Síða 1 af 1
HP Tölvukassar ásamt. !!!! Selt!!!!!
Sent: Þri 06. Mar 2012 13:17
af Beetle
Er með 5 stk HP VLi8 kassa. Meðfylgir : Intel Pentium III 500MHz með uppsett XP Pro SP2 og SP3 (löglegt) Office 2003 pro (löglegt) minni 192-512 Ram.
Snilldar kassar allt smellt saman ekkert skrúfujárn. Fast verð 5000.- stk. ekkert prútt !
Sími 663-9249
Re: HP Tölvukassar
Sent: Þri 06. Mar 2012 13:44
af AntiTrust
5þúsund fyrir 500mhz PIII vél?

Re: HP Tölvukassar
Sent: Þri 06. Mar 2012 14:24
af dori
AntiTrust skrifaði:5þúsund fyrir 500mhz PIII vél?

Með uppsettu (en gömlu) og löglegu Windows og Office get ég ekki séð annað en að það sé bara mjög sanngjarnt.
Augljóslega er þetta ekki eitthvað sem ég kæri mig um að eiga eða borga fyrir. En fyrir einhvern sem vantar tölvu til að skoða tölvupóst og slíkt og á engan að sem getur sett eitthvað upp fyrir lítinn/engan pening er þetta bara ágætisdíll.
EDIT: Reyndar myndi ég halda að allir hérna væru ekki í slíkri aðstöðu þannig að svona auglýsing á kannski ekki heima hérna. En svosem allt í lagi að þetta fljóti með. Þetta hlýtur líka að vera á Bland.
Re: HP Tölvukassar ásamt...
Sent: Þri 06. Mar 2012 14:33
af playman
Er ekki að reyna að vera leiðinlegur, en þú verður eiginlega að stækka minnið þar sem að þú ert að keyra á XP SP3.
512mb er fínt í SP2 en það þarf eiginlega að vera lágmark 1gb fyrir SP3 (756mb í það allraminsta)
þær eru ágætar með 512mb fyrst um sinn, en svo þegar að maður fer að nota þær,
þá hægist rosalega á þeim.
Bara vinaleg ábending.

Re: HP Tölvukassar ásamt...
Sent: Þri 06. Mar 2012 19:01
af Beetle
Þetta eru kassarnir sem eru aðalatriðið, flott hljóðeinangraðir og snilldar útbúnir. Drallið inni í þeim fylgir bara með, ekkert issue ! Bara rífa úr og setja eh flott í !

Re: HP Tölvukassar
Sent: Þri 06. Mar 2012 21:50
af AntiTrust
dori skrifaði:Með uppsettu (en gömlu) og löglegu Windows og Office get ég ekki séð annað en að það sé bara mjög sanngjarnt.
Augljóslega er þetta ekki eitthvað sem ég kæri mig um að eiga eða borga fyrir. En fyrir einhvern sem vantar tölvu til að skoða tölvupóst og slíkt og á engan að sem getur sett eitthvað upp fyrir lítinn/engan pening er þetta bara ágætisdíll.
EDIT: Reyndar myndi ég halda að allir hérna væru ekki í slíkri aðstöðu þannig að svona auglýsing á kannski ekki heima hérna. En svosem allt í lagi að þetta fljóti með. Þetta hlýtur líka að vera á Bland.
Ég hef alltaf verið fylgjandi því að það sé ákveðið lágmarksverð fyrir nothæfa heimilisvél, en þessar vélar dansa alveg á mörkunum fyrir 5þús. Ef það eru COA leyfi með vélunum þá er þetta strax skárra.
Um að gera að skella þessu á bland sé þetta ekki þar fyrir, flýgur örugglega út þaðan.
Re: HP Tölvukassar ásamt...
Sent: Þri 06. Mar 2012 21:53
af methylman
playman skrifaði:Er ekki að reyna að vera leiðinlegur, en þú verður eiginlega að stækka minnið þar sem að þú ert að keyra á XP SP3.
512mb er fínt í SP2 en það þarf eiginlega að vera lágmark 1gb fyrir SP3 (756mb í það allraminsta)
þær eru ágætar með 512mb fyrst um sinn, en svo þegar að maður fer að nota þær,
þá hægist rosalega á þeim.
Bara vinaleg ábending.

U just did
Re: HP Tölvukassar ásamt...
Sent: Þri 06. Mar 2012 22:22
af IL2
Er þetta ekki ofan úr Hirði, sýnist það.
Re: HP Tölvukassar ásamt... (lækkað verð)
Sent: Mið 07. Mar 2012 19:06
af Beetle
Ekki úr Hirðinum, common ! Flottar vélar m.v. aldur, viðhaldið af Nýherja og allt löglegt, búinn að keyra Genuine Tool, og e. smá tíma : Thank U for Validating......
En ok skal lækka verðið í 3500.-

Re: HP Tölvukassar ásamt. Lækkað verð
Sent: Mið 07. Mar 2012 19:50
af IL2
Er ekkert að reyna að vera leiðilegur en það voru nokkrar tölvur með miðum utan á þar um daginn sem litu svipað út. Það koma oft gamlar fyrirtækistölvur þar sem eru í fínu lagi en gamllar.
Re: HP Tölvukassar ásamt. Lækkað verð
Sent: Mið 07. Mar 2012 21:17
af Beetle
IL2 skrifaði:Er ekkert að reyna að vera leiðilegur en það voru nokkrar tölvur með miðum utan á þar um daginn sem litu svipað út. Það koma oft gamlar fyrirtækistölvur þar sem eru í fínu lagi en gamllar.
Keypti slatta af tölvum af fyrirtæki sem var að skipta út búnaði um daginn. En búinn að henda á Bland. Vaktarar eru gúrúar og auddað passar sona auglýsing náttla ekki hér.

Re: HP Tölvukassar ásamt. Lækkað verð
Sent: Mið 07. Mar 2012 21:22
af rapport
Þessi auglýsing er bara grín...
Hvaða fyrirtæki er að losa sig við þessar vélar í dag?
Þetta er innflutt eða úr einhverri gamalli geymslu + hvenær viðhélt Nýherji HP vélum???
Re: HP Tölvukassar ásamt. Lækkað verð
Sent: Fim 08. Mar 2012 10:06
af Beetle
rapport skrifaði:Þessi auglýsing er bara grín...
Hvaða fyrirtæki er að losa sig við þessar vélar í dag?
Þetta er innflutt eða úr einhverri gamalli geymslu + hvenær viðhélt Nýherji HP vélum???
Ég fékk líka IBM og Dell vélar á sama stað, kannski hef ég misskilið eh.
Var ekki ætlun mín að stofna til eh leiðinda. Ekki innflutt, íslenskt windows í nokkrum.
Er ekki bara hægt að eyða þessari auglýsingu ?
Kv.
Re: HP Tölvukassar ásamt. Lækkað verð
Sent: Fim 08. Mar 2012 10:10
af ORION
Hættið þessu, þetta jarðar við einelti leyfið honum að selja þetta í friði kálhausar
