Síða 1 af 1

Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Mán 25. Mar 2019 15:11
af jonket
Mér áskotnaðist nýtt skjákort svo ákvað að selja kort sem ég fékk í desember 2018

Kortið keypt í desember 2018 hjá comuter.is og því enn vel í ábyrgð.

Óska eftir tilboði

Re: Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Mán 25. Mar 2019 16:32
af niCky-
Allt of hátt verð, þessi kort hafa verið að fara á svona 20k. 1660 TI kostar 47k nýtt og er töluvert betra

Re: Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Mán 25. Mar 2019 20:00
af jonket
Bjóddu ef þú hefur áhuga. Annars ekki skipta þér af þessu.

Þoli ekki svona verðlöggur, svo ef verðið er lækkað þá vilja þeir kaupa.

Re: Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Þri 26. Mar 2019 09:50
af Dropi
jonket skrifaði:Bjóddu ef þú hefur áhuga. Annars ekki skipta þér af þessu.

Þoli ekki svona verðlöggur, svo ef verðið er lækkað þá vilja þeir kaupa.

Þetta er mjög eðlilegt á vaktinni, óþarfi að vera með dónaskap við manninn.

Re: Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Þri 26. Mar 2019 10:53
af jonket
Ekki dónaskapur. Óþarfi að eyðileggja innleggið.

Og ætti ekki að vera eðlilegt á vaktinni.

Fælir frá henni.

Re: Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Þri 26. Mar 2019 11:35
af Dropi
jonket skrifaði:Ekki dónaskapur. Óþarfi að eyðileggja innleggið.

Og ætti ekki að vera eðlilegt á vaktinni.

Fælir frá henni.

Er ég einn um að sjá kaldhæðnina hérna? Vaktin eins og ég skil hana er sérstaklega fyrir þá sem vilja ekki ofborga fyrir hluti, þessvegna eru verðlöggur hér en ekki á eins og bland eða facebook. Þar máttu rukka þar sem þér sýnist, en á vaktinni kemst enginn upp með það því mönnum situr ekki á sama þegar einhver er með of hátt verð.

Þetta er þrátt fyrir allt "verðvaktin".

Re: Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Þri 26. Mar 2019 12:19
af Alfur
Vel mæl Dropi.

Dropi skrifaði:

Sent: Þri 26. Mar 2019 13:23
af steiniofur
jonket skrifaði:Ekki dónaskapur. Óþarfi að eyðileggja innleggið.

Og ætti ekki að vera eðlilegt á vaktinni.

Fælir frá henni.

Það er enginn að eyðileggja neitt. Spjallborðið hefur ætíð tekið vel á móti verðlöggum og er kannski ein af ástæðunum fyrir því að spjallborðið er ennþá til.

Re: Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Þri 26. Mar 2019 13:24
af Viktor
GTX 1660

https://odyrid.is/vara/zotac-gaming-gef ... -6gb-gddr5
41.900 kr.

jonket skrifaði:Og ætti ekki að vera eðlilegt á vaktinni.

Fælir frá henni.

Það þarf ekki endilega að vera slæmt :japsmile

Það eru 109 notendur tengdir Vaktinni :: 43 skráðir, 2 faldir and 64 gestir
Þegar mest var, voru 732 tengdir þann Fim 01. Nóv 2018 19:52
Samtals innlegg 602630 • Fjöldi þráða 66658 • Fjöldi notenda 14372

Re: Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Þri 26. Mar 2019 14:25
af nonesenze
jonket skrifaði:Bjóddu ef þú hefur áhuga. Annars ekki skipta þér af þessu.

Þoli ekki svona verðlöggur, svo ef verðið er lækkað þá vilja þeir kaupa.

vaktin.is stendur fyrir verðvaktin s.s. vakta verðin aðalega á tölvu íhlutum notuðum og nýjum, ef þú þolir ekki verðlöggur þá legg ég til að þú reynir að svindla á fólki annar staðar, hér eru tillögur með verð velkomnar og vel metnar

ég veit ekki muninn á þínu korti og þessu hérna, en þetta er nýtt og kemur með nýrri ábyrð á 44.500kr
http://kisildalur.is/?p=2&id=3743

oftast er þumalputta regla með 70% af nýverði jafnvel af óopnuðum vörum sem koma ekki út úr búð
31þ eða 30þ væri sanngjarnt fyrir alla myndi ég halda

Re: Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Þri 26. Mar 2019 15:15
af jonket
nonesenze skrifaði:
ég veit ekki muninn á þínu korti og þessu hérna, en þetta er nýtt og kemur með nýrri ábyrð á 44.500kr
http://kisildalur.is/?p=2&id=3743

oftast er þumalputta regla með 70% af nýverði jafnvel af óopnuðum vörum sem koma ekki út úr búð
31þ eða 30þ væri sanngjarnt fyrir alla myndi ég halda

Ekki bera saman Powercolor og Sapphire.

https://www.computer.is/is/product/skjakort-sapphire-rx-580-8gb-nitro-dual-x

Og ef þú ert að tala um 30-31.000 þá er það 60%

Og það sem ég hef séð er að margir ef ekki flestir reyna að prútta ef þeir hafa áhuga.

En svo eru menn með t.d. verri kort (alla vega í undirskrift) og setja út á verðið. Það er ekki heiðarlegt prútt

Re: Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Þri 26. Mar 2019 15:25
af jonket
Verðlöggur eru ekki nauðsynlegar. Ef verðið er of hátt þá bara selst það ekki, einfalt mál.

Og ef ég verðlegg of hátt, þá fyndist mér í lagi að þessar verðlöggur myndu benda mér vinsamlega á það í einkaskilaboðum.

Ekki í söluinnleggi með svona innleggi:

Allt of hátt verð, þessi kort hafa verið að fara á svona 20k. 1660 TI kostar 47k nýtt og er töluvert betra

20K, þriggja mánaða kort sem kostar kr. 49.900.-

Það myndi ég kalla dónaskap sérstaklega frá einhverjum sem er með PNY GeForce GTX 570 (alla vega í undirskrift). Kannski í von um að fá það á 20k

Re: Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Þri 26. Mar 2019 15:29
af Viktor
[TS] Gigabyte Aorus Radeon RX580 8GB skjákort

drawmer88 skrifaði:Sjá hér: https://www.gigabyte.com/Graphics-Card/GV-RX580AORUS-8GD-rev-10-11#kf

Lítið notað. Tilboð óskast!

drawmer88 skrifaði:Einhver til í 20þús?

Re: Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Þri 26. Mar 2019 17:23
af Dropi
jonket skrifaði:Það myndi ég kalla dónaskap sérstaklega frá einhverjum sem er með PNY GeForce GTX 570 (alla vega í undirskrift).

jonket skrifaði:En svo eru menn með t.d. verri kort (alla vega í undirskrift) og setja út á verðið. Það er ekki heiðarlegt prútt

Hann hefði einfaldlega boðið þér 20 þúsund ef hann vildi kortið á því verði, það eru nokkur kort búin að koma og fara á því verði síðastliðnar viku. Ég fór fram á 25 fyrir mitt og seldi það á 22.

Eins og Sallarólegur setti inn hér fyrir ofan er svipað kort til sölu á 20 þús núna, ekki fara að ásaka manninn um óheiðarlegt prútt þegar hann er að reyna að benda þér á rétta verðhugmynd.

Það kemur þessu heldur ekkert við hvaða skjákort menn eru að nota sjálfir auk þess sem margir gleyma að uppfæra undirskriftir svo árum skiptir.

Re: Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Þri 26. Mar 2019 18:13
af jonket
Dropi skrifaði:
Eins og Sallarólegur setti inn hér fyrir ofan er svipað kort til sölu á 20 þús núna, ekki fara að ásaka manninn um óheiðarlegt prútt þegar hann er að reyna að benda þér á rétta verðhugmynd.

Það er hvernig hann fór að því. Kurteisi kostar ekkert

Re: Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Fim 02. Maí 2019 22:42
af gummijlo
Enn til ?

Re: Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Fös 03. Maí 2019 05:47
af jonket
Já, það er enn til.

Re: Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Fös 03. Maí 2019 08:45
af gummijlo
Verð í pm takk

Re: Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Lau 11. Maí 2019 22:38
af gunnimikki
er skjakortið til?

Re: Sapphire RX 580 8GB Nitro+ Dual-X

Sent: Sun 12. Maí 2019 08:39
af jonket