Síða 1 af 1
TS: Bilað Gigabyte P67A-UD7-B3
Sent: Mán 03. Okt 2011 00:16
af nighthawk
Til sölu Gigabyte P67A-UD7-B3 móðurborð með nokkra beyglaða og tvo brotna pinna í socket. Tilboð óskast.
Re: TS: Gigabyte P67A-UD7-B3
Sent: Mán 03. Okt 2011 00:38
af chaplin
nighthawk skrifaði:Til sölu Gigabyte P67A-UD7-B3 móðurborð með nokkra beyglaða og tvo brotna pinna í socket. Tilboð óskast.
Wait, what? Hvað ætlastu til að fá mikið fyrir það og virkar það 100% eðilega?
Re: TS: Gigabyte P67A-UD7-B3
Sent: Mán 03. Okt 2011 00:48
af Black
Hverning fórstu að því að skemma þetta móðurborð

Re: TS: Gigabyte P67A-UD7-B3
Sent: Mán 03. Okt 2011 00:50
af nighthawk
Ég skemmdi það ekki, ég bara tók það að mér en ég hef bara ekki tíma í að gera við það. Vil bara fá nógu mikið svo að mér finnst borga sig að láta það frá mér.
Re: TS: Gigabyte P67A-UD7-B3
Sent: Mán 03. Okt 2011 01:26
af chaplin
Ef pinnarnir eru brotnir að þá ertu ekkert að fara laga það, og ef þeir eru beyglaðir þá er í sumum tilvikum hægt að laga það en getur líka endað með frekari skemmdum.
En virkar móðurborðið?
Re: TS: Gigabyte P67A-UD7-B3
Sent: Mán 03. Okt 2011 08:27
af Kristján
breyttu allavega titlinum í "bilað Gigabyte P67A-UD7-B3"
Re: TS: Gigabyte P67A-UD7-B3
Sent: Mán 03. Okt 2011 08:50
af nighthawk
Það eina sem er að því er socket-ið. Bara einhver bjáni sem setti örgjörva öfugt í það.
Re: TS: Bilað Gigabyte P67A-UD7-B3
Sent: Mán 03. Okt 2011 09:01
af Kristján
jájá það eina sem getur verið að biluðum bíl er að blokkin sér brotin i tvennt...
er hægt að nota borðið svona bilað eða þarf að gera við það og eru pinnarnir brotnir eða bara beyglaðir?
Re: TS: Bilað Gigabyte P67A-UD7-B3
Sent: Mán 03. Okt 2011 11:36
af nighthawk
Kristján skrifaði:jájá það eina sem getur verið að biluðum bíl er að blokkin sér brotin i tvennt...
Hvað ertu að meina? Lestu bara auglýsinguna. Spurningin er bara viltu leggja í að gera við þetta? Vantar þig varahluti í svona móðurborð? Viltu hafa það sem skraut í fiskabúri? Örri var settur öfugt í socket-ið þannig pinnarnir lögðust niður öðru megin, ég náði að lyfta pinnunum aftur með skrúfblýhanti ekkert mál, nema sumir eru pínu beyglaðir en viðráðanlegt en 2 (tveir) pinnar eru brotnir, s.s. losnuðu í tvennt við brúnina á gatinu í socket-inu. Það er möguleiki að taka pinna úr USB tengi og smíða og festa hann niður með dropa af tini t.d. En ég hef bara ekki tíma, pláss eða prufubúnað til að fara í svoleiðis verkefni. Ef þér líst ekki á þetta, move along...