Síða 1 af 1

Android 4,1 Mini Pc

Sent: Fim 22. Nóv 2012 17:36
af thule
Til Sölu

Re: Android 4,1 Mini Pc

Sent: Fim 22. Nóv 2012 19:05
af viggib
Hmm.
Það er hægt að fá þessar vélar á 63$ !
http://www.aliexpress.com/store/product ... 0101&vd=30

Re: Android 4,1 Mini Pc

Sent: Mán 26. Nóv 2012 13:37
af thule
ok

Re: Android 4,1 Mini Pc

Sent: Mán 26. Nóv 2012 13:45
af playman
Þetta spilar 1080p, en getur hann spilað það í gegnum WIFI?
10gb+ skrár á hökts og allt það?

Re: Android 4,1 Mini Pc

Sent: Mán 26. Nóv 2012 13:51
af MatroX
þetta kostar hingað komið nýtt að utan innað við 8þús ég skal taka þetta á 4þús hjá þér

Re: Android 4,1 Mini Pc

Sent: Mán 26. Nóv 2012 14:12
af Vaski
þetta kostar hingað komið nýtt að utan innað við 8þús ég skal taka þetta á 4þús hjá þér

Hvernig færðu það út? Getur þú bent mér á búðina þar sem þú færð þetta hingað á innað við 8.000? Ég gef mér að það sé fyrir utan íslensk gjöld.

Re: Android 4,1 Mini Pc

Sent: Mán 26. Nóv 2012 15:45
af siggi83
Mynd
Þessi týpa kostar 10.203 kr. til Íslands.
Hér er linkurinn

Re: Android 4,1 Mini Pc

Sent: Mán 26. Nóv 2012 16:03
af dori
Líka fullt af svona dóti á ebay á bilinu $50-60. Það er nokkuð ljóst að ef þetta var keypt á verði sem réttlætir það að endurselja það á 25000 kr. þá var það mjög slæmur díll.

8000 kr. nýtt er samt kannski smá ýkjur (sérstaklega þegar það þarf að bæta tollmeðferðargjöldum við þennan 10 þúsund kall). Ég held að m.v. þetta $65 verð þá væri 12.500-15000 kr. sanngjarnt endursöluverð (á ónotuðum svona hlut).

Re: Android 4,1 Mini Pc

Sent: Mán 26. Nóv 2012 16:05
af MatroX
Vaski skrifaði:
þetta kostar hingað komið nýtt að utan innað við 8þús ég skal taka þetta á 4þús hjá þér

Hvernig færðu það út? Getur þú bent mér á búðina þar sem þú færð þetta hingað á innað við 8.000? Ég gef mér að það sé fyrir utan íslensk gjöld.

þetta er með öllum gjöldum af ebay. en ég var samt að miða við single core vélina eina sem ég fann en eftir að hafa leitað þá fann ég þessa http://www.ebay.com/itm/Google-Android4 ... 2577ed3354

og hún er hingað komin heim á sirka 9000-9500kr-

haha nei þarft ekkert að bæta við reiknivélina hjá tollinum

Re: Android 4,1 Mini Pc

Sent: Mán 26. Nóv 2012 16:14
af Daz
dori skrifaði:Líka fullt af svona dóti á ebay á bilinu $50-60. Það er nokkuð ljóst að ef þetta var keypt á verði sem réttlætir það að endurselja það á 25000 kr. þá var það mjög slæmur díll.

8000 kr. nýtt er samt kannski smá ýkjur (sérstaklega þegar það þarf að bæta tollmeðferðargjöldum við þennan 10 þúsund kall). Ég held að m.v. þetta $65 verð þá væri 12.500-15000 kr. sanngjarnt endursöluverð (á ónotuðum svona hlut).

Þannig að eitthvað sem er hægt að panta á ebay fyrir 10500 kr, finnst þér eðlilegt að selja "notað" með 20-50% álagninu? Ég sé ekki neinn ágóða í að kaupa þetta hér notað, nema það fylgi eitthvað loforð um skil með í pakkanum.

