Mercury hvernig er 45 þús. (verð efst í þessum þræði), eða 40 þús. (uppsett lágmarksverð í þessum þræði), eða 50 þús. (upphaflegt verð hjá þér), eða 45 þús. (lækkað verð hjá þér), eða 40 þús. (lækkuð verðhugmynd hjá þér), eða 35 þús. (lækkaðari verðhugmynd hjá þér), "aðeins minni" peningur heldur en 32.950?
Veit líka ekki hvaða stöðu þú ert í til að kvarta, ég gekk sjálfur ótrúlega varlega í það að benda þér á að þínar verðhugmyndir væru vafasamar. Seinna hrósaði Sallarólegur þér fyrir að vera svo kominn með góða verðhugmynd, og þitt svar var að vitna í það og setja facepalm emoji? Gott svar við hrósi maður. Það er rosalega erfitt að finna til með þér (og þínu kvarti og kveini) þegar þú ert síðan, eins og þú orðar það, "rakkaður" aðeins niður þegar þú ert nýbúinn að vanvirða einhvern sem var að hrósa þér.
Svo er ég sjálfur eigandi (og stórnotandi á) delidduðu golden 7700K chip, og fylgist mjög mikið með þessum málum, og ég veit ekki alveg með það að segja að 7700K sé bara "4%" verri heldur en R5 3600, eða að hann "afkasti einhvað smá meira", þegar 7700K er kannski sirka jafn góður í avg. fps í leikjum en R5 3600 er 35-60% betri í almennri vinnslu og miklu betri í 1% Low í öllum leikjum nema þeim sem eru keyrðir af lélegum engines skapaðar fyrir bara þá leiki sbr. Far Cry m. Dunia Engine, WWZ með Swarm Engine, Hitman m. "Hitman engine". En ég óska öllum góða helgi sömuleiðis.
https://www.techspot.com/review/1871-amd-ryzen-3600/