Síða 1 af 1

[SELT] MSI Geforce 690 GTX

Sent: Mán 08. Des 2014 14:51
af kiddi
Er með í umboðssölu fyrir félaga minn, þetta frábæra skjákort sem var keypt fyrir 18 mánuðum á slétt 200þ. hjá Tölvulistanum.

Mynd
http://www.msi.com/product/vga/N690GTXP3D4GD5.html#hero-overview

Neðarlega á GPUBoss.com má sjá tæknilegan samanburð á specs, kosti og galla 690 GTX miðað við 980 GTX sem myndi teljast sem nánasti keppinautur þessa korts.
http://gpuboss.com/gpus/GeForce-GTX-980 ... ce-GTX-690" onclick="window.open(this.href);return false;

Ég var sjálfur með þetta tiltekna kort í láni rétt áður en ég eignaðist 980 GTX sjálfur, en ég á 3DMark benchmarks af báðum kortum sem leit svona út:

Mynd

Eins og þið sjáið þá gefur þetta 980 GTX kortinu lítið sem ekkert eftir, og 690GTX styður að auki DirectX 12 og er því langt í frá úrelt. Þetta kort er lítið notað, vel með farið og kemur í upprunalegum umbúðum ásamt Display>MiniDisplay port millistykki sem fylgdi með. Kortið styður DVI > HDMI, þeas. getur flutt hljóð í gegnum DVI og yfir í HDMI, en það fylgir ekki DVI>HDMI millistykki hinsvegar.

Verð: 75.000
Verð: 70.000
Verð: 65.000
Verð: 64.000
Verð: 63.000
Verð: 61.000 SELT

Re: [TS] MSI Geforce 690 GTX

Sent: Mán 08. Des 2014 16:02
af krat

Re: [TS] MSI Geforce 690 GTX

Sent: Mán 08. Des 2014 16:08
af kiddi
Takk fyrir að finna óhagstæðasta benchmark sem til er á netinu fyrir akkurat þetta kort til að keyra niður verðið :) Þetta tiltekna benchmark finnst mér engan veginn sýna "real life" mun á milli kortanna, eins og sést á 3DMark benchmarkinu hér að ofan þá er munur í leikjum svo til enginn á milli þessara korta. Ég fann engan mun á 690GTX vs 980GTX þegar ég prófaði Call of Duty Advanced Warfare, Assassins Creed Unity og Shadow of Mordor. Ég fatta ekki alveg hvernig þetta benchmark nær að mælast 50% slakara en 980GTX, það hlýtur bara að vera að þau forrit sem voru notuð hafi bara séð annan örgjörvann á kortinu af tveim, en 690GTX er einmitt samsett af 2x 680 kortum.

En ég fagna svosem öllum tilboðum, en nei takk - ómögulega, 50k sala kemur ekki til greina :)

Re: [TS] MSI Geforce 690 GTX

Sent: Mán 08. Des 2014 16:23
af worghal
krat skrifaði:http://www.videocardbenchmark.net/high_end_gpus.html

býð 50þús í kortið

690 er fyrir neðan 670 og 680, augljóslega er eitthvað að þarna!

Re: [TS] MSI Geforce 690 GTX

Sent: Mán 08. Des 2014 18:04
af hjalti8
worghal skrifaði:
krat skrifaði:http://www.videocardbenchmark.net/high_end_gpus.html

býð 50þús í kortið

690 er fyrir neðan 670 og 680, augljóslega er eitthvað að þarna!


ótrúlegt hvað þessu hræðilega bench-i er oft póstað hérna, það hefur aldrei meikað sense..

avg úr 19 mismunandi nýlegum leikjum:
Mynd

Mynd
source

Re: [TS] MSI Geforce 690 GTX

Sent: Mán 08. Des 2014 18:19
af MatroX
þetta er mjög flott verð á þessu korti sérstaklega þegar það er eitthver ábyrgð eftir :D

Re: [TS] MSI Geforce 690 GTX

Sent: Mán 08. Des 2014 22:39
af kiddi
Já þetta er ekki ömurlegt verð :) Hér í þessu reviewi um MSI 980 GTX kortið (þetta sem ég á) eru mælingar þar sem 690 GTX kortið kemur fyrir líka, það fer enginn að segja mér að þetta kort sé ekki á hálfkvisti við 980GTX. 690GTX kortið er jafnvel að outperforma 980GTX reference kortið frá Nvidia á nokkrum stöðum:

http://www.techpowerup.com/reviews/MSI/ ... ng/25.html

Mynd

Svo er reyndar annar factor í þessu, þessi nýju 9-línu kort frá Nvidia finnst mér alveg hryllilega ljót, hjá MSI, ASUS og öðrum, forljót alveg. Og þetta segi ég þó ég eigi 2x MSI 980 kort :( Þetta 690 er hinsvegar gullfallegt í þessu flotta "kubbaformi", og með þessu klassíska græna glóandi GEFORCE GTX letri. Það endar með að ég kaupi þetta kort sjálfur bara.

Re: [TS] MSI Geforce 690 GTX

Sent: Þri 09. Des 2014 12:45
af kiddi
Lækkað verð: 70.000 kr.

Re: [TS] MSI Geforce 690 GTX

Sent: Fim 11. Des 2014 12:19
af kiddi
Lækkað verð: 65.000 kr.

Ég held ég kaupi kortið sjálfur af félaga mínum með þessu áframhaldi :)

Re: [TS] MSI Geforce 690 GTX

Sent: Mán 15. Des 2014 09:56
af kiddi
Lækkað verð: 64.000 kr.

Ég keypti kortið sjálfur svo ég gæti fært vinnuskjákortið heim og verið með 2x 980GTX í SLI heima \:D/ En það er einhver tímabundin geðveiki bara, svo ég ætla að halda þessu korti áfram til sölu á meðan ég benchmarka heimavélina í drasl. PS. Lækkað verð!

Re: [TS] MSI Geforce 690 GTX

Sent: Þri 16. Des 2014 17:09
af kiddi
Lækkað verð: 63.000 kr.

Tick-tock!

Re: [TS] MSI Geforce 690 GTX

Sent: Þri 16. Des 2014 17:22
af Klemmi
kiddi skrifaði:Lækkað verð: 63.000 kr.

Tick-tock!


Það er nú lítið freistandi að festa kaup í kortinu ef maður sér að þú lækkar það um nokkra þúsundkalla í hverri viku ;)

Re: [TS] MSI Geforce 690 GTX

Sent: Þri 16. Des 2014 17:33
af kiddi
Þetta á náttúrulega að vera hvati til að grípa kortið áður en næsti maður stekkur á það :hugenose Það þýðir ekki að bíða endalaust og sjá hversu lágt þetta fer - einhver hlýtur að kaupa það á endanum, bara spurning hvort það verði þú eða einhver annar :D

Re: [TS] MSI Geforce 690 GTX

Sent: Fim 18. Des 2014 12:30
af kiddi
Lækkað verð: 61.000 kr.

Nú fer hver að verða síðastur að grípa gullgæsina áður en hún fer aftur inn í kofann sinn! \:D/

Re: [TS] MSI Geforce 690 GTX

Sent: Mán 05. Jan 2015 10:50
af kiddi
Lækkað verð: 60.000 kr.

Ka-ching!

Re: [TS] MSI Geforce 690 GTX

Sent: Þri 06. Jan 2015 11:37
af kiddi
SELT