Re: (Tölvunardar óskast) langar að uppfæra pc vélina
Sent: Þri 05. Maí 2020 18:36
Ef við hunsum bara markmið þráðarhöfundar og ímyndum okkur af einhverri ástæðu að hann langi að fara að spila leiki á 4K 60 Hz skjá og vera með 140 fps með allt í Ultra þá bara endilega segja honum að kaupa sér 4K skjá og 2080 Ti.
En þegar hann er að biðja um betri leikjaupplifun í 1920x1080 144 Hz og er með langtum sterkara skjákort en þörf er á fyrir góða upplifun en ekki nálægt því nógu sterka vinnsluminnisuppsetningu og ekki svo góðan örgjörva miðað við hvað er í boði þá finnst mér athyglisvert að sjá stungið upp á því að uppfæra skjákortið eða að kalla skjákortið flöskuháls. Hljómar eins og eitthvað sem er kannski sniðugt ef fólk tekur sérstaklega fram að það sé bara að spila fyrir frábæra singleplayer upplifun í fallegum tölvuleikjum í Ultra stillingum en þegar einhver segir 'alla leiki' og er á 144 Hz skjá þá er það tæplega tilfellið.