Síða 1 af 1

Hvað er hægt að fá fyrir þetta ?

Sent: Lau 31. Mar 2012 19:47
af Vigginn
Góðan daginn, ég er að spá að fara uppfæra hjá mér vélina og ætlaði þá að selja hluti úr gömlu. Ég var að spá hvað væri hægt að fá fyrir Örran, mobo, minnið og skjákortið

http://www.flickr.com/photos/78627060@N08/6886755538/in/photostream/lightbox/

Með fyrirfram þökk

Re: Hvað er hægt að fá fyrir þetta ?

Sent: Lau 31. Mar 2012 20:24
af Bjosep
Mynd

Mátt líklegast koma með nákvæmari upplýsingar um hvað skjákortið þitt heitir, vænti ég.

Re: Hvað er hægt að fá fyrir þetta ?

Sent: Lau 31. Mar 2012 20:51
af Vigginn
Ahh, það er nú bara HD5750

Re: Hvað er hægt að fá fyrir þetta ?

Sent: Sun 01. Apr 2012 23:49
af Vigginn
Enginn sem treystir sér að henda verði á þetta hjá mér, hvað er raunhæft að ætlast til að fá fyrir þetta ? þetta er allt um 2ára gamalt.

Re: Hvað er hægt að fá fyrir þetta ?

Sent: Mán 02. Apr 2012 00:14
af Garri
Hugsa að þú fáir mest fyrir þetta með því að parta hana.

Smá verðlögguleikur..

Q9400 um 12k
4GB minni 4k
Diskur 7k
Móðurborð 7k
Skjár 18k
Skjákort 8k
DVD 3k
Kassi og annað 5-10k eftir ástandi og gæðum.

Alls um 64-70k

Re: Hvað er hægt að fá fyrir þetta ?

Sent: Mán 02. Apr 2012 10:51
af AncientGod
Garri skrifaði:Hugsa að þú fáir mest fyrir þetta með því að parta hana.

Smá verðlögguleikur..

Q9400 um 12k
4GB minni 4k
Diskur 7k
Móðurborð 7k
Skjár 18k
Skjákort 8k
DVD 3k
Kassi og annað 5-10k eftir ástandi og gæðum.

Alls um 64-70k
Já sæll þetta er frékkar mikkið sem þú ert að sitja á þessa hluti, dvd það er svona 1 þús krónur, minni svona 2 þús og margt fleira sem þú ættir að endurskoða.

Re: Hvað er hægt að fá fyrir þetta ?

Sent: Mán 02. Apr 2012 10:58
af mundivalur
Hann er að selja/spá í verði fyrir móðurborð+örgjörva+minni+skjákort ekkert annað :D verð á hdd er 5-7þ miðað við helvítis verð á hdd í dag :-"

Re: Hvað er hægt að fá fyrir þetta ?

Sent: Mán 02. Apr 2012 11:05
af Garri
Veit að öll verðin eru í hærri kantinum.. hugsa að þetta sé alveg topp verð ef hann selur þetta í pörtum, annars töluvert undir þar sem flestir sem standa á annað borð í svona brasi, eiga alltaf eitthvað af þessum hlutum sem annaðhvort eru nógu góðir, jafn góðir eða betri.