Síða 1 af 1

[Lækkað verð] Microlab Solo 7C 110W RMS hátalarar - 15þús

Sent: Mið 21. Mar 2018 18:15
af Klemmi
Sæl veriði,

vortiltektin hafin og hef ákveðið að selja þessa glæsilegu hátalara sökum þess hversu lítið ég nota þá :)

Þetta eru stórir, um 56cm á hæð, og flottir hátalarar með innbyggðum magnara, svo það þarf bara að stinga þeim í rafmagn og svo 3.5mm tengi fyrir tölvu/síma/eitthvað. Það eru tvö input sem einfalt er að skipta á milli.

Ég fékk hátalarana notaða hér á vaktinni, en þeir voru upprunalega keyptir í Kísildal, þar sem lýsingin var eftirfarandi:
Kísildalur skrifaði:Þessir eru fyrir þá sem vilja yfirburðar hljómgæði og kraftmikinn fluttning. Tvær 5.25" keilur skila pottþéttum bassa og miðjutónum, og vandaður tvíterinn sér um það sem upp á vantar. Tvö inntengi gefa möguleika á tengingu við tvö tæki og hægt er að skipta þar á milli og stjórna hljóðinu með meðfylgjandi fjarstýringu.


Þetta sett fékk á sínum tíma gullmerki hjá overclock3d.net :)

Hátalararnir líta ágætlega út, en það er þó aðeins losnað frá spóninum ofan á öðrum hátalaranum, sjá mynd.
Auka rafhlaða í fjarstýringu fylgir.

Verðhugmynd er 28þús 20þús 15þús sem ætti að flokkast sem þjófnaður á þessum hátölurum.

Bestu kveðjur,
Klemmi

wo-cover.jpg
wo-cover.jpg (103.71 KiB) Skoðað 2104 sinnum
w-cover.jpg
w-cover.jpg (46.06 KiB) Skoðað 2104 sinnum
top.jpg
top.jpg (47.19 KiB) Skoðað 2104 sinnum
loose.jpg
loose.jpg (113.12 KiB) Skoðað 2104 sinnum

Re: [TS] Microlab Solo 7C 110W RMS hátalarar - 28þús

Sent: Fim 22. Mar 2018 08:48
af Klemmi
Bump :)

Re: [TS] Microlab Solo 7C 110W RMS hátalarar - 28þús

Sent: Sun 25. Mar 2018 22:21
af Klemmi
Ekki vera feimin!

Re: [TS] Microlab Solo 7C 110W RMS hátalarar - 28þús

Sent: Mán 26. Mar 2018 16:53
af Klemmi
Mynd

Re: [TS] Microlab Solo 7C 110W RMS hátalarar - 28þús

Sent: Þri 27. Mar 2018 10:29
af Klemmi
Læti.

Re: [TS] Microlab Solo 7C 110W RMS hátalarar - 28þús

Sent: Þri 27. Mar 2018 15:11
af ÓmarSmith
Læti ?

Er Valdimar mættur ? ( badúmmtizz ), frítt bump

Re: [TS] Microlab Solo 7C 110W RMS hátalarar - 28þús

Sent: Fim 10. Maí 2018 00:29
af atlithor
Ennþá til?

Re: [TS] Microlab Solo 7C 110W RMS hátalarar - 28þús

Sent: Fim 10. Maí 2018 01:06
af Klemmi
atlithor skrifaði:Ennþá til?


Heyrðu já, sitja bara ónotaðir inn í stofu :)

Re: [TS] Microlab Solo 7C 110W RMS hátalarar - 28þús

Sent: Fim 10. Maí 2018 19:21
af Klemmi
atlithor skrifaði:Ennþá til?


Geta farið á 25þús ef þú hefur áhuga ;)

Re: [LÆKKAÐ VERÐ] Microlab Solo 7C 110W RMS hátalarar - 20þús

Sent: Mán 06. Ágú 2018 16:46
af Klemmi
Komum þessum í notkun.

Re: [LÆKKAÐ VERÐ] Microlab Solo 7C 110W RMS hátalarar - 20þús

Sent: Þri 07. Ágú 2018 11:10
af Klemmi

Re: [ENN MEIRA LÆKKAÐ VERÐ] Microlab Solo 7C 110W RMS hátalarar - 15þús

Sent: Mið 10. Okt 2018 17:00
af Klemmi
Jæja, vantar engum góða tölvuhátalara?

Re: [Lækkað verð] Microlab Solo 7C 110W RMS hátalarar - 15þús

Sent: Fim 11. Okt 2018 23:21
af Klemmi
Aftur í sölu!