Re: Android 4,1 Mini Pc

Sent: Mán 26. Nóv 2012 18:29
af Olli
m.v. reikninginn hjá sigga83 sem ég sé ekkert að, þá er þetta meira svona 150% álagning

Re: Android 4,1 Mini Pc

Sent: Mán 26. Nóv 2012 19:38
af chaplin
Og þetta er ástæðan afhverju verðvaktin er awesome.

Re: Android 4,1 Mini Pc

Sent: Mán 26. Nóv 2012 20:43
af capteinninn
chaplin skrifaði:Og þetta er ástæðan afhverju verðvaktin er awesome.

Haha klárlega, mér finnst líka bara gaman t.d. að lesa þennan þráð

Re: Android 4,1 Mini Pc

Sent: Mán 26. Nóv 2012 20:48
af Legolas
chaplin skrifaði:Og þetta er ástæðan afhverju verðvaktin er awesome.

x2

Re: Android 4,1 Mini Pc

Sent: Mán 26. Nóv 2012 22:39
af dori
Daz skrifaði:Þannig að eitthvað sem er hægt að panta á ebay fyrir 10500 kr, finnst þér eðlilegt að selja "notað" með 20-50% álagninu? Ég sé ekki neinn ágóða í að kaupa þetta hér notað, nema það fylgi eitthvað loforð um skil með í pakkanum.

Reiknivél tollsins er "gölluð" á tvennan hátt þegar það kemur að því að finna hvað hlutir kosta.
1. Þeir nota tollgengi til að áætla verð vöru í íslenskum krónum. Það er yfirleitt mun lægra en vísa/mastercard gengi. Á svona hlut munar það reyndar ekki nema ca. 150 kr.
2. Eins og þeir taka fram á síðunni taka þeir ekki með gjöld sem þarf að borga á Íslandi (i.e. tollmeðferðargjöld í þessu tilfelli eða 550 kr.)

Ég er núna að gera ráð fyrir því að einhver hafi keypt sniðugan hlut á netinu og tekið 1-2 stk. auka með það í huga að selja nálægt kostnaðarverði. M.v. það þá finnst mér ekkert að því að "græða" 1000-2000 kr. fyrir að taka áhættu á að enginn hafi áhuga á þessu og að þurfa hugsanlega að sitja uppi með þetta. Það myndi væntanlega kosta 11500-12000 kr. að kaupa eitt stykki af svona hlut (m.v. $~65). Ég myndi þess vegna segja að 12500-15000 kr. væru ekkert úr vegi ef þú getur bara rennt við hjá einhverjum og fengið þetta nýtt í kassa og haft ekkert fyrir því (fyrir utan að allir prútta á netinu, ekki satt?).

Það er samt ekki það sama og að biðja um 25 þúsund krónur sem er rúmlega 100% álagning.

Re: Android 4,1 Mini Pc

Sent: Mið 28. Nóv 2012 14:22
af siggi83
dori skrifaði:

Sent: Fim 06. Des 2012 23:19
af quad
Sælir, ég vil bæta við að mk808 græjan (sambærileg en minna vesen, jelly bean og 8 gb rom) auk wifi air mouse með lyklaborði (nauðsynlegt) kostaði mig rétt nákvæmlega 13.080 kr komið heim með alles á ebay fyrir tæpum mánuði. þetta er alger draumur sem media center/smart TV í full HD auk þess að vera smartari en þessi vitlausu "smart TV" sem eru til sölu á offjár ;o) og hvað þá í samanburði við allt framboð sjónvarpsflakkara fyrr og (um skamman tíma) síðar.

Re: Android 4,1 Mini Pc

Sent: Fös 07. Des 2012 02:26
af H
Afsakið fáfræðina, en hvernig notar maður svona mini PC?