Síða 1 af 1

TS: 22" Philips skjár 1680x1050

Sent: Þri 06. Feb 2018 01:12
af Danni V8
24" Samsung Synchmaster P2450H skjár 1920x1080
Ég notaði þennan skjá daglega í mörg ár. Slær ekki feilpúst og myndin er mjög góð. Eina ástæðan fyrir því að ég skipt honum út var vegna þess að ég vildi fá mér 144hz+ skjá og þessi er bara 60hz.

Hann er með HDMI og DVI input tengi og 3,5mm jack og optical output tengi fyrir hljóð.

Frekari specs er að finna hér: http://www.samsung.com/us/computer/moni ... V/ZA-specs

Verðhugmynd: 10.000kr
SELDUR

22" Philips Brilliance 220CW skjár 1680x1050
Þessi skjár var notaður síðast fyrir nokkrum árum þegar ég var með þá dellu í kollinum að tveggja skjáa setup meikaði sense. Ég endaði á að scrappa þá hugmynd og nota bara einn skjá og setti þennan inní skáp og gleymdi honum bara.

Hann er með VGA og DVI input.

Frekari specs hér: https://www.philips.co.uk/c-p/220C1SB_0 ... ifications

ATH. Það er einn dauður pixell á leiðinlegum stað. Neðarlega, nokkurnvegin fyrir miðjum skjánum. Ef ég man rétt lendir hann akkúrat á línunni þar sem taskbar-inn og desktop myndin mætast í Windows 7, eða þá þar rétt fyrir ofan.

Verðhugmynd: 5.000kr

Samsung Galaxy S6 128gb sími, gullitaður
Keypti þennan síma í Símanum sumarið 2015. Notaði hann daglega þar til ég fékk mér minn núverandi iPhone 8+, sem er töluvert leiðinlegri sími, að mínu mati.

Ég notaði símann ekkert rosalega mikið yfir daginn, var oftast uppá borði á meðan ég var að vinna, en hleðslan dugaði svona ca daginn. Daga sem það var rólegt að gera í vinnunni þurfti ég að hlaða hann um leið og ég kom heim og þegar það var svo gott sem ekkert að gera þurfti ég að hlaða hann í vinnunni, seinnipartinn.

Hann er með upprunalegu rafhlöðinni og hefur aldrei brotnað eða þurft að fara í viðgerð. Ég hlóð hann oftast wireless með svona IKEA platta þar sem að ég veit að Micro-USB tengin á þessum símum eru með vesen og hætta að virka eftir einhvern tíma, og ég vildi koma í veg fyrir það. Það virkaði og tengið er ennþá í fullu fjöri. Datt einu sinni í gólfið án hulsturs (þegar ég segi gólfið meina ég gangstéttina) og ég fylgdi með enda haugölvaður. Þá var hann spánýr og í staðin fyrir þynnkuborgara keypti ég þynnkuhulstur á símann morguninn eftir, sem hann hefur verið í síðan. Það eru því smá rispur á einu horninu eftir það.

Speccar: http://www.samsung.com/global/galaxy/ga ... s6/#!/spec

Verðhugmynd: 20.000kr
SELDUR

Verðlöggur velkomnar, sömuleiðis öll tilboð.
S: 867-5202

Re: TS: 24" Samsung skjár, Galaxy S6 sími og 22" Philips skjár

Sent: Fös 09. Feb 2018 00:55
af Danni V8
TTT

Re: TS: 24" Samsung skjár, Galaxy S6 sími og 22" Philips skjár

Sent: Fös 09. Feb 2018 11:59
af Viktor
Ég er að leita að 1920x1080 á 5000kr ef þú hefur áhuga

Re: TS: 24" Samsung skjár, Galaxy S6 sími og 22" Philips skjár

Sent: Sun 11. Feb 2018 21:47
af Danni V8
Sallarólegur skrifaði:Ég er að leita að 1920x1080 á 5000kr ef þú hefur áhuga


Ég er ekki tilbúinn að fara svo neðarlega með Samsung skjáinn.

Re: TS: 24" Samsung skjár, Galaxy S6 sími og 22" Philips skjár

Sent: Mán 12. Feb 2018 22:48
af Danni V8
24" skjárinn er seldur. Hitt er ennþá til og er opinn fyrir tilboðum.

Re: TS: 22" Philips skjár 1680x1050

Sent: Sun 18. Feb 2018 12:22
af Danni V8
Aðeins Philips skjárinn er eftir.