Síða 1 af 1
TS: móðurborð+RAM+CPU+GPU (hættur við)
Sent: Þri 27. Mar 2012 23:59
af appel
Er að selja gamla rigginn... en langar að óska eftir verðhugmyndum. Kannski mun ég ekkert selja ef þetta fer á 10 þús kall eða eitthvað fáránlegt.
1. Móðurborð: MSI P35 Neo2-FR
2. RAM: Corsair 800Mhz 6400c4, 4x1gig.
3. Örgjörvi: Q6600
4. GPU: evga 8800GT
Best að geta selt þetta í einu lagi, en skjákortið má fara sér.
Hvað er svona samsetning að seljast á? Þetta er alveg þokkalega öflugt og nóg í flestalla vinnslu, nema allra nýjustu leikina.
edit: hættur vil sölu miðað við svörin, takk samt.
Re: TS: móðurborð+RAM+CPU+GPU (vantar verð)
Sent: Mið 28. Mar 2012 00:03
af worghal
er einhver kæling með þessu ?
Re: TS: móðurborð+RAM+CPU+GPU (vantar verð)
Sent: Mið 28. Mar 2012 00:24
af appel
worghal skrifaði:er einhver kæling með þessu ?
Bara retail intel stuff.
Re: TS: móðurborð+RAM+CPU+GPU (vantar verð)
Sent: Mið 28. Mar 2012 00:34
af worghal
hef pínu áhuga á örgjörva minni og móðurborði
Re: TS: móðurborð+RAM+CPU+GPU (vantar verð)
Sent: Mið 28. Mar 2012 01:02
af appel
Getið alveg sent mér verðhugmynd í pm ef þið eruð feimnir.
Re: TS: móðurborð+RAM+CPU+GPU (vantar verð)
Sent: Mið 28. Mar 2012 01:35
af worghal
þarf bara fyrst að skoða fjármálin mín
á ekki eyri fram að mánaðarmótum og er líka hræðilega lélegur að bjóða.
sjáum bara hvort aðrir bjóða og ég skal sjá hvort ég geti ekki gert betra boð

Re: TS: móðurborð+RAM+CPU+GPU
Sent: Mið 28. Mar 2012 17:08
af appel
Hægt að kaupa kassa með psu á 10 þús kall, og þá er maður kominn með ansi þokkalega vél, sem maður var bara fyrir daginn að keyra photoshop, eclipse, starcraft 2 og svona á.
Sel allan pakkann á 45 þús.
Skjákortið sér á 10 þús. Hitt á 35 þús.
Re: TS: móðurborð+RAM+CPU+GPU
Sent: Mið 28. Mar 2012 17:29
af mundivalur
Það er aðeins of mikið!
Mb=5-7þ
minni=4-6þ
Örgj.=6-8þ(B3) 8-12þ(G0) B3 er litið sem ekkert hægt að yfirklukka og G0 er fínn í 3.4-3.6ghz
Skjákort=6-8þ
