Síða 1 af 1

*GLÆNÝ OG ÓNOTUÐ* ASUS BORÐTÖLVA

Sent: Fös 05. Apr 2019 19:41
af sandraolafsd
Ég lét gera fyrir mig borðtölvu til að nota vinnutengt (video- og myndvinnslu) - Þegar ég ætlaði mér að setja upp klippiforritið sem ég nota þá er aðeins hægt að nota það í apple sem ég hafði ekki hugmynd um, virkaði í windows fyrir nokkrum árum - Þannig BIG FAIL hjá mér og ég hef ákveðið að selja tölvuna, glæný og alveg ónotuð. Vonandi er einhver til í að kaupa þessa flottu og góðu tölvu af mér, það væri win win situation :) Endilega hringja í mig í síma 8453424 ef þið hafið áhuga, ég kann ekkert á þessa síðu þannig það er fljótlegast að ná í mig þar. Getið séð dílinn sem ég fékk hjá computer.is á myndunum hér undir - þetta fer allt saman á 310 þús, fáránlega góður díll :)

Re: *GLÆNÝ OG ÓNOTUÐ* ASUS BORÐTÖLVA

Sent: Fös 05. Apr 2019 23:58
af sibbsibb
Þú vilt ekkert bara fara í annað klippi forrit og nota tölvuna ;)

Re: *GLÆNÝ OG ÓNOTUÐ* ASUS BORÐTÖLVA

Sent: Lau 06. Apr 2019 02:16
af Viktor
Sama og að ofan.

Ég er Apple notandi og elska stýrikerfið.

En Apple hefur verið að drulla upp á haus með allt svona "PRO" dæmi upp á síðkastið. Myndi alvarlega skoða að skipta yfir í önnur forrit til að vera með græjur á 50% af verðinu. Það er allskonar fólk að skipta yfir.


Re: *GLÆNÝ OG ÓNOTUÐ* ASUS BORÐTÖLVA

Sent: Lau 06. Apr 2019 03:04
af daremo
Gætir líka prófað að installa bara macos á þessa tölvu ef þér tekst ekki að selja hana.
Hér er þráður frá einhverjum sem tókst að installa á sama móðurborð og þú ert með.
https://forum.amd-osx.com/viewtopic.php?t=6255

Re: *GLÆNÝ OG ÓNOTUÐ* ASUS BORÐTÖLVA

Sent: Lau 06. Apr 2019 16:22
af sandraolafsd
Ég er bara búin að eyða rosalega miklum pening í það klippiforrit og ekki tilbúin að missa öll plugins sem ég á þar og basically kasta öllum þeim pening í ruslið.

Hey takk fyrir að benda mér á þetta, veit samt ekki hvort ég sé nógu vel að mér að kunna setja svona upp sjálf. Er ekkert vafasamt að installa macos í hana? Eru ekki miklar líkur á litlum villum hér og þar ef það er gert?

Re: *GLÆNÝ OG ÓNOTUÐ* ASUS BORÐTÖLVA

Sent: Lau 06. Apr 2019 17:31
af sibbsibb
Hvaða klippi forrit er þetta?

Re: *GLÆNÝ OG ÓNOTUÐ* ASUS BORÐTÖLVA

Sent: Lau 06. Apr 2019 20:08
af sandraolafsd
Final Cut pro...

Re: *GLÆNÝ OG ÓNOTUÐ* ASUS BORÐTÖLVA

Sent: Sun 07. Apr 2019 21:32
af sandraolafsd
UPP

Re: *GLÆNÝ OG ÓNOTUÐ* ASUS BORÐTÖLVA

Sent: Sun 07. Apr 2019 21:53
af CendenZ
Ég sé tvær leiðir í stöðunni,

1. selja vélina með tapi og kaupa apple vél, það er alveg glatað að setja upp hackintosh á amd vélar. GLATAÐ :face

2. Selja móðurborð og örgjörva með smá tapi, þetta selst strax hérna og kaupa 8th gen intel örgjörva og móðurborð í computer.is og suða aðeins í þeim og fá þá til að setja upp hackintosh, borgar bara fyrir macos og uppsetningarvinnu. 8th gen virkar 100% með hackintosh og búið að patsa svona megnið af því sem var í kringum flest chipsettin. Held að nýju 370 borðin virki out of the box og þau fást í computer.is.

Þú keyptir þitt duo á tæpan 70 þúsund og gætir selt á 50, kaupir 8700 og móðurborð á 70-80... mætir ýkt sorrý þangað og útskýrir fyrir þeim hvaða mistök þú gerðir og biður um að setja upp hackintosh.. borgar kannski 10-15 þús kall og þá er tapið þitt 40 fyrir íhluti sem er alveg ásættanlegt.

Re: *GLÆNÝ OG ÓNOTUÐ* ASUS BORÐTÖLVA

Sent: Sun 07. Apr 2019 22:14
af sandraolafsd
Takk fyrir þetta:) Þeir vita af stöðunni og bentu mér á þessa síðu, ég reyni aðeins lengur að selja þetta allt saman annars mun ég klárlega skoða þetta sem þú segir þótt ég skilji annaðhvert orð haha (kann ekkert í svona tölvumálum) - Takk æðislega

Re: *GLÆNÝ OG ÓNOTUÐ* ASUS BORÐTÖLVA

Sent: Sun 07. Apr 2019 23:41
af Mossi__
Hvaða klippiforrit ertu að nota ?

Re: *GLÆNÝ OG ÓNOTUÐ* ASUS BORÐTÖLVA

Sent: Mán 08. Apr 2019 12:13
af Theraiden
Mossi__ skrifaði:Hvaða klippiforrit ertu að nota ?


sandraolafsd skrifaði:Final Cut pro...

Re: *GLÆNÝ OG ÓNOTUÐ* ASUS BORÐTÖLVA

Sent: Mán 08. Apr 2019 17:02
af sandraolafsd
Upp
Sími 8453424 ef þið hafið áhuga

Re: *GLÆNÝ OG ÓNOTUÐ* ASUS BORÐTÖLVA

Sent: Mán 29. Apr 2019 01:00
af sandraolafsd
Tölvan seld en skjárinn eftir :)