B0b4F3tt skrifaði:Nariur skrifaði:Núna ertu að reyna að rökræða computer architecture við tölvunarfræðing. Þetta er eins og þú sért að kalla lækni kjána fyrir að segja þér að bóluefni valdi ekki einhverfu.
Verð nú aðeins að blanda mér í þessa umræðu. Ætla samt ekki að blanda mér í efnislegu umræðurnar heldur finnst mér farið að bera á menntahroka frá þér, Nariur. Hvað veist þú um menntun eða reynslu pepsico? Þó svo að hann sé ekki með formlega menntun í tölvunarfræði þýðir ekki að hann viti ekki neitt um málið. Ég er nú sjálfur tölvunarfræðingur og meira að segja með masters gráðu í því líka en það gerir mig ekki að sérfræðingi í computer architecture. Jú ég tók einn áfanga í þessu fyrir svona 14 árum eða svo. Megninu er ég búinn að gleyma. Tölvunarfræði er rosalega víðfemt svið og frekar erfitt að verða sérfræðingur í einhverju einu nema að fara í frekara nám (master/doktor). Það er líka hægt að sjálfmennta sig á þessu sviði. Það þýðir ekki að þín vitneskja sé minna virði.
Það getur vel verið að þú hafir mikla reynslu og menntun í einmitt computer architecture en bara ekki flagga tölvunarfræði gráðunni þinni sem einhverju heilögu plaggi sem þýðir að þú hafir alltaf rétt fyrir þér.
Vona að þið getið leyst ykkar ágreining á faglegri máta en hingað til.
Með bestu kveðju,
Elvar
Andskotinn. Ég var hættur.
Svo kemur þú og neyðir mig til að leggja vinnu í það sem ég segi og skrifa vel ígrunduð svör, en ekki bara rífast við besserwissersa á netinu.
Ég er ekki sáttur.
Það hefði verið óheiðarlegt af mér og algör menntahroki að flagga gráðunni í framerate umræðunni, enda gerði ég það ekki. Ef þú blæst rykinu af því sem þú lærðir í tölvuhögun fyrir 14 árum sérðu það jafn vel og ég á quote-unum hérna fyrir neðan að hann veit ekki um hvað hann er að tala. Maður þarf ekki að vinna hjá Intel og vera með doktorsgráðu í CPU architecture til að sjá það. Við lærðum það báðir í BS (töluvert styttra síðan ég gerði það), en mig grunar að Wikipedia greinin um CPU cache dugi til. Það var bara í þessum tilfellum, þar sem hann var að halda því fram að ég vissi ekki um hvað ég var að tala þegar það kæmi að hlutum sem ég er með gráðu í sem ég benti á það. Ég myndi seint kalla það menntahroka.
Hann er líka búinn að hafa næg tækifæri til að vísa í eitthvað haldbært sem bendir til þess að hann sé ekki að tala út um rassgatið á sér hvað þetta varðar. Það myndi reyndar ekki koma mér á óvart ef hann segðist vera með doktorsgráðu í þessu núna, búinn að vera að ljúga hægri vinstri.
Ég skal samt fúslega viðurkenna að ég notaði gráðuna sem shortcut af því að ég nennti ekki að rífa það sem hann sagði í sundur með nákvæmni og af því að ég hélt að það myndi mögulega bíta á múrvegginn sem þessi maður er.
pepsico skrifaði:Með hvaða töfrum gæti það verið satt að það skipti einfaldlega ekki máli hvort svartími fyrsta kalls vinnsluminnisins sé FIMMTÁN milisekúndur (16/1066) með 2133 MHz CL16 eða hvort hann er t.d. 9,375 milisekúndur (15/1600) með 3200 MHz CL15?
Hvernig gæti það einu sinni mögulega staðist? Að það skipti bara engu máli fyrir ferli sem lýsir sér svo í grunninn að útreikningskerfið kalli eftir upplýsingum úr vinnsluminninu til að geta reiknað með þeim? Einungis með töfrum gæti það verið svo.
Svartími vinnsluminnis er mældur í nanósekúndum, ekki millisekúndum og að ef þú ert að sækja alla leiðina upp í vinnsluminni ertu hvort eða er að fara að bíða af því að það er svo mikið hægara en cache-ið svo ein eða tvær nanósekúndur til eða frá skipta ekki svo miklu máli. Það sem skiptir mestu máli hérna er að hærri tíðni = hærri bandvídd. Ef örgjörvinn er oft að bíða eftir einhverju alla leiðina úr RAM er eitthvað að og maður finnur fyrir því í hraða. Það er, btw, ein af mörgum ástæðum fyrir því að PUBG er ekki góður leikur til að benchmarka.
Ofan á það eru svo mörg abstraction skref á milli rendered ramma og RAM klukkunnar að þetta dæmi meikar ekki sens á neinu leveli.
pepsico skrifaði:Hvað, heldurðu að heilu tölvuleikjunum sé komið fyrir í 8MB L3 Cacheinu á 7700K? Eða eru þeir kannski í 1MB L2 Cacheinu? Nei auðvitað, þeir eru í 128 KB L1 Cacheinu. Djöfulsins snillingar eru Intel að þurfa bara ekkert lengur að láta örgjörvana sína vera mataða af vinnsluminninu því þeir föttuðu að þeir geta náttúrulega bara komið heilum nútíma tölvuleikjum fyrir á ~10MB CPU Cacheinu.. Þetta er nú meira bullið sem þú ert að skrifa hérna.
Það er alveg rétt að Intel hafa staðið AMD fóti framar í prefetching lengi vel en þú ert enn og aftur bara að skoða málin svo grunnt að þú endar í algjöru b. u. l. l. i.
Hérna hefði ég líka getað sagt "Ha? Nei? Ég er tölvunarfræðingur. Ég hef töluvert betri skilning á tölvum en svo að ég myndi stinga upp á þannig bulli, en það er samt mun nær sannleikanum en þú greinilega heldur af því að frá kjörnunum séð gæti leikurinn alveg eins verið svo gott sem allur í cache-inu, þó hann sé það auðvitað ekki." Það veit enginn neitt um það hvernig Intel og AMD haga prefetching og þú myndir actuallly þurfa doktorsgráðu og ómögulga mikinn aðgang hjá báðum fyrirtækjum til að bera það saman. Þetta er ekki einu sinni bara toppurinn af ísjakanum. Örgjörvar í dag eru svo rosalega ógeðslega flóknir að það nálgast svartigaldur og að tala um einn lítinn aspect af cache hegðun og að segja að einhver einn sé góður í því er vægast sagt fáránlegt.
Jæja. Að lokum:
Ég lærði mikið af þessari þekkingu í skóla og fékk bréfsnifsi sem stendur á að ég kunni það, gráðan sjálf inniheldur nákvæmlega þessa þekkingu og gerir mig ekki að neinu yfirvaldi varðandi hluti sem mér voru ekki kenndir.
Af ofangreindum ástæðum hef ég enga trú á að pepsico hafi meira en algera grunnþekkingu á þessu efni, hvort sem er formlega eða óformlega.
Þess vegna ætla ég að fullyrða að ég hafi rétt fyrir mér og hann pepsico hafi rangt fyrir sér.
Þeir sem eru ósammála eða vilja enn kalla það menntasnobb mega skrifa kvörtun og senda hana með póstinum rakleiðis upp í rassgatið á sér.
Þetta fór langt yfir rífast á netinu nennið mitt svo ég er núna í alvöru hættur í þessum þræði.