Síða 1 af 2
[TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Mið 02. Jan 2013 00:52
af qurr
Tölva, skjár 22" ,lyklaborð, mús og hátalarar.
Turn: Antec p182 m/4 viftum.
Móðurborð: Gigabyte dual BIOS (GA-EP43-DS3L).
Örgjafni: Intel core 2 duo E8400 3 GHz dual-core (BX80570E8400A).
Kæling fyrir örgjörva: OZD technology 10cm.
Vinnsluminni: OCZ gold PC2 8500 8GB - 4x2 DDR2-RAM (OCZ2G10664GK).
Skjákort: ASUS Nvidia GeForce GTX 560 Ti 1GB Ti DCII/2DI/1GD5 (ENGTX560).
Harði diskur: Western digital 1TB SATA 3.5 (WD10EARS-00Y5B1).
Harði diskur: Seagate Barracuda 7200.11 500GB.
Aflgjafi: Gigabyte SUPERB 550P (GE-P450P-C2).
Geisladrif: Samsung DVD-skrifari SATA.
Þráðlaust net kort: Planet 802.11b g wireless pci adapter 3 loftnet.
Skjár: Fujitsu-Siemens 22" LCD SCALEOVIEW, (L22W-7SD).
Hátalarar: Logitech R010, (S-0152B1).
Lyklaborð: HP USB .
Mús: A4Tech OP-620D.
Verðlögreglu. Pakki upp á 187.500,-kr
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Mið 02. Jan 2013 01:11
af Yawnk
Hvar er þessi ofurleikjatölva?
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Mið 02. Jan 2013 01:36
af g0tlife
og ég hélt að mín væri ofur
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Mán 07. Jan 2013 22:42
af Nitruz
Hehe rick rolled
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 15:15
af MatroX
mér sýnist dvd skrifarinn vera eina ofur dæmið þarna:)
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 16:01
af playman
187þ hva? er það 5 ára gamalt verð?
Vélin sem ég er með í undirskrift kostaði rétt yfir 200þ og hún tekur þessa vél hjá þér og skeinir sig á henni.
Þetta er kanski 80þ króna vél hjá þér.
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 16:35
af Tiger
Ekkert Ofur við þetta nema ofurbjartsýni seljanda.......

Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 17:57
af qurr
Sannleikurinn er sá að bróður minn yngri er of stoltur til að þyggja frá mér ráð eða hjálp, sem ég skil alveg. En hann lét narra sig í að kaupa þennan pakka á 110.000,-kr. Svo auðvitað manaði hann sig upp í það hringja í mig með tæknilega hjálp. Allavega þá endaði það símtal eftir 1 & hálfan tíma og núna er málið komið til lögfræðings. Ég vildi verð frá ykkur því Vaktin.is er vinnsælasti tölvunar staðurinn á Íslandi og verðlögreglan hérna er mjög nákvæm. En ég verð að viðurkenna að hún var ekki upp á sitt besta núna

Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 18:02
af qurr
playman skrifaði:187þ hva? er það 5 ára gamalt verð?
Vélin sem ég er með í undirskrift kostaði rétt yfir 200þ og hún tekur þessa vél hjá þér og skeinir sig á henni.
Þetta er kanski 80þ króna vél hjá þér.
Þín vél er öflug, stendur samt ekki hvort þú sért með viftur? Svo er engin ástæða til að eiga Ferarí á Íslandi í dag!
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 18:06
af playman
qurr skrifaði:Sannleikurinn er sá að bróður minn yngri er of stoltur til að þyggja frá mér ráð eða hjálp, sem ég skil alveg. En hann lét narra sig í að kaupa þennan pakka á 110.000,-kr. Svo auðvitað manaði hann sig upp í það hringja í mig með tæknilega hjálp. Allavega þá endaði það símtal eftir 1 & hálfan tíma og núna er málið komið til lögfræðings. Ég vildi verð frá ykkur því Vaktin.is er vinnsælasti tölvunar staðurinn á Íslandi og verðlögreglan hérna er mjög nákvæm. En ég verð að viðurkenna að hún var ekki upp á sitt besta núna

Þetta meikar eingann sense hjá þér.
Kemur hingað með TS auglýsingu á "ofurtölvu" uppá 180þ, svo kemuru og seygir að bróðir þinn hafi keypt hana á 110þ og að lögfræðingur er komin í málið.
](./images/smilies/eusa_wall.gif)
dafuq?
hvað varstu að reyna að gera?
Varstu að reyna selja okkur vélina á fáránlegu verði?
eða varstu að reyna að fá hvað vélin er metin á hjá þér?
Ef þu varst að reyna fá verð á vélinni, afhverju drattaðistu ekki bara að seygja það strax?
Og svo annað mál, hvar keypti hann vélina? bland.is eða?
qurr skrifaði:playman skrifaði:187þ hva? er það 5 ára gamalt verð?
Vélin sem ég er með í undirskrift kostaði rétt yfir 200þ og hún tekur þessa vél hjá þér og skeinir sig á henni.
Þetta er kanski 80þ króna vél hjá þér.
Þín vél er öflug, stendur samt ekki hvort þú sért með viftur? Svo er engin ástæða til að eiga Ferarí á Íslandi í dag!
Hvað ertu að rugla? er ekki komin timi fyrir þig að kíkja ínná vog eða eithvað

Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 18:15
af qurr
Jább (Var að renna upp fyrir mér að ég gæti verið að brjóta reglur). Ég vildi ekki umræðu í kringum þessa vél heldur bara hrátt verð mat. Og auðvitað var hún keypt á bland.is.
Ekki vera fúll samt! Þótt maður eigi flotta tölvu er það sá sem stjórnar henni sem skiptir máli. Óþarfi að tala um að "skeina sér". Ég hef hugsað um að kaupa svona tölvu en það er eins og að eiga bíl með 500 hestöfl og getað bara nota 50. Svo er þetta ekki endurhæfingar grubba þetta er söllu þráður svo reyndu að vera fyndinn annarstaðar!
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 18:31
af oskar9
já því þessi vél keyrir nefnilega alla nýjustu leikina í svo flottum gæðum á 200 FPS að það er enginn þörf á öflugri ??
Að líkja því að eiga öfluga tölvu við að eiga Supercar á Íslandi er einhver sú bjánalegasta líking sem ég hef heyrt
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 18:37
af qurr
Nei vegna þess að hún er í raun og veru of öflug fyrir í það sem ég er að nota hana í. En kúl fyrir ykkur.
Hahahaha ég hef heyrt brjálaðri lýsingar en það.
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 18:43
af oskar9
Það gefur auga leið að þetta er þrusutölva og meira en nóg fyrir 80% þeirra sem búa á þessu landi, en erfitt að koma inná stærsta tölvuspjall landsins þar sem annar hver maður er með mulningsvél uppá borði hjá sér og auglýsa þetta eins og þú gerir og fúlsa svo við þeim kommentum að þetta verð er útúr kú( sem það er )
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 18:47
af vesi
þó svo hún sé öflugri en það sem þú notar hana í, gerir íhlutina bara ekkert verðmeiri. þú óskaðir eftir verðmati en ert svo ekki sáttur við það sem þú færð,., seldu þetta þá bara annarstaðar.
Mikill meirihluti þeirra sem gefa þér verðmat hér eru anns nálægt sannleikanum enda miklir fagmenn hér á ferð.
Afhverju vilduru ekki ummræðu um þessa vél
Kúl fyrir okkur hvað???
Þar sem þér fynst "við" ekki vera standa okkur í verðlagningu, Farðu og findu linka m/verðum á Isl, á allt af þessu drasli og sýndu okkur hversu vitlaust þetta er hjá okkur svart á hvítu!!
Kveðja
vesi
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 18:50
af ZiRiuS
Lol á þennan þráð og öll innleggin!
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 18:52
af qurr
Nei látið hann rúlla . . .
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 19:06
af MatroX
rétt verð á þessu ætti að vera 55-70þús
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 19:08
af qurr
Söluþráðurinn snýst um að litli bróður minn keypti handónýta tölvu á 110þ kall, ég vildi fá verðmat í hana hér án umræðu. Eftir rúma viku þá helypti ég þeim inn sem höfðu svarað henni að ég væri ekki að selja hana heldur að fá verð í hana til fá annað álit. (Ekki til að fara með það til lögfræðings). Allir íhlutir eru googlaðir og útlensk verð því þessir hlutir eru bara flestir ekki seldir lengur hér á Íslandi. Ég hefði kannski borgað 50þ fyrir hana ef aðstæður væru þannig. Hann snýst ekki um að nakk rífast en ég hef alltaf pínu gaman af því að sjá fólk springa.
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 19:15
af vesi
hver er að springa eða rífast.
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 19:17
af Maniax
Afhverju gerðiru söluþráð á vél sem er svo ekki til sölu?
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 19:26
af qurr
Ég var að segja það, til þess að fá annað álit. En ég verð að fara skoða reglunar betur. Verðlöggan eru ketlingar miða við stjórnendunar.
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 20:54
af Zorky
Af hverju baðstu þá ekki um verðmat afhverju auglýsirðu þetta eins og hún væri til sölu [TS] = Til Sölu, þetta þýðir ekki verðmat og er í vitlausum dálk líka hér er rétti dálkurin
viewforum.php?f=55 ekki flókið að finna hann.
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 21:02
af qurr
Viltu svar við þessu eða viltu athyggli?
Re: [TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur.
Sent: Þri 08. Jan 2013 21:19
af Sigurður Á
qurr skrifaði:Viltu svar við þessu eða viltu athyggli?
[TS] Ofurleikjatölvupakki hljóðlátur. hvaða máli kemur það við í verðmati að pakkinn sé hljóðlátur held þú hafir bara skituð uppá bak og sért að reyna að vera cool með að spóla þig úr bullinu
