fyrir það.
það er bókstaflega enginn að tapa hérna og ég held að þið sem eruð búnir að vera að drulla yfir hann með hinum og þessum dæmum ættuð bara að taka smá skref til baka. ](*,)

Re: TS RTX 3080

Sent: Þri 20. Okt 2020 16:52
af pepsico
Eini munurinn á þessum gaur og Tölvutek er að þjónustustjóri hjá þessum gaur hefur aldrei blákalt sagt mér að honum sé alveg sama að það sem hann sé að leggja til brjóti á landslögum og að honum sé þess að auki alveg sama um lög um neytendakaup.
Þið sem eruð brjáluð yfir þessu: Af hverju eruði ekki að mæta fyrir utan Tölvutek eftir vinnu og stunda mótmæli?
T.d. þegar i9-9900K var á 120 þús. hjá Tölvutek en 90 þús. hjá mörgum öðrum verslunum? Það er sami verðmunur og þessi gaur er að leggja til nema miklu hærri álagning hlutfallslega (gæti tekið ansi mörg dæmi í viðbót ef þið viljið).
Eina vandamálið hérna er að það eru allir að bumpa þessum þræði stanslaust. Eitt "Athugið að þetta kostar 170 þús. hjá Kísildal en það er biðlisti" komment hefði dugað til að allir gætu verið upplýstir og tekið upplýstar ákvarðanir, og þessi þráður hefði verið mun minna fyrir á forsíðunni.

Re: TS RTX 3080

Sent: Þri 20. Okt 2020 16:53
af steinar993

Það að þú sentir mynd af kassa sannar ekki að þú sért með skjákortið. ég keypti 1070 ti um daginn af manni hér á vaktinni og hann bauðst til að gefa mér kassann því ég kom með brandara um að selja 1070 ti í þessum kassa á ebay.

Edit: kassinn var s.s. 3080 frá kísildal.

Re: TS RTX 3080

Sent: Þri 20. Okt 2020 17:24
af Nariur
worghal skrifaði:er ég sá eini sem getur ekki verið meira sama um hvað verðið er?
markaðurinn er einfaldur, framboð og eftirspurn, ef hann vill selja það á 200þ gott mál, í versta falli selst það ekki og hann á fínt kort.
ef einhver vill borga 200þ fyrir kortið, gott mál, hann vildi kort strax og var tilbúinn að borga fyrir það.
það er bókstaflega enginn að tapa hérna og ég held að þið sem eruð búnir að vera að drulla yfir hann með hinum og þessum dæmum ættuð bara að taka smá skref til baka. ](*,)

Munurinn á scalper og venjulegum seljanda með heimskulegt verð er framboðið á vörunni.
Þessi durtur keypti kortið í Kísildal, þar sem er mikil eftirspurn og biðlisti, snéris sér við og er að selja það á uppsprengdu verði.
Ef hann hefði bara haldið sig heima hjá sér og ákveðið ekki að vera skíthæll þann daginn hefði einhver fengið þetta skjákort á verði Kísildals (sem er allt of hátt, en það er önnur umræða).
Þessi bastarður er ekki að bæta við neinu value. Hann er bara að troða sér inn í keðjuna til að græða.

Ekkert svar við síðasta tilboði. Hmm ókei. Ég býð 101.000 lokaboð.

Re: TS RTX 3080

Sent: Þri 20. Okt 2020 17:34
af Lexxinn
Mynd

:fly :fly

Re: TS RTX 3080

Sent: Þri 20. Okt 2020 18:02
af Nariur
Lögmálin um framboð og eftirspurn myndu eiga við ef Nvidia væru að selja kortin á uppsprengdum verðum. En Nvidia eru að reyna að selja kortin á eðlilegum verðum. Fólk sem truflar það eru skíthælar.
Þetta er alveg eins og með miða á tónleika. Scalperar eru skítseiði.

Re: TS RTX 3080

Sent: Þri 20. Okt 2020 18:11
af Gassi
Finnst rosa leitt að sjá vaktara taka manninn af lífi fyrir að reyna næla ser i sma auka pening, þetta er EKKI FÁANLEGT og sennilega ekkert í bráð, og það besta i boði í dag, ef ég ætti pening til að kasta í þetta þá myndi ég gera það! Supply/demand mér finnst rosalega skrítið hvernig vaktarar taka þessu hefði haldið að flestir meðalgreindir menn skildu conceptið, á meðan hann kemur með nytt kort í lagi og í ábyrgð er þetta honest buisness, hann er ekki að svindla á neinum.

Tækifærissinni, og hvað með það? Hann má verðleggja þetta eins og hann vill, my honest opinion!
Líkja þessu við lífsnauðsynleg lyf og siðblindu? Absúrd!
Jealousy? I THINK SO.

Gangi þer vel með soluna vinur