Síða 1 af 1
PS3 til sölu
Sent: Þri 28. Maí 2013 14:31
af benediktkr
Er með PlayStation 3 tölvu til sölu. Ekki slim. 60Gb.
Tvær fjarstýringar. Önnur er dual-shock, hin er fjarstýringin sem kom með vélini.
Ég veit ekki um aldurinn á henni, ég keypti hana notaða í fyrra. Ástæða sölu er að ég nota hana aldrei.
Ég á einhvern slatta af leikjum sem ég vill helst láta fylgja með. Listi kemur seinna í dag. Þeir sem ég man eftir eru:
- GTA 4
- Assassins Creed 2
Verð (með leikjum): 32 þúsund. (Verðlöggur eru hvattar til að gera athugasemdir)
Re: PS3 til sölu
Sent: Þri 28. Maí 2013 17:09
af kizi86
2 spurningar, hvaða firmware version er á henni, og getur hún spilað ps2 leiki?
Re: PS3 til sölu
Sent: Þri 28. Maí 2013 18:49
af benediktkr
kizi86 skrifaði:2 spurningar, hvaða firmware version er á henni, og getur hún spilað ps2 leiki?
Ég hef ekki átt við firmwarið í henni, og það er (mér vitandi) ekki hægt að spila ps2 leiki í henni.
Re: PS3 til sölu
Sent: Þri 28. Maí 2013 20:11
af Stuffz
hvað margir leikir?
vá ég á eina PS3 með 2.82 firmware held ég, las að stuðningur við annað stýrikerfi væri ekki til staðar í 3.0 svo uppfærði aldrei afþví ég vildi eiga möguleikann á að hafa Yellow Dog Linux á henni eða annað linux, svo var maður alltaf að vonast til að eitthverjir hackuðu græjuna svo hægt væri að keyra Windows á henni en já ekkert mikið notað mína heldur, hávaðasöm og gefur frá sér mikinn hita, var að nota hana til að ylja mér á tánum eftir vinnu þarna á tíma einn veturinn lol
það á að vera hægt að raðtengja PS3 tölvur, svo ef maður kæmist yfir margar ódýrt þá gæti maður búið sér til mini-ofurtölvu


Re: PS3 til sölu
Sent: Þri 28. Maí 2013 23:51
af kizi86
benediktkr skrifaði:kizi86 skrifaði:2 spurningar, hvaða firmware version er á henni, og getur hún spilað ps2 leiki?
Ég hef ekki átt við firmwarið í henni, og það er (mér vitandi) ekki hægt að spila ps2 leiki í henni.
ef ég myndi bjóða í þessa vél verð ég að vita nákvæmlega hvaða firmware er inn á henni, þannig að það væri fínt ef gætir póstað því
Re: PS3 til sölu
Sent: Mið 29. Maí 2013 10:33
af benediktkr
kizi86: Það fer eftir því hvort þú viljir kaupa bara tölvuna eða allt.
Stuffz: ég gleymdi að fara yfir leikina í gær, en þeir eru ca 10-12 iirc. En það er hægt að raðtengja þær
http://en.wikipedia.org/wiki/Cell_(microprocessor)#Supercomputing.
Ég keypti þessa tölvu notaða í fyrra, notaði hana í nokkrar vikur en síðan er hún búin að sitja uppi í hillu.
Re: PS3 til sölu
Sent: Mið 29. Maí 2013 11:49
af dori
Ástæðan fyrir því að kizi er að spurja um firmware er sú að það er uppfært sjálfkrafa (með software update) og þú getur ekki bakkað með það nema einhver sé búinn að fatta hvernig á að hakka það tiltekna firmware.
Sony tóku líka út möguleikann á því að keyra Linux á þeim með einni svona firmware uppfærslu... Og ekki hægt að bakka með það...
Re: PS3 til sölu
Sent: Mið 29. Maí 2013 11:57
af benediktkr
Ég las einmitt um þetta þegar ég keypti hana, þú komst mér á rétt spor núna dori. Það er búið að uppfæra firmwarið framhjá þeim punkti að það sé hægt að keyra Linux á henni, varð smá svekktur yfir því.
Verðið er alls ekki heilagt, en mig langar helst að losna við þetta allt þar sem þetta situr bara uppi í hillu og safnar ryki.
Re: PS3 til sölu
Sent: Mið 29. Maí 2013 17:19
af Stuffz
dori skrifaði:Ástæðan fyrir því að kizi er að spurja um firmware er sú að það er uppfært sjálfkrafa (með software update) og þú getur ekki bakkað með það nema einhver sé búinn að fatta hvernig á að hakka það tiltekna firmware.
Sony tóku líka út möguleikann á því að keyra Linux á þeim með einni svona firmware uppfærslu... Og ekki hægt að bakka með það...
Já það var í 3.0
ég uppfærði aldrei mína yfir 3.0 svo ég get keyrt Linux ef ég vil.
líka 60gb útgáfan er með hardware chippi fyrir PS2 leikja spilun (Alvöru chippinu) , 80gb útgáfan er með software emulation, og 40gb útgáfan getur ekki spilað PS2 leiki.

Svo í rauninni er 60gb útgáfan af PS3 bæði PS2 og PS3 í einni vél.
Re: PS3 til sölu
Sent: Mið 29. Maí 2013 18:09
af marijuana
Fer reyndar eftir því hvaða útgáfa af 80GB þú ert með hvort hún geti þetta. ;-)
CECHE01 = backwards compatable útgáfa af 80GB tölvunni.
Re: PS3 til sölu
Sent: Mið 29. Maí 2013 19:50
af benediktkr
Þá vitum við það - ég er að selja 60GB tölvu og hún getur þá spilað ps2 leiki. Hver vill kaupa hana?
Re: PS3 til sölu
Sent: Mið 29. Maí 2013 20:51
af kizi86
dori skrifaði:Ástæðan fyrir því að kizi er að spurja um firmware er sú að það er uppfært sjálfkrafa (með software update) og þú getur ekki bakkað með það nema einhver sé búinn að fatta hvernig á að hakka það tiltekna firmware.
Sony tóku líka út möguleikann á því að keyra Linux á þeim með einni svona firmware uppfærslu... Og ekki hægt að bakka með það...
jamm ástæðan fyrir spurningu minni er sú að ef firmware er yfir 3.55 þá þarf hardware mod til að downgrade-a hana, til að geta sett custom firmware á hana, er að leita mér að vél sem getur runnað cfw..
Re: PS3 til sölu
Sent: Mið 29. Maí 2013 23:33
af Stuffz
benediktkr skrifaði:Þá vitum við það - ég er að selja 60GB tölvu og hún getur þá spilað ps2 leiki. Hver vill kaupa hana?
einn gaur í vinnunni var að spá í PS3 ég nefndi þessa hérna afþví ég er ekki að selja mína, það eiginlega drap áhugann hjá honum að ég gat ekki sagt hvaða leikir þetta eru sem þú ert að tala um að fylgi með og ætlaðir að setja inn lista seinna í dag

Re: PS3 til sölu
Sent: Fim 30. Maí 2013 11:01
af benediktkr
Stuffz skrifaði:benediktkr skrifaði:Þá vitum við það - ég er að selja 60GB tölvu og hún getur þá spilað ps2 leiki. Hver vill kaupa hana?
einn gaur í vinnunni var að spá í PS3 ég nefndi þessa hérna afþví ég er ekki að selja mína, það eiginlega drap áhugann hjá honum að ég gat ekki sagt hvaða leikir þetta eru sem þú ert að tala um að fylgi með og ætlaðir að setja inn lista seinna í dag

Ég er slappur sölumaður. Tek saman listan þegar ég kem heim, lofa

Re: PS3 til sölu
Sent: Þri 06. Ágú 2013 14:56
af kristbergur
er þessi ennþá til sölu eða er þetta búið
Re: PS3 til sölu
Sent: Fös 20. Sep 2013 17:40
af Joi
23 fyrir tölvuna og fjarstýringarnar
Re: PS3 til sölu
Sent: Fös 04. Okt 2013 17:33
af tomasingi15
Borga 25þúsund fyrir tölvu og 1 fjarstyringu. Núna.
Re: PS3 til sölu
Sent: Lau 05. Okt 2013 17:31
af benediktkr
Þessi er löngu seld. Fór á 28 þúsund.