jonsig skrifaði:Það er raffræðilega óhagstætt að hafa of stóran aflgjafa . Annars hefði ég örugglega boðið betur , langar í almennilegan aflgjafa .
Aflgjafar hafa almennt beztu nýtnina við 50%, í tilfelli 80+ gold certified aflgjafa skulu þeir skila a.m.k. 88% við 20% uppgefins álags, 92% við 50% álag og 88% við 100% álag.
Það eru svipaðar kröfur gerðar til nýtni við 20% álags á gull-vottuðum aflgjafa og á 50% á silfur-vottuðum. Gefið að þessi aflgjafi fari ekki á mikið hærra verði en 25 þúsund krónur og sé þá almennt undir verðinu á silfurvottuðum aflgjöfum með lægra hámarksúttak, að þá get ég ekki verið sammála því að það sé raffræðilega óhagstætt að kaupa þennan aflgjafa því hann sé of stór, því að þú færð ekki betri nýtingu, óháð álagi, fyrir minni pening.
Afsakið derail á þræðinum, fannst þetta bara skrítin og að mínu mati röng fullyrðing